Samtíðin - 01.05.1956, Blaðsíða 7

Samtíðin - 01.05.1956, Blaðsíða 7
4. hefti 23. árg, Nr. 222 Maí 1956 TlMARIT TIL SKEMMTUNAR OG FRÓÐLEIKS SAMTIÐIN kemur út mánaðarlega nema i jan. og ágúst. Ritstjóri og útgefandi: Sigurð- ur Skúlason, Reykjavík, simi 2526, pósthólf 75. Árgjaldið, 45 kr. (erl. 55 kr.), greiðist fyrirfram. Áskriftir miðast við síðustu áramót. Áskriftargjöldum veitt móttaka i Bæk- ur og ritföng hf., Austurstræti 1. — Félagsprentsmiðjan hf. (ju.nnar iion: ÍH>fjar við öðlumst shiiyrði til vörusýninya— FORUSTUGREIN Gunnars J. Friðriks- sonar framkvæmdastj. i 2. hefti Samtíðar- rnnar, um gagnsemi ísl. vörusýninga er- lendis og nauðsyn þess að merkja útflutn- ingsvörur okkar, hefur vakið athygli. Ætl- unin var, að Gunnar birti hér bráðlega aðra grein um nauðsyn vörusýninga hér á landi, en fyrir þeirri hugmynd hefur hann að undanförnu beitt sér í hópi ísl. 'ðnrekenda. Nú virðist vera að komast skriður á það mál, og báðum við Gunnar Því að láta í ljós álit sitt á þeim skilyrðum, er skapazt mundu við það, að sýningar- skálar og svæði umhverfis þá yrði opnað 1 Reykjavík. Hann sagði: „Samstarf hefur nú tekizt með for- váðamönnum ýmsra helztu atvinnuvega °kkar annars vegar og Reykjavíkurbæ og 'þróttahreyfingunni hins vegar um að krinda í framkvæmd hugmyndinni um allvíðáttumikið vörusýningarsvæði í höf- uðstaðnum, þar sem reist yrði hús mikið, nota mætti bæði til íþróttaiðkana og vórusýninga. Þarna mundu auk þess rísa sniærri skálar, sem eingöngu væru ætlaðir vórusýningum, en á sýningarsvæðinu mundu skapast skilyrði til sýninga á stór- um tækjum auk landbúnaðarsýninga. Þegar þessi hugmynd er orðin að veru- leika, en þess verður vonandi ekki langt að bíða, munu skapast hér nýir og stórum hættir möguleikar til að kynna fram- leiðslu ísl. atvinnuvega, en það má kalla þjóðarnauðsyn, að almenningur geti jafn- an fylgzt með getu þeirra í þeim efnum og hvar þeir eru á vegi staddir. Hingað til hefur ástandið verið þannig, að ekki hef- ur verið unnt að efna hér til vörusýninga, nema eitthvert stórhýsi hafi verið í smíð- um, sem viðlit var að nota í því skyni. Auð- vitað hafa þær sýningar, vegna óhentugra skilyrða, orðið óþarflega kostnaðarsam- ar. En gagnsemin hefur reynzt ómetanleg. Iðnsýningin mikla í Iðnskólahúsinu á Skólavörðuhæð haustið 1952 varð ísl. iðn- aði t. d. ómetanleg lyftistöng, af því að hún opnaði augu alþjóðar fyrir því, hvers hann væri orðinn megnugur. Síðan hef- ur ekkert verið aðhafzt hér í þessa átt, nema hvað vörur hafa að venju verið hafðar til sýnis í búðargluggum. í væntanlegum sýningarskálum höfuð- staðarins munu cinnig skapast skilyrði til menningarlegra sýninga á borð við Reykja- víkursýninguna í Þjóðminjasafnshúsinu um árið, listsýningar, atómsýninguna, sem haldin var í Listamannaskálanum á dög- unum, o. s. frv. Enn fremur verður þá unnt að sýna hér erlendar vörur, sbr. rússnesk-tékknesku vörusýninguna sl. sumar. Aðrar menningarþjóðir hafa löngu skilið nauðsyn hvers konar sýninga, og má í því sambandi nefna Leipzig-sýning- arnar (Leipziger-Messe), sem eru æva- gamlar. Á ýmsum sýningarsvæðum er- lendra borga er verið að sýna vörur mest- an hluta ársins. Verkefnin yrðu hér marg- vísleg eins og þar.“

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.