Samtíðin - 01.10.1959, Qupperneq 10
6
SAMTÍÐIN
Framleiðum kápur og dragtir úr tízkuefnum eftir sniðum frá
þekktustu tízkuhúsum heims. — Sendum gegn póstkröfu.
KAPAN H.F. Laugavegi 35. — Sími 14278.
Kvennaþættir Samtíðarinnar ♦ l\itítjóri Jreyla ♦
■Jt Parísartízkan næsta vetur
HIN NÝJU efni vetrartízkunnar
eru þétt og hlý, en samt mjög létt í
sér. Þessi eru hin lielztu:
• Ullarefni, grófgerð í áferð, en
mjúk að vera í.
• Ull og mohair (þ. e. langhærð
ull) mikið blandað saman.
• Efni, notuð jafnt á réttunni
sem röngunni, stórköflótt annars
vegar, en einlit liins vegar.
• Efni með hænsnalappa-
mynztri, oft mjög stórgerðu, skozku
mynstri og Prince de Galas.
• Kasmír, ofið með silki.
• Ullarefni með alls konar
prjónlesáferð.
• Þykk silkiefni með fögrum
mynztrum.
• Ullarflauel er nú aftur í tízku.
TlZKUFATNAÐURINN er stór-
köflóttur. Mitti er á réttum stað,
pilsin 40 cm frá gólfi, axlir ávalar.
Frakkar og kápur eru með stórum
kraga og dragtarjákkar með fremur
rúmum, heinum ermum. Ermar á
kvöldkjólum eru nú aftur langar.
Kjólar eru flegnir allt niður í mitti
á baluð. Þeir eru einnig með alls kon-
ar linöppum og hnepptir á marga
vegu.
Frakki 9/10 sídd, samkv. nýjustn Par-
ísartízku. Kraginn er úr svörtu astrakan.
☆ ☆