Heilbrigðismál - 01.07.1971, Side 18

Heilbrigðismál - 01.07.1971, Side 18
tækt — vaxið út fyrir lungað eða komið er út- sæði í önnur líffæri. Margir þessara sjúklinga hafa haft einkenni lengi, sem hefðu auðveldað greininguna, ef þeir hefðu leitað læknis og verið rannsakaðir gaumgæfilega. Vísindamenn um allan heim leita stöðugt að lyfi, sem gæti eytt krabbameini, án þess að skaða heilbrigða vefi líkamans. Ennþá hef- ur þetta ekki tekizt, hvað lungnakrabba snertir. Röntgengeislar lækna heldur ekki krabbamein í lungum, en draga oft úr vaxtar- hraðanum. Þar með geta þeir veitt nokkra fróun, ef um mikla verki er að ræða. Ýmis lyf eru notuð í sama skyni. Ég gat þess áðan, að oft liði langur tími frá því sjúklingar fá einkenni og þar til þeir kom- ast í hendur skurðlækna. Með því að fræða almenning um einkenni og gang sjúkdómsins ætti að vera kleift að stytta þennan hættulega biðtíma. Ýmsir eru á móti því, að rætt sé eða ritað fyrir almenning um krabbamein, þar sem það kunni að valda óþarfa hræðslu og hugarangri. Ég er á annarri skoðun. Ég álít nauðsynlegt að fræða almenning sem bezt um krabbamein, ekki sízt þær teg- undir þess, sem unnt er að forðast að verulegu leyti eða alltað því útrýma með breyttum lífs- venjum. Á ég hér við lungnakrabba, en svo sem áður er getið þá er líklegt, að 80-85% þeirra sem nú fá þennan sjúkdóm hefðu ekki orðið honum að bráð, ef þeir hefðu aldrei reykt. Hættan á að fá lungnakrabba eykst mjög, og þeim mun meira, sem reykt er daglega og lengur að árum. Áhættan minnkar aftur, ef dregið er úr reykingum, en einkum þó sé þeim hætt með öllu. Ég gat þess áður, að tíðni lungnakrabba hefur aukizt mikið hér á landi og rannsóknir sýna, að þessi aukning kemur 20-25 árum eftir að reykingar jukust stórlega, en á tíma- bilinu 1910-1949 rúmlega hundraðfaldaðist vindlinganeyzla hér á landi. Vafalítið er or- sakasamband þarna á milli, enda er hér ekki til að dreifa öðrum þekktum orsökum þessa sjúkdóms. Árið 1964 kom út hin fræga bók „Reyk- ingar og heilsufar" á vegum landlæknis Bandaríkjanna. Inntak þeirrar bókar var nið- urstöður fjölmargra rannsókna á skaðsemi reykinga. Þar kom skýrt fram, að reykingar valda ekki aðeins lungnakrabba heldur var einnig krabbamein í vör, munnholi, vélinda, maga, nýrum og þvagblöðru mun algengara hjá stór- reykingamönnum heldur en þeim sem lítið reyktu eða ekki. Þá valda og reykingar stór- aukinni tíðni hjarta og æðasjúkdóma. Áhrifa þessara upplýsinga og staðreynda gætti um allan hinn siðmenntaða heim. Reyk- ingar minnkuðu mjög mikið, en aðeins um stundarsakir. Með endurteknum eða stöðug- um áróðri gegn reykingum hefur þó góðu heilli tekizt í Bretlandi, Bandaríkjunum og víðar að koma vitinu fyrir þó nokkurn fjölda reykingamanna, sem hafa látið af reykingum með öllu. Árið 1959 og 1962 voru kannaðar reyk- ingavenjur barna og unglinga í nokkrum skól- um hér í höfuðborginni. Þessar athuganir leiddu í Ijós, að tíundi hver tíu ára drengur reykti, 15.4% tólf ára drengja og 54.8% þeirra pilta sem náð höfðu 17 ára aldri. Af 17 ára stúlkum reyktu 19-5%. Þessar háu töl- ur héðan hafa vakið furðu á læknaþingum er- lendis. Bandarísk skýrsla frá 1968 sýndi, að þar í landi reyktu þó ekki nema 37.6% 18 ára pilta og 21.9% stúlkna á sama aldri. Engu að síður þóttu þetta óhugnanlegar staðreyndir þar í landi. Það ætti hins vegar ekki að undra okkur FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL 18

x

Heilbrigðismál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðismál
https://timarit.is/publication/638

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.