Heilbrigðismál - 01.07.1971, Page 14

Heilbrigðismál - 01.07.1971, Page 14
Krabbamein í lungum Hjalti Þórarinsson, yfirlceknir ÁnÁMSÁrum mínum í læknadeild Háskóla íslands fyrir röskum tveim áratugum, sá ég aðeins einn sjúkling með lungnakrabba. Minn ágæti kennari, Jón heitinn Hjaltalín prófessor, sagði mér að skoða þennan sjúkling vel, því að óvíst væri, að ég sæi þennan sjúkdóm oft á mínum læknisferli. Því miður urðu þetta ekki orð að sönnu. Á þeim tæpum tveim áratugum, sem ég hefi starfað sem læknir hefi ég séð mörg hundruð sjúklinga með lungnakrabba. Um síðustu aldamót var krabbamein í lungum mjög sjaldgæfur sjúkdómur og hvergi algengari en 2—4% illkynjaðra æxla. Á öðrum og þriðja tug aldarinnar jókst tíðni krabbameins í lungum verulega í fjöl- mörgum menningarlöndum. Vafalítið stafaði eitthvað af þessari aukn- ingu af betri greiningu sjúkdómsins, en annað hlaut þó að koma til. Er nú svo komið, að í mörgum löndum er tíðni þessa alvarlega sjúkdóms orðin marg- föld við það sem hún áður var. f Bretlandi t. d. og víða í Bandaríkjum Norður-Ameríku er lungnakrabbi orðinn al- 14 gengasta krabbameinið og er 25-30 hundr- aðshlutar ailra illkynjaðra æxla. f Finnlandi er lungnakrabbi einnig mjög algengur. Hér á fslandi hefur þessi sjúkdómur farið mjög í vöxt, enda þótt ekki sé ennþá um sömu tíðni að ræða og þar sem hann er algengastur erlendis. Á árunum 1931-1954, þ. e. a. s. á 24 ár- um, fundust aðeins 34 sjúklingar hér á landi með lungnakrabba. Á árabilinu 1955-1968 fundust hinsvegar um það bil átta sinnum fleiri sjúklingar eða alls 264 á aðeins 14 árum. í Bretlandi og Bandaríkjum Norður-Ameríku hófu vísinda- menn rannsóknir á orsökum og eðli lungna- krabbans fljótt eftir að tíðni sjúkdómsins jókst verulega. Síðustu áratugina hafa fjölmörg önnur menningarlönd lagt sitt af mörkum á því sviði. Þessar rannsóknir hafa leitt til þess, að nú má telja sannað, að reykingar og þá einkum vindlinga- eða sígarettureykingar geta valdið ákveðnum tegundum krabbameins í lungum og fullyrða margir vísindamenn á þessu sviði, að 80-85% lungnakrabbans orsakist af reyk- ingum. Vindla- og pípureykingar eru álitnar hættumihni. Þess má þó geta, að það eru fjölmörg efni auk tóbaksins, sem vísindamenn hafa illan bif- ur á, eða hafa sannað að geti valdið lungna- krabba. Má þar til nefna arsen, krómsölt, FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMAL

x

Heilbrigðismál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.