Samtíðin - 01.10.1959, Qupperneq 32
28
SAMTÍÐIN
S *Æ • N • S • K • A • R
F R Æ » I 1K Æ K T K
BONNIERS-forlag í Stokkhólmi hef-
ur sent okkur tvær splunkunýjar
doktorsritgerðir:
Sven Stolpe: Frán stoicism till
mystik. Studier i drottning Kristinas
maximer. — Það kemur mjög á ó-
vart liér úti á Islandi, að skáldið
Sven Stolpe skuli, hráðum hálf-
sextugur (f. 19f)5), nenna að leggja
á sig að skrifa doktorsritgerð, en það
eru fremur leiðinleg ritstörf og
einna helzt iðkuð af ungum mönn-
um, er liafa hneigð til að verða pró-
fessorar. En skáldið, sem lireif okk-
ur á sínum tíma með sögunni I bið-
sal dauðans, er fær i flestan sjó, því
að hann lauk licentiat-prófi við
Stokkhólmsháskóla alþingisliátíðar-
árið 1930. Það er vafalaust áhugi
Stolpes fyrir frönskum bókmenntum
(sbr. rit lians: Den kristna falangen
frá 1934 cfg ’36), sem hefur vakið
áhuga hans á hinni ógæfusömu
drottningu, Kristinu, er „sveik“ trú-
arbrögð Gústafs II. Adolfs, föður
sins, og leitaði sér siðar i fremur ó-
frumlegum ritstörfum uppbótar á
því, að lienni auðnaðist ekki að rækja
lilutverk sitl í hinu stríðandi lífi
heima á ættjörðinni. Meginstyrkur
hókar Stolpes er annars vegar notk-
un hans á áður ónvtjuðum gögnum
í kaþólskum skjalasöfnum, en hins
vegar skáldleg innlifun lians í sálar-
líf hmnar ofl og einatt brjöstum-
kennanlegu drottningar. Auk þess er
bókin skemmtilega skrifuð og varp-
ar nýju Ijósi á drottninguna. Út-
Reglubundnar siglingar
milli íslands, Danmerkur, Stóra-Bretlands,
Þýzkalands, Hollands, Belgíu og
Bandaríkja Norður-Ameríku.
Ennfremur sigla skip félagsins til eftirfarandi landa,
eftir því sem flutningur er fyrir hendi.
Svíþjóðar, Noregs, Finnlands, Póllands, Sovétríkjanna,
írlands, Frakklands, Spánar, Ítalíu, Grikklands, Israel,
Suður-Ameríkulandanna og fleiri staða.
Bf. f. Eintskipafclafj ísiands
Símnefni: „Eimskip“ — Sími 19460 (15 línur).
Reykjavík.