Samtíðin - 01.09.1937, Blaðsíða 10

Samtíðin - 01.09.1937, Blaðsíða 10
6 SAMTÍÐIN Jíí ínujfytmaJi, Enjfinn er það gamall, að hann haldi ekki, að hann geti lifað eitt ár í viðbót. Cicero. Enginn elskar lífið jafnheitt og gamall rnaður. Sophokles. Ég er ákaflega þakklátur dllinni, sem hefir aukið áhuga minn fyrir viðræðum og minkað löngun mína til matar og drykkjar. Cicero. Lífið er dýrmætast, þegar það er á þrotum. Seneca. Enginn vitur maður óskar þess, að hann væri orðinn yngri en hann er. Swift. Sérhver listamaður dýfir pensli sínum ofan í sál sína og leggur eðli sitt í myndir sínar. Henry W. Becher. Sérhver listamaður skrifar ævisögu sína. Havelock Ellis. Enginn maður er listamaður nema sá, sem hefir svifið á vængjum hugans alla leið til himna. William Blake. Sérhver listamaður hefir, ef hann er frjáls, leyfi til að skapa hvers konar mynd sem hann vill, úr hvaða efni sem er. G. K. Chesterton. Listamenn ættu aldrei að reyna til að þóknast fjöldanum. Oscar W’ilde. Allir listamenn hafa upphaflega verið viðvaningar. Emerson. Bak við kvæðið býr sál ljóðskáldsins. Bak við léreftið slær hjarta málarans. Charles H. Towne. Fólk ruglar altaf saman einstaklingnum og listamanninum, af því að það vill svo til, að þeir hafa tekið sér bústað í sama líkamanum. Jules Renard. Gott efni er oft látið ónotað, af því að listamanninn vantar. Seneca.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.