Heilbrigðismál - 01.07.1971, Síða 13
í öðrum flokknum, eitlasjúkdómunum,
horfir öðruvísi við en í blóðkrabba, því sjúk-
dómurinn getur verið bundinn við takmörkuð
svæði. Ef svo er, er geislun alltaf notuð fyrst.
Hún gefur tvímælalaust betri árangur en lyfin
og er á seinni tímum talið víst, að unnt sé að
lækna endanlega nokkurn hluta þeirra, sem
hafa staðbundinn sjúkdóm. Það er einmitt í
þessum sjúkdómum, sem nýja Cobolt tækið
gefur hvað bezta raun. Engin dæmi munu vera
til um endanlega lækningu með lyfjum, og
því eru þau aðeins notuð í þeim tilfelium, þar
sem sjúkdómurinn hefur náð meiri útbreiðslu
en svo að unnt sé að beita geislatækjum, eða
þegar æxli kemur aftur fram á stað, sem áður
hefur fengið fulla geislameðferð, þar sem
ekki er unnt að geisla sama svæðið tvisvar.
Beztur árangur hefur fengizt með því að
nota mörg lyf saman, 3-4 í stuttum kúrum
með 10-30 daga hléi á milli.
Sem dæmi um árangur get ég nefnt niður-
stöður úr grein í Brit. Med. Journal frá því í
júlí 1970. Þar var fjallað um einn sjúkdóm í
þessum flokki, Hodgkin’s sjúkdóm.
Af 7 sjúklingum, sem enga meðferð höfðu
áður fengið, hurfu öll einkenni um sjúkdóm
hjá 6 eða 86%.
Ef geislameðferð hafði áður verið gefin,
fékkst sambærilegur árangur hjá heldur færri
eða 79%, en hjá aðeins 35% þeirra, sem áður
höfðu fengið lyfjameðferð. Er þetta í sam-
ræmi við reynslu manna yfirleitt, að árangur
verður þeim mun verri, sem oftar hafa verið
notuð lyf.
Því miður má ekki túlka þessar tölur á
þann veg, að þetta fólk sé að fullu læknað,
því reynslan sýnir, að svo er ekki. Fyrr eða
síðar kemur sjúkdómurinn aftur fram á ný
þrátt fyrir viðhaldsmeðferð. Eigi að síður er
hér um verulegan ágóða að ræða, því ævi-
skeiðið lengist töluvert og fólkinu líður betur,
en hópnum hefur enn ekki verið fylgt eftir
FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMAL
nógu lengi, til þess að endanlegar upplýsing-
ar um æviskeið liggi fyrir.
I þriðja hópnum, þeim sem eru með
krabbamein eða carcinoma, er frummeðferð-
in oftast skurðaðgerð ýmist með eða án eftir-
farandi geislameðferðar. Komið getur þó
fyrir, að sjúkdómurinn hafi náð slíkri út-
breiðslu, þegar læknir fyrst sér sjúkling, að
skurðaðgerð komi ekki til greina og verður
þá að grípa til geisla eða lyfjameðferðar eða
beggja.
Þá hefur og komið í ljós, að árangur lyfja-
meðferðar á svokölluðu choriocarcinoma, sem
er krabbamein í legi kvenna út frá þungun,
er svo góður, að ekki þykir lengur ástæða
að framkvæma skurðaðgerð fyrst.
Lyfjameðferð með geislameðferð hefur og
verið notuð með góðurn árangri á undan
skurðaðgerð, auk þess sem lyf eru gefin strax
eftir aðgerð, hjá börnum með sérstaka tegund
af krabbameini í nýrum. í flest öllum öðrum
tilvikum er lyfjameðferð notuð á eftir skurð-
aðgerð vegna frekari útbreiðslu sjúkdómsins,
sem ekki hefur tekizt að hefta með geislum,
eða að sýnt þyki, að þeir muni ekki koma að
gagni.
Ef undan eru skilin fyrrnefnd krabbamein
hjá konum, sem flest læknast alveg með lyfj-
um og krabbamein í nýrum barna, Wilm’s
tumor, er enn ekki unnt að útrýma krabba-
meini með lyfjum. Þá verður að viðurkennast,
að árangur er fremur lélegur, þar sem þeir eru
enn töluvert fleiri, sem ekki fá sjáanlegan
(objectivan) ágóða að lyfjameðferð, en þótt
ekki sé hægt að greina marktæka minnkun á
æxli, má oft fá betri líðan um tíma. Nokkuð
erfitt getur verið að meta árangur, og eru regl-
ur þær, sem menn hafa sett sér við matið
nokkuð mismunandi og því að vænta nokkurs
mismunar á skráðum árangri. Algengt er, að
menn telji það góðan árangur, ef æxli minnk-
frh. á bls. 24
13