Samtíðin - 01.05.1956, Blaðsíða 17

Samtíðin - 01.05.1956, Blaðsíða 17
SAMTÍÐIN 13 ®W ' - ZDB. SAGA SAMTIÐARINNAR 1 ií ■ Ægileg nótt BJAEMANA FRÁ ELDINUM bar hátt við svart himinhvolfið. Dökkir likamir dansandi negranna gljáðu i eldskininu og mynduðu kynlega reik- ular og ævintýralegar skuggamyndir af glóðum og svörtu liörundi. Berg- mál af truimbuslætti hljómaði skrykkjótt í þögn frumskógarins. Iðnir hnefar hófust og skullu í sí- fellu taktfast á þanda bjórana í þess- Um trumbum. Söngur kvennanna ómaði ýmist livellur eða mjúkur á öldum tónanna í næturkyrrðinni. Loftið var þungt og dauðakyrrt og vakti manni lclígju. Allt var mettað óró og tryllingi þess frumstæðis, sem einkennir hátíðasamkomur og næt- Urdansa hjá Afríkunegrum, hvort heldur er inni í fruunskógunum eða í grennd við þorp þeirra . .. Liðsforingjarnir þrír, sem sátu þarna úti fyrir tjaldinu, höfðu góða stund virt þennan sjónleik fyrir sér steinþegjandi. Sá yngsti starði tindr- andi, sóttlieitum augum á það, sem fram fór, og hreifst með af trylltum, háttbundnum hreyfingum dansend- anna og þessum sífellda örvandi hljómi, tamtam, tam, tamtam, sem harst frá trumbunum. Svo sneri liann sér að félögum sínum og mælti: ,,Ed- þetta ekki furðulegt? Aldrei hefði ég lialdið, að það gæti verið svona hrífandi, beinlínis töfrandi. Ég er sannarlcga feginn, að ég fór hing- að með ykkur og mér veittist kostur á að verða þess aðnjótandi. Þetta er blátt áfram áfengt að vissu leyti, ef þið skiljið, hvað ég á við. Eða hvað segir þú, Hilton? En þú liefur nú reyndar séð og lieyrt þetta svo marg- oft áður, að það hefur sjálfsagt ekki nærri eins mikil áhrif á þig og mig.“ „Víst hef ég séð það margoft áður, en ég er alveg sammála þér um, að það er stórkostlega lirífandi, og ég þreytist aldrei á að horfa á þessi frumstæðu hátíðahöld. Ef til vill er það undirmeðvilund mín, leifar af einhverri fjarlægri fortíð, sem vakn- ar í brjósti mér og þráir að taka þátt i þessu. Hvað veit ég um það? Hvað segir þú um það, Smith? Þú virðist ekki vera neitt sérlega hrifinn af öllu þessu ? Smith kapteinn leit upp. Hann var foringi þessa fámenna leiðangurs, hár maður og grannvaxinn, dökkur á hörund, hertur af margra ára hita- beltisvist, gagnkunnugur öllum kyn- flokkum frumbyggjanna frá yztu nesjum til innstu dala. „Ég er alveg á sama máli og þið, að það sé blátt áfram hrifandi að sjá þá, sagði liann. „Það er hrífandi í aðra röndina og hættulegt í hina. Kenndir, sem maður liafði enga hug- mynd um, vakna í brjósti manns. I fyrsta sinn, sem ég horfði á þetta, lá við sjálft, að illa færi fyrir mér, og síðan hef ég gætt þess vandlega að láta ekki heillast af því eins og þá.“ „Þetta var fróðlegt að lieyra, en livað áttu við með því, að þetta geti orðið hætlulegt? Áttu við, að þeir innfæddu kunni að æsa sig svo upp.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.