Samtíðin - 01.09.1937, Blaðsíða 11

Samtíðin - 01.09.1937, Blaðsíða 11
SAMTÍÐIN 7 U T ANRÍKIS VERSLUN ÍSLENDINGA Frh. af bls. 5 ætlun mín, þegar firmað var stofn- að. Vegna þess, að firmað hefir ekki hreytt út af þeirri stefnu, sem sett var í byrjun, liafa viðskiptin aukist mikið upp á síðkaslið, og eru enn að aukast, svo að ég álit, að liugmynd mín við stofnunina hafi verið rétt. — Hverjar vörur er íslendingum einkum liagur að kaupa frá Þýska- landi ? — Næstum allar iðnaðarvörur. Aftur á móti er sem stendur ekki hægt að kaupa matvörur að ráði frá Þýskalandi, vegna þess að slik- ar vörur fást ekki nema að litlu leyti greiddar með ASKI-mörkum, ]).e.a.s. yfir svokallaðan „Clearing". Að gefnu tilefni vil eg hér taka það fram, að alment er álitið, að flestar vörur séu dýrari i Þýskalandi en i öðrum löndum. Þetta mun ekki vera rétt, nema að litlu leyti, Ef um mjög litlar sendingar er að ræða, sérstaldega ef þær þurfa að flytj- ast langt innan úr landi, verður járnbrautarflufningsgjaldið tiltölu- lega miklu hærra en fyrir slórar sendingar. Þannig getur þessi hug- mynd hafa skapast. Með því að athuga útflutningsskýrslur, er auð- sætt, að þýskar vörur eru samkepn- isfærar um allan heim. Auk þess virðast þýskar vörur jafnframt enskum og skandinaviskum vörum eiga hetur við smekk og vera frem- ur við hæfi íslendinga en fram- leiðsluvörur annara þjóða. John Spivak heitir amerískur rithöfundur, sem liefir að undanförnu verið á ferða- lagi um Evrópu. Árangurinri af þessu 1‘erðalagi er bók, sem Spivak nefnir: Ógnaröldin í Európu. — Getið þið ímyndað ykkur, að hundruð og þúsundir manna í nú- tímaþjóðfélögum Norðurálfunnar eigi við svo mikla fátækt að búa, að þeir verði að neita sér um hrýn- ustu lífsnauðsynjar, eins og salt? spvr höfundur. Og hann segir enn- fremur: — I heilum héruðum i Pól- landi og Tékkóslóvakíu er fátækt bændanna óskapleg. Ég átti eitt sinn tal við pólskan bónda, sem lifði mestmegnis á kartöflum, og spurði Iiann, hvers hann mundi einkum óska sér. Bjóst eg við, að hann mundi biðja um nautgripi, aukið land eða jieninga, en i stað þess svaraði liann: — Ó, ef eg gæti feng- ið ögn af salti .... Þó flytja Pólverjar út salt í stór- um stíl. TAKIB EFTIR Aðeins 34 eintök eru enn óseld af Sam- tíðinni frá upphafi, og verða þau seld sem hér segir: 1. árg. (1934) á 3 kr., 2. árg. (1935) á 4 kr., 3. árg. 1936 á 4 kr., samtals II kr., burðargjaldsfrítt hvert sem er. Notið yður þetta kostaboð. með- an þessi fáu eintök eru óseld. Samtíðin flytur yður fyrir 5 króna árgjald nál. 200 ritgerðir, sögur, kvæði og greinar. Hún er tímaritið, sem altir vilja lesa. Utanáskrift: S A M T í Ð I N, Pósthólf 75, Reykjavík.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.