Samtíðin - 01.05.1956, Blaðsíða 10
0
SAMTÍÐIN
5. Hún hefur reynzt eigingjörn úr
hófi fram.
6. Hún hefur talað illa um fólk,
einkum vinkonur sínar.
7. Hún hefur reynzt eyðslusöm og
skuldað hér og hvar.
8. Hún drekkur.
9. Hún hefur reynzt uppvöðslusöm
og vanið sig á það.
10. Hún er allt of rómantísk.
Ameríski hj ónabandssérfræðingur-
inn liafði tal af 5200 mönnum, sem
yfirgefið höfðu unnustur sínar, vegna
þess að þeir þoldu ekki fyrrnefnd ein-
kenni i fari þeirra. Aðspurðir, hvern-
ig þeir vildu, að eiginkonur þeirra
væru, svöruðu þeir: ástúðlegar, lirein-
skilnar, hispurslausar.
IÐRANDI skrifar: „Kæra Freyja.
Hvað á ég að gera? Eftir hálfs annars
árs hjónband í fullkomnu samlyndi
hefur okkur hjónunum lent voðalega
saman. Það er rúm vika síðan, og ég
er alveg miður mín. Við, sem aldrei
höfðum látið styggðaryrði falla hvort
til annars, rifumst þarna eins og
hundar. Aðdróttununum ætla ég ekki
að reyna að lýsa. Hann I)ar mér allt
það versta á brýn, og þá missti ég alla
stjórn á mér og sagði, að nú sæi ég
reglulega eftir því, að ég skyldi ekki
hafa gifzt manninum, sem ég hefði
verið trúlofuð, áður en ég asnaðist til
að giftast honum. Þessu hefði ég auð-
vitað ekki átt að glopra út úr mér,
því þegar hann heyrði það, stein-
þagnaði hann, og þó við höfiun að
Vel ldædd kona kaupir hattana hjá
HATTAVERZLUN ÍSAFOLDAR H.F.
Bára Sigurjónsdóttir,
Austurstræti 14. Sími 5222.
nafninu til samið frið, finn ég ósköp
vel, að hann er allur annar en áður.
Þú veizt ekki, livað ég iðrast eftir
þetta reiðikast. Nú finnst mér ég hafa
hagað mér svo heimskulega. Hvað á
ég að gera ?“
SVAR: Ef þú getur ekki lagt hend-
urnar um hálsinn á manninum þín-
um, beðið hann fyrirgefningar og
skýrt viðhorf þitt fyrir honum, skaltu
skrifa honum hréf og tjá honum þar
rólega og ástúðlega tilfinningar þín-
ar. Ef þið hafið hingað'til lifað i full-
kominni ástarsælu, ætti þessi demba
ekki að þurfa að eitra framtíð ykkar.
Mundu, að vorgróðurinn hefur gott
af skini og skúrum á víxl. Þetta hlýt-
ur að jafna sig.
Þín Freyja.
ic Osta-brauð
75 g rifinn ostur, 25 g shijör, 1
matskeið skorin steinselja og gras-
laukur, 1 glas sherry eða ávaxtasafi,
3 egg. — Smjör, safi, ostur og græn-
metið er brætt saman við hægan hita,
og er hrært stöðugt í, þar til osturinn
er bráðinn. Þá er eggjunum hellt, vel
saman hrærðum, út í ostasósuna og
hrært í, þar til hún fer að þykkna.
Síðan er henni hellt vfir ristaðar
hrauðsneiðar, og er þetta mjög ljúf-
fengt.
ÞÚSUNDIR íslenzkra kvenna lesa
kvennaþætti Samtíðarinnar með vaxandi
athygli. Sendið okkur áskriftarpöntunina
neðst á bis. 2 strax í dag-, og við póst-
sendum yður blaðið tafarlaust ásamt 1
eldri árgangi í kaupbæti.
Kraftur hins sunnlenzka gróðurs
býr í smjörinu og ostunum frá okkur.
Mjólkurbú Flóamanna.