Samtíðin - 01.10.1959, Síða 11
SAMTÍÐIN
7
Ermalausir kjólar eru með margs
konar stutttreyjum eða „ermasjöl-
um“. Þröngir kjólar eru oft með síð-
um jökkum og jafnvel belti. Kvöld-
kjólar eru mjög oft rykktir að neðan
(með ,,volöntum“).
Kápur eru með djúpum fellingum
frá öxlum. Pils eru þröng, og við
þau eru notaðar kápur eða frakkar,
sem eru styttri en þau (7/8 að sídd).
Belti eru breið, og skinn eru mikið
notuð á dragtir og kápur. Breiðir
kragar, svonefndir „pílagrímskrag-
ar“ eru bæði á kápum og pelsum.
Tizkulitirnir eru: allir brúnir litir,
einnig á kvöldklæðnaði, drapplitur
og grár litur, en líka er mikið um
bláa, svarta og hvíta liti. Sterkgrænir
og fjólubláir litir eru mikið notaðir
saman.
Til flugfreyjanna eru gerðar
miklar kröfur
ÞOTUÖLDIN gerir geysilegar kröf-
ur til þeirra stúllcna, sem vilja verða
flugfreyjur. Hér er stuðzt við kröfur
eins stærsta flugfélags heimsins, PAA
(Pan American Airways). Það vill,
að stúlkurnar séu:
laglegar og aðlaðandi,
hraustlegar í útliti,
mjög vel vaxnar,
ungar og hreinlegar,
hafi fallega húð
og séu yndislegar.
Þessir kostir ráða þó engan veginn
úrslitum. Framkoman, skapferlið og
Sigurður Reynir Pétursson
hæstaréttarlögmaður.
Austurstræti 14. Símar 22870 og 19478.
þol í vökum og erfiði er mikilvægara.
Þó má alls ekkert skorta af því, sem
áður er getið. Tennurnar einar geta
fellt sérhverja stúlku í samkeppn-
inni um flugfreyjustarfið. Ef þær eru
ekki hvítar og liraustlegar, kemur
stúlkan alls ekki til álita. Með öðrum
orðum: Sé stúlkan ekki falleg, ynd-
isleg og vel vaxin (viss hlutföll eru
áskilin: hæð 1.58—1.70 m, þyngd
50—01 kg. — Sé stúlkan t. d. of sver
BUTTERICK-snið nr. 9073 í stærðummi
8—14. Fallegir skólakjólar úr ullarefnum.
Uitlu teikningarnar neðan við sýna, livern-
ig kjólarnir líta út að aftan. Sniðin fást
hjá SÍS, Austurstræti og kaupfélögunum.
VEL KLÆDD kona kaupir hattana í
Hattaverziuninni „Hjá Báru”,
Austurstræti 14. Sími 15222.