Heilbrigðismál - 01.07.1971, Page 19
svo mjög, að reykingar skuli vera svona al-
gengar meðal ungmenna í því þjóðfélagi sem
við nú lifum í, þjóðfélagi þar sem meira en
helmingur hinna fullorðnu reykir og hömlu-
litlar eða hömlulausar skemmtanir eru í há-
vegum hafðar og auraráð unglinganna einatt
alltof frjáls. Ég álít að þeir fullorðnu hafi
ekki verið unglingunum góð fyrirmynd í
þessu efni, og að ekki hafi verið nægjanlega
mikið gert til þessa að skýra ungum sem öldn-
um frá hættum þeim, sem stafað geta af reyk-
ingum.
Má vera, að eitthvað hafi dregið úr reyk-
ingum síðustu árin, en þó er það einróma álit
þeirra, er nánast þekkja til, að reykingar barna
og unglinga sé hér, sem annars staðar orðið
alvarlegt þjóðfélagsvandamál og því skjótra
úrbóta þörf.
í stuttu máli:
Lungnakrabbi er geigvænlegur sjúkdómur.
Tíðni þessa sjúkdóms hefur aukizt mjög hér
á landi, sem annars staðar.
Það er nú sannað, að lungnakrabbi stafar
oftast af reykingum. Reykingar valda einnig
fjölmörgum öðrum lífshættulegum sjúkdóm-
um. Það er auðveldara en flestir halda að láta
af reykingum með öllu, ef viljinn er fyrir
hendi. Öðrum er unnt að hjálpa á ýmsan hátt
til þess að ná þessu marki.
Það er einhlítt, að fræðslu um skaðsemi
reykinga verður að stórauka og hún skal haf-
in strax og börn hefja skólagöngu, til að reyna
að forða ungmennum frá þessu böli.
í Ameríku hafa nokkur líftryggingafélög
lækkað iðgjöld þeirra, sem aldrei hafa reykt
eða hafa látið af reykingum, þar sem skýrslur
sýna að æviskeið þeirra er töluvert lengra
heldur en hinna sem reykja.
Þar í landi hafa 9 milljónir hætt reyking-
um á undanförnum árum.
Við ráðum nú þegar yfir rannsóknaraðferð-
um, sem gera kleift að greina krabbamein í
lungum í langflestum tilfellum.
Því fyrr sem sjúkdómurinn er greindur,
þeim mun meiri er vonin um varanlegan bata
af skurðaðgerðum. Lyfja- og geislameðferð
veita nokkra fróun, en lækna ekki sjúkdóm-
inn.
Með fjöldarannsóknum væri kleift að
finna lungnakrabba á byrjunarstigi hjá þeim
sem ennþá eru einkennalausir, og ef aðgerðir
eru framkvæmdar án tafar, er vonin um var-
anlegan bata margfalt meiri.
Efni:
Bjarni Bjarnason:
Bjarni Bjarnason:
Sigmundur Magnússon:
Hjalti Þórarinsson:
Ólafur Bjarnason:
Sir George landlæknir Englands í heimsókn
á íslandi • 3
Sóknin í það, sem sízt skyldi • 4
Lyfjameðferð við illkynja sjúkdómum • 9
Krabbamein í lungum • 14
Krabbameinsvarnir • 20
Stórgjöf til Krabbameinsfél. fslands • 25
FRÉTTABRÉF UM HEILBRIGÐISMÁL
19