Samtíðin - 01.04.1941, Blaðsíða 21

Samtíðin - 01.04.1941, Blaðsíða 21
SAMTÍÐIN 17 sér lélega niaka, og börnin verða fvr- ir slæmum áhrifum í uppvextinum. En allt um það er ætternið auðsjá- anlega ærið þungt á metunum. Þetta bafa þeir, sem fást við kynbætur jurta og dýra fyrir löngu séð og við- urkennt. En litið er gert að því að færa sér þessa reynslu í nyt við æðstu skepnu jarðarinnar, enda erfitt um vik, þar eð einstaklingurinn er að jafnaði meira metinii en heill og bag- ur þjóðfélagsins. Talsvert er samt hægt að gera. Sums staðar er farið að gera einstaklinga með mikla arfgenga galla ófæra til að auka kyn sitt. Fræðsla um helztu lögmál erfðafræð- innar getur gert mikið gagn. Ætti að kenna undirstöðuatriði erfða- fræðinnar i skólum. Örstutt ágrip er kennt í Menntaskólunum nú þegar, en handhæga hók á íslenzku vantar e*in þá. Menntamálaráð hefir látið gefa út góða líkamsfræði. Alþýða manna mundi fagna því, ef heilsu- fræði og erfðafræði sigldu í kjölfarið. SVO VIRÐIST sem fiskar hafi enn ekki uppgötvað það, að Ermar- sund sé til. Með því að atliuga fiski- göngur hefur komið í Ijós, að fiskur- *un. leggur árlega leið sina, sunnan f*r Atlantshafi til Norðursjávar. Uorður með vesturströnd írlands fyr- *■' norðan Skotland og suður m.eð austurströnd þess inn í Norðursjó- *nn. Fylgir hann þar leið forfeðra sinna, sem fóru hana fyrir þúsund- **m ára, er Bretland var enn sam- vaxið meginlandi Evrópu. MÖLFLUGUR MÖLFLUGUR lifa venjulega að- eins örfáa daga. Vísindamaður heldur því fram, að mölflugur geti gefið frá sér hljóð. Með því að vefja þykkum um- húðapappír utan um fatnað, má verja hann fvrir mölflugum. Þær éta sig ekki í gegnum pappírinn. Mölfluga hefur nálega 27 þúsund augu. Lirfa mölflugunnar étur fæðu, sem er 12 sinnum þyngri en hún sjálf. Mölflugur forðast viss ilmvötn og snerta því ekki á fatnaði, sem þess- um ilmvötnum hefur verið skvett yfir. Ein af ástæðunum fyrir því, að mölflugur eru ekki ljósar eins og fiðrildi er sú, að þær fljúga að næt- urlagi. Arið 186!) flutti lyfjafræðingur nokkur vissa mölflugutegund til Bandarikjanna. Það slys vildi til, að ilát með eggjum þessara möl- flugna opnaðist af völdum livass- viðris. Afleiðingin er árlegar skemmdir á ökrum, er nema mörg- um miljónum dollara. — Maðurinn minn er horfinn. Hann fór i'it í fyrradag og hefur alls ekki sézt siðan. Hér er mijnd af honum. Þið megið til með að finna hann. Ég get ekki lifað án hans. Lögregluþjónn (lítur á mgndina): Er gður alvara, frú.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.