Samtíðin - 01.10.1959, Blaðsíða 9
SAMTÍÐIN
5
Ef aldrei þú kemur, kæri vinur,
klökkum huga ég um þig jafnan spyr.
Meðan laufið að hausti aftur hrynur,
er minn hugnr þér bundinn eins og fyr
Sérhver dajpir svo undur lengi líður,
er ég lít yfir horfna veginn minn.
En ást mín eftir ástum þínum bíður,
og ég veit, að þú kemur eitthvert sinn.
Meðan blærinn í bjarkarlaufum syngur,
bíð ég þögul og dreymin eftir þér.
Engan hring hefur þú fært á minn fingur,
ei fundið ástina, sem ég til þín ber.
Útlaginn
Texti: Jón Sigurðsson. Óðinn Valdimars-
son syngur á E.P. plötu hjá Islenzkum
tónum.
Upp undir Eiriksjökli
á ég i helli skjól.
Mimdi þar mörgum kólna,
mosa er þakið ból.
Útlagi einn i leyni
alltaf má gæta sín,
bjargast sem bezt í felum
breiða’ yfir sporin mín.
Ungur ég fór til fjalla,
flúði úr sárri nauð.
Ur hreppstjórans búi hafði
ég liungraður stolið sauð.
«
En hann átti hýra dóttur,
sem horfði ég tíðum á.
Nú fæ ég aldrei aftur
ástina mina’ að sjá.
Við erum með á nótunum
Hljómplötur og músíkvörur.
Afgreiðum pantanir um land allt.
Hljóðfæraverzlun Sigríðar Helgadóttur,
Vesturveri, Reykjavík. — Sími 11315.
Stundum mig dreymir draimia,
dapurt er líf mitt þá.
Aldrei mun lítill lófi
Ieggjast á þreytta brá.
Ef til vill einhvern tima
áttu hér sporin þín.
Grafðu í grænni lautu
gulnuðu beinin mín.
Viðlag:
Upp undir Eiriksjökli
átti í helli skjól.
Mundi þar mörgum kólna,
mosa er þakið ból.
MÁTTUG ORÐ
♦ ÉG HEFI þá trú, að, hver sá,
sem ástundar nám og starf af lifandi
áhuga og finnur þar sjálfan sig, hljóti
fyrr eða síðar að ryðja sér braut og
verða nýtur bæði sjálfum sér og öðr-
um. — Þórarinn Björnsson.
4 MARGIR MENN mundu hlusta
á rödd samvizku sinnar, ef þeir gætu
sagt henni, livað hún ætti að segja.
4 KONUM GEÐJAST AÐ sterk-
um, fámálugum karlmönnum; þær
halda, að þeir muni hlusta á þær.
4 ÞU GETUR EKKI gert góð-
verk of snemma, því að aldrei er
að vita nema það sé orðið um sein-
an. — Emerson.
4 VERTU BROSLEITUR, og
fólk mun furða sig á, í hvaða lukku-
pott þú hafir dottið.
Raflagnir. — Viðgerðir.
Vönduð vinna. — Fljót afgreiðsla.
RAFTÆKJAVINNUSTOFA
ÞORLAKS JÓNSSONAR H.F.
Grettisgötu 6. — Sími 14184.