Samtíðin - 01.10.1959, Blaðsíða 14
10
SAMTÍÐIN
DRAUMARÁÐNINGAR
• SJAL. Ef stúlku dreymir, að
hún sé með sjal eða slæðu, á hún í
vændum að eignast innan fárra vikna
nýjan elskhuga eða vin.
• SILFUR. Það boðar oft veik-
indi að dreyma silfur. Einnig getur
það boðað félaga.
• SJUKRAHÚS. Það veit á
bætta aðstöðu þína í lífsbaráttunni,
ef þig dreymir, að þú komir gestur
i sjúkrahús.
• STAM. Ef þig dreymir, að
stamandi maður ávarpi þig, áttu ó-
vænta hamingju eða beiður í vænd-
um.
• UR. Það veit á velgengni eða
auðsöfnun, ef þig dreymir úr. Þá
mun lánið leika við þig bæði í at-
böfnum þínum og hjúskap. En ef úr-
ið stanzar í draumnum, máttu búast
við, að hamingjan reynist þér hverf-
ul.
„Líttu betur í kringum þig,“ kallaði
skellinöðruriddari, um leið og hann
slengdi gangandi manni um koll á göt-
unni.
„Nú, á ég von á þér ajtur?“ stundi
manngarmurinn allur blár og marinn.
„Mér þykir það leitt, en jorstjórinn
sagði mér að segja yður, að hann vœri
ekki við.“
„Allt í lagi. Segið honum bara, dð
það gleðji mig, að ég skyldi ekki koma
í dag.“
LiESENDUM „Samtíðarinnar" fjölgar ört.
Sendið okkur áskriftarbeiðnina á bls. 32,
og þér fáið tvo árgunga — 640 bls. — fyr-
ir 65 kr.
MUXDIL, AÐ:
• IMYNDUNARAFL lconunnar
er bæfileiki hennar til að lesa milli
— lyganna.
• FULLKOMINN skortur á
sjálfsvirðingu er móðgun við höfund
lífsins.
• HRAÐINN er orðinn það mik-
ill í veröldinni, að meðan þú segir:
„Þetta er ómögulegt,“ er bara ein-
hver annar að framkvæma það.
• ÞEGAR þú segir öðrum mönn-
um frá örðugleikum þínum, er helm-
ingnum af þeim alveg sama um þig,
en hinn helmingurinn hlakkar yfir
óförum þínum.
• HEIMILISLlFIÐ er ekki á
marga fiska, ef húsmóðirin finnur
sex vikna gamalt bréf, sem hún bað
mann sinn að láta í póst, í vasa á
jakka, sem liún hafði jafnlengi svik-
izt um að festa tölu á.
★
FRÆGIR ORÐSKVIÐIR
Kossinn er réttur barnsins, bless-
un foreldranna og tál svikarans.
Auðveldara er að vera kurteite en
réttlátur.
Betra er að hafa elskað og tapað
en hafa aldrei elskað.
Kærleikurinn er stigi, sem flytur
hjartað til himins.
Ógæfan gerir mann íhugulan, en
lánið hugsunarlausan.
Húfugerð. Herraverzlun.
P. EYFELD
Ingólfsstræti 2, Reykjavík. Sími 10199-