Samtíðin - 01.11.1946, Page 20

Samtíðin - 01.11.1946, Page 20
16 SAMTÍÐIN þeirra rita, sem áður er getið, nefna hina miklu, norsku bókmenntasögu eftir þá Francis Bull, Fredrik Paas- che og Á. H. Winsnes (5 binda verk, Oslo 1924—37) .1 1. bindi þessarar bókmenntasögu, er nefnist: Norges og Islands litteratur indtil utgangen av middetatderen, hefur Paascbe ritað um lilut Islendinga í fornnor- rænum bókmenntum af sýnu meiri sanngirni en flestir landar hans bafa áður gert, og að því er virðist, án hinnar óviðkunnanlegu, norsku ásælni í okkar garð. En vitanlega nær ekki neinni átt, að við búum að þessu erlcnda vei’ki, enda virðist mega bæta þar um sumt, eins og gengur, m. a. um kaflann um Eddu- kvæðin, og ýmsar nýjar atliuganir bafa verið gerðar, siðan það birtist. En þegar fornbókmenntum okkar lýkur, vandast málið, og einkum þó að ])vi, er tekur til 17. og 18. aldar. Skortir þar um margt undirbúnings- rannsóknir, sem telja verður mikils- verðan undanfara bókmenntasögu- i’itunar. Mikið af bókmenntum þess- ara alda liggur óútgefið og lítt kann- að i fjölda handrita. £ BÓKASKÁPNUM mimim eru gevmdar nokkrar stílabækur, sem ég lief miklar mætur á. t þeim er „Ágrip af islenzkri bókmennta- sögu frá miðri 14. öld til vorra daga“, eftir próf. Sigurð Nordal, skrifað eftir þvi, sem bann las okk- ur, nemendum sínum i heimspeki- deild Háskóla tslands, fyrir á ár- unum 1922—26. — 535 bls. eru með minni hendi, eða aftur að Hallgrími Péturssyni, en þá tekur við rithönd eins af félögum mínum, sem hóf nám í deildinni um það leyti, sem ég útskrifaðist þaðan, og endar bandrit bans á Jóni biskupi Yida- lín. Ég minnist þessara bókmennta- sögu-uppskriftarstunda bjá Nordal með ánægju. Hver stund færði mér nýja þekkingu, sem mig bafði áður að mestu skort. Á fyrsta námsári mínu við háskólann bafði ég lesið bókmenntasögu Finns .Tónssonar bina minni um fornbókmenntirnar. Þar sem benni lauk, var mér líkt farið og ferðamanni, sem kominn er með vagn sinn á vegarenda. Hann á enn óraleið fyi’ir böndum, en framundan er veglaust torleiði. Yf- ir þetta land, sem erlendir bók- menntafræðingar kalla eyðimörk, af því að þeir þekkja ekki bók- menntagróður þess, eða vilja ekki við bann kannast, tók Sigurður Nordal sér fyrir hendur að gerast leiðsögumaður okkar stúdentanna. Með frábærri smekkvísi ruddi liann litla nemendabópnum sinum viku- lega álitlegan brautarspöl. Allt, sem hann snart með töfrasprota þekk- ingar sinnar og frásagnarsnilldar, lifnaði við og varð bæði aðlaðandi og skemmtilegt. Enda þótt bonum hefði að sjálfsögðu ekki unnizt tóm til að kanna öll liin fjölmörgu, ó- prentuðu rit þeirra alda, sem bók- menntasögu bans var ætlað að ná vfir, virtist slikt ekki koma 'að sök. Olli bvi fyrst og fremst frábær glöegskvgni bans á það, bvað væru aðalatriði í þessu sambandi. En bin staðgóða, evrópska menntun bans og yfirsýn barg verki bans frá því

x

Samtíðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.