Samtíðin - 01.05.1956, Page 14
10
SAMTÍÐIN
sem hann reisti handa henni þarna
á hæðinni liandan við þorpið. Og oft
hefur hún sagt við mig síðan: „Hann
hefði getað orðið stórhóndi, Mikjáll,
ef liann liefði ekki þurft að eyða
kröftunum í allan þennan söng.“
„En ekki hefur hún séð eftir því,“
varð mér að orði, „því að röddin i
manninum var milljónavirði."
„Milljóna og ekki milljóna,“ sagði
Mikjáll með einni af þessum rokum
sínum. „Varð hann ekki að þeytast
endanna á milli i veröldinni, meðan
hann lifði? En veiztu, hvað liann
sagði við mig, ekki löngu áður en
liann sofnaði svefninum langa? Þá
sagði liann: Mikjáll, mikið er nú ann-
ars gott að koma hingað aftur og
mega vera í friði hjá henni Nóru
sinni. Hvar sem ég fer, lilaða þeir á
mig lofi og heiðra mig. Þarna skrifa
þeir um mig íhurðarmiklar greinar,
en allt, sem ég þrái, er að setjast nið-
ur, fá (mér eitt glas og rabha svo
við þá.
En allt þetta liúrrum-hæ er ég laus
við hjá henni Nóru minni. Hún minn-
ist aldrei aukateknu orði á röddina í
mér eða livort ég syngi vel eða illa.
Hún botnar nefnilega hvorki upp né
niður í þessu öllu saman, Mikjáll
minn góður . . . Og það er leyndar-
dómurinn að hamingju okkar, því
hún hefur verið alveg gersamlega
laglaus, frá því hún fæddist.“
SAMTÍÐIN er tímarit allra fslendinga.
Húsgagnasmíðastofan Laugaveg 34B
selur ávallt góð og ódýr húsgögn. Tekur
einnig gömul húsgögn til viðgerðar.
Fljót og góð afgreiðsla. Sími 81461.
Aíhygliverð
leiksýning
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ hefur að undanförnu
sýnt sjónleikinn Vetrarferð eftir Clifford
Odets, sein ísléndingum er að góðu kunn-
ur, siðan leikflokkurinn, Sex í bíl, sýndi
Katrín Thors og Rúrík Haraldsson í
„Vetrarferð".
leikrit hans: Brúin til mánans. Vetrar-
ferð gerist að mestu leyti að tjaldabaki
í leikhúsi og lýsir baráttu' leikstjóra
(Rúríks Haraldssonar) og eiginkonu
(Ivatrínar Tliors) fyrir velferð drykkfelds
leikara (Indriða Waage), en sýningin
hvílir á herðum þessara þriggja leikara,
sem fara prýðilega með hlutverk sín. Katr-
ín Thors er þarna mjög vaxandi leikkona
undir ágætri leiðsögu Indriða Waage.
Vitsmunir Odets glitruðu i mörgum
snjöllum setningum, sem nutu slp vel í
þýðingu Karls ísfelds. Leikur þessi á
skilið góða aðsókn.
Sigurður Reynir Pétursson
hæstaréttarlögmaður
Austurstræti 14 II. hæð. Sími 82478.