Samtíðin - 01.09.1937, Qupperneq 31

Samtíðin - 01.09.1937, Qupperneq 31
SAMTÍÐIN 27 p&fyax jandíMi k&mjux Framh. Hvernig á að skýra fyrirbrigðið William Blake. Hann var sonur sokkasala. Sumir sögðu, að hann væri brjálaður. Aðrir kölluðu liann snilling. Slíkt mun liafa verið sanni nær. Gáfur Blake’s voru miklu veigameiri en sálarveikleiki lians. Ekkert hjal um brjálæði hefði get- að réttlætt það, að hafna verkum hans af þeim ástæðum. Myndir hans munu geymast og kvæði lians líka. Hann kvaðst sjá „engla“ — og hann málaði þá. George Eliot skrifaði Silas Mar- ner, þegar hún var önnum kafin við að rila langa skáldsögu. Hún kvaðst stundum hafa verið „gripin af einbvcrju ósjálfráðu", þegar hún var að skrifa. Hugh Walpole segist ekki hafa kannasl neitt við höfundarmark sitt á einni af skáldsögum sinum, þegar hann var að lesa ])rófarkir af henni. Walpole segist ennfrem- ur þannig frá: — Fj'rir nokkrum árum dvaldist ég, ásamt föður mínum og systur, í gistihúsi einu í Sviss. Ég var þá hálfnaður við að skrifa langa skáld- sögu og hugsaði ekki um neitt ann- að. Öðru livoru sá ég í borðsalnum ófriðan, önuglyndan kvenmann, sem altaf var einsamall. Kvöld eitt sá ég konu þessa rísa úr sæti sínu og ganga að öðru borði, þar sem sat forkunnar fögur stúlka. Stúlk- an hafði fallega perlufesti um háls- inn, og fór konan að handleika perlurnar og tala um þær. Þá brá svo við, þegar ég sat þarna, að ég varð gagntekinn af hugmynd — einhverju, sem ég gat ekkert við- nám veitt, sem var sjálfum mér yf- irsterkara. Ég sá þessa konu í sér- stöku ásigkomulagi og þóttist skynja, að hana langaði afarmikið til að eignast einhvern fallegan hlut, sem einhver annar ætti. Skipti það nú engum togum, að ég fór rakleitt inn í berbergi mitt og tók að skrifa sögu um þessa konu. Ég skrifaði bvildarlaust frá morgni til kvölds,

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.