Samtíðin - 01.11.1946, Page 19

Samtíðin - 01.11.1946, Page 19
SAMTÍÐIN 15 sjónarmið, sem liér kemur fram, sýnir, að Islendingum var engin vanþörf á að eignast háskóla liér á landi, þar sem unnt væri að velja sér próf-viðfangsefni úr fræðum okkar eftir íslenzkum geðþótta. Enda þótt hið danska sjónarmið í þessum efnum hafi að vísu breytzt nokkuð síðan um 1895, er dönsk- um fræðimönnum áreiðanlega ekki tamt af ofmeta hókmenntir okkar eftir 1350. Bókaflóðið, sem til Is- lands hefur streymt frá Daiimörku, síðan samgöngur hófust milli land- anna, s.l. ár, hefur skolað hingað lit- illi bók, Levende nordisk Littera- tur, eftir dr. Ilakon Stangerup. Þessi bæklihgur fjallar að vísu um is- lenzkar fornbókmenntir á hálfri elleítu hlaðsíðu, og virðist þar yfir- leitfc ekki vera hallað réttu máli, enda fer höfundur eftir áðurnefndri bókmenntasögu Jóns próf. Helga- sonar. En ekki þykir höfundi taka ]jví að geta þess, að hér hafi orðið til neinar bókmenntir, sem lifa. síð- an fornbókmenntir okkar voru i let- ur færðar. Ætti hann þó að kann- ast við Passíusáhna Hallgríms Pét- urssonar og Vidalinspostillu af rit- um dr. Arne Mpllers um þessi höf- uðrit okkgr frá 17. öld. 17. öldin er að vissu leyti athyglivert blóma- skeið islenzkra Ijókmennta. Og á 16, öld fóru íslendingar langt fram úr Norðmönnnm á bókmenntasviðinu. Þá eignuðumst við prentsmiðju, löngu á undan þeim, sálmabók, bibliu og kirkjumál og sveigðum erlendan áhrifastraum undir þióð- lega menningu. Islenzkar núliðar- bókmenntir afgreiðir dr. Stangerup í 11. kafla bókar sinnar með orð- um, sem réttast þykir að tilfæra hér á móðurmáli hans sjálfs. Hann seg- ir þar: „Island, som havde været næsten tavst siden Sagaens Dage, frembringer ingen Digtere af fælles- nordisk Betydning, nogle af Dem skriver paa Dansk, en enkelt paa Norsk, Besten maa oversættes — og bliver oversat.“ Þessi ummæli bera vott um frá- bæra vanþelckingu á hókmennta- starfsemi íslendinga, eftir að forn- sögur okkar voru samdar, og furðu kynlegt mat á nútímaskáldum okk- ar. Þess skal getið, að bók Stange- rups er gefin lit að tilhlutun danska stúdentafélagsins. AÐ, SEM hér hefur verið drep- ið á, ætti að vera okkur nokk- ur hvöt til þess að færa frændþjóð- um okkar á Norðurlöndum, og raun- ar öðrum þjóðum lika. heim sann- inn um, að íslendingar hafi hvergi nærri verið athafnalausir um sköp- un bókmennta — ekki sofið nein- um Þvrnirósusvefni i þeim efnum — frá því um 1350 og fram til þessa dags. Þetta verður vitanlega með engu móti betur gert en með samn- ingu og myndarlegri útgáfu á itar- legri, islenzkri bókmenntasögu. Auð- vitað yrði sú bók fyrst og fremst samin handa íslendingum sjálfum, enda eigúm við alls enga sliká prentaða bókmenntasögu á islenzku. Svo mikið hefur verið ritað um fornbókmenntir okkar á vmsum málum, að ekki ætti að vera mikl- um vandkvæðum bundið að skrifa sögu þeirra. Má i þvi sambandi. auk

x

Samtíðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.