Samtíðin - 01.05.1947, Side 26

Samtíðin - 01.05.1947, Side 26
22 SAMTlÐIN * Islenzkar mannlýsingar XXI. QÉRA JÓN Konráðsson á Mælifelli lýsir meistara Hálfdani Einars- syni (f. 1732, d. 1780) á þessa leið: „Mag. Hálfdan var einhver með hinum mestu iðjumönnum alla sína tíð og fékk furðanlega miklu afkast- að, oft á sluttum tíma. Skyldu menn varla svo hitta hann, þá engi var hjá honum, að liann væri ekki ann- aðhvort að lesa eða skrifa. Jafnframl var hann þá svo glaðvær, ljúfur og viðlátinu, þá til hans var komið, sem hann hefði ekkert að hugsa eða við að vinna. Hann hafði og sérlegl gaman af skemmtilegum viðræðum, jafnvel spilum og tafli, auk þess sem hann með góðum vinum gladdi sig líka með víndrykkju, án þess* neinn merkti, að' þau mörgu emhæltisverk og olt þar hjá vandasöm, er hann átti að gegna á sínum síðari árum, forsómuðust eða færi i vanrækt þar fyrir, því að þessu afstöðnu var liann óðar kominn til síns fyrra verks aft- ur. Hann stóð jafnan í hréfaskiptum við flesta lærða menn hér á landi, sem of langt væri upp að telja, og var það oftast um lærdómselni. Fá- ir af löndum hans hygg ég á hans seinustu árum hafi svo útgefið sín lærdómsrit, er nokkuð var í varið, að ekki hafi ráðfært sig við liann þar um og sumir sent honum þau til yfirskoðunar. ,. . Magister Hálf- dan var liettur maður í andlitsskapn- aði og fríður sýnum, smámenni að vexti, en gerðist skjótt þrekinn vel og holdugur; hvatur i framgöngu, Hc^utn jatfhah fyrirltyyjaiuii allar tegundir af vefnaðar- vörum eða útvegum þær heint frá verksmiðjum í Bretlandi, Belgíu, Hollandi, Frakklandi, Tékkóslóvakíu, Sviss og Bandaríkjunum. Heildverzlunin ÖLVIR H.F. Grettisgötu 3. Símar. 5774 og 6444.

x

Samtíðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.