Samtíðin - 01.09.1937, Page 27
SAMTÍÐIN
23
Til kartöfluframleiðenda
Til þess að karlöflur þær, sem Grænmetisverslun Rikisins kaupir,
verði metnar sem góð og gild söluvara, þurfa þær að uppfylla eftir-
farandi skilyrði:
1. Kartöflurnar verða að vei’a þurar og hreinar. (Ath. Aldrei má
lireinsa kartöflur með því að þvo þær eða hleyta).
2. Kartöflurnar eiga að vera sem jafnastar að útliti og slærð. Allar
óvenjulega stórar, vanskapaðar, grænar og skaddaðar kartöflur
verða að vera skildar frá. Sömuleiðis frosnar kartöflur og sýktar.
3. All smælki þarf að vera skilið frá, þannig að kartöflur, sem ekki
eru meira en 35 millimetrar i þvermál nemi um 5% af vörunni,
og að engar kartöflur séu minni en 25 millimetrar i þvermál.
4. Kartöflurnar eiga að afhendast i 50 kílóa pokum, sem verða að
vcra þurrir, heilir og þrifalegir. Skal vera vandlega saumað fyrir
pokana og gerð á liorn til að taka í þegar þeir eru handleiknir.
5. Seljendur verða að lála fylgja kartöflunum greinilegar upplýsing-
ar um hvaða afbrigði (legund) þær séu. Ef um fleiri afhrigði er
að ræða i söniu sendingu, má ekki blanda þeim saman. Hvert af-
hrigði verður að vera vel sérmerkt, svo hægt sé að greina á milli
þeirra án þess að opna pokana.
ö. Auk þess verða seljendur að gefa Grænmetisverzlun Ríkisins aðr-
ar upplýsingar viðvíkjandi vörunni, eflir því sem óskað er, og
verða má til þess að upplýsa um heilbrigði kartaflanna, gæði og
geymsluþol.
Grænmetisverslun Ríkisins.