Samtíðin - 01.09.1937, Blaðsíða 29

Samtíðin - 01.09.1937, Blaðsíða 29
SAMTÍÐIN 25 Páll Erlingsson Aldrei kem ég svo í sundhöllina i Reykjavík, að mér detti ekki Páll Erlingsson i hug. Svo nátengt er sundið nafni hans hjá okkur, sem bárum gæfu lil að njóta kenslu hans. Ég fékk að fara til Reykja- víkur vorið 1915 lil þess að læra sund hjá Páli um nokkurra vikna skeið. Ég liafði áður heyrt mikið talað um þennan undarlega mann, hróður Þorsteins skálds, sem horf- ið liafði frá sveitabúskapnum fyrir austan Fjall til þess að takast á hendur að kenna sund í Reykjavík og loks hafði flntsl alfarinn suður til þess að geta gefið sig óskiptan við áhugamáli sínu. Slíkt var öllum þorra manna gersamlega ofvaxið að skilja um þær mundir. Hitt hlandaðist engum hugur um, að Páll var afburðamaður við starf sitt. Auk þess fór af honum frægð- arorð fyrir ýmislegt á þvi sviði. vera slaðfaslur og rólegur, eins og Rotliermere komst að orði. Þegar öllu er á botninn hvolft, verður oss það fyrir, að leita að fflönnunum sjálfum, hak við nafn- hætnr og pólitískan hjúp. Við þá athugun mun Stanley Raldwin reynast giftusamlegur maður. •— Heima við arininn er hann að ýmsu leyti ímynd þess styrkasta, hald- kvæmasta og' ósviknasta, sem til er í fari ensku þjóðarinnar. S. Sk. Páll Erlingsson Hann hafði m. a. synt yfir Hvítá hjá Árhrauni, og með kenslu sinni hafði hann orðið til þess að hjarga mörg- um mönnum frá druknun. Mér er enn i minni, hvernig Páll Erlingsson heilsaði mér, tólf ára unglingnum, er ég hitti hann fyrst og bað hann að kenna mér að synda. Hann gerði það með þeim hætti, að það var eins og ég hefði gert honum stórgreiða með því að koma til hans. Allan tímann, sem ég var þarna undir umsjá hans, var hann mér eins og hróðir og faðir í senn. Hann var liinn mikli kennari og hafði í þeim efnum þegið af for- sjóninni sannkallaða náðargáfu samfara miklum mannkostum.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.