Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.01.2010, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 05.01.2010, Qupperneq 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI ÞRIÐJUDAGUR 5. janúar 2010 — 3. tölublað — 10. árgangur Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447 „Þetta er hugsað sem samfélags-vefur fyrir kylfinga sem miðlar ekki aðeins nýjustu fréttum úr heimi golfsins heldur veitir skráð-um notendum að auki aðgang að alls kyns skemmtilegum viðburð-um,“ segir Hans Guðmundsson, sem opnaði um síðustu helgi nýja vefsíðu, igolf.is, fyrir golfáhuga-menn. Á vefsíðunni er meðal annars að finna golffréttir, ljósmyndirspjallsvæði blo á golf og borða góðan mat, en til-gangurinn með igolf.is er meðal annars að skapa samfélag golf-áhugamanna,“ útskýrir Hans, sem gekk með hugmyndina að vefsíð-unni í maganum í tvö ár áður en hann lét hana loks verða að veru-leika. Hans segir brýna þörf hafa verið fyrir vefsíðu af þessari gerð. „Í fyrsta lagi er kkiei Inntur út í ástæðu þessara miklu vinsælda segir Hans golf einfaldlega vera ávanabindandi íþrótt. „Sjálfur fór ég ekki að spila golf fyrr en fyrir þremur árum þegar Valur Jónatansson, íþróttafréttamaður og fréttastjóri igolf.is, dró mig út á völl. Við spil-uðum níu holur og ég var falliá annar i h Netsamfélag kylfingaHans Guðmundsson hefur hleypt af stokkunum nýrri vefsíðu, igolf.is, sem helguð er einni vinsælustu íþrótt á landinu. Þar má finna nýjustu fréttir úr heimi golfsins, ljósmyndir, spjallsvæði, blogg og fleira. Hans Guðmundsson (til hægri), stendur á bak við vefsíðuna igolf.is, sem hefur að geyma nýjustu fréttir af golfi og veitir skráðum notendum ýmis fríðindi. Hér er hann ásamt íþróttafréttamanninum góðkunna Vali Jónatanssyni sem er fréttastjóri vefsíðunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN BUGL Barna- og unglingageðdeild Landspítala heldur sína árlegu ráðstefnu um geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn, unglinga og fjölskyldur þeirra 15. janúar 2010. Tilgangur ráðstefnunnar er að efla samfellu í þjónustu fyrir þennan hóp. www.lsh.is Bonito ehf. Friendtex, Faxafen 10, 108 Reykjavík, sími: 568 2870 - www.friendtex.is DÚNDUR ÚTSALA Opnunartími Mán til fös 11-18 laug 11-16 VEÐRIÐ Í DAG HANS GUÐMUNDSSON Opnar netsamfélag kylfinga á igolf.is • heilsa Í MIÐJU BLAÐSINS heilsaÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 2010 Ferfætlingar á fjöllumHallgerður Kata Óðinsdóttir fer með litríkum hópi manna og hunda í gönguferðir upp um fjöll og firnindi. SÍÐA 4 HEILSA Dans, sund, lyftingar, jóga og jaðaríþróttir Sérblað um heilsu FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG. Stjörnurnar í Skaupinu Sævar og Hannes Óli fóru á kostum sem hvor sinn Sigmundur. FÓLK 30 Bjarnfreðarson sigrar Cameron Ragnar Bragason ánægður með sigurinn yfir Hollywood. FÓLK 30 Fréttablaðið er með 143% meiri lestur en Morgunblaðið. Meðallestur á tölublað, höfuðborgar svæðið, 18 – 49 ára. Könnun Capacent í ágúst 2009 – október 2009. Allt sem þú þarft... MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 71,4% 29,3% LÖGREGLUMÁL Maður á þrítugsaldri situr nú í gæslu-varðhaldi eftir að hafa átt í vafasömum samskiptum við þrjár ungar stúlkur á Facebook. Þær eru þrettán og fjórtán ára. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins hefur maðurinn stundað þetta um hríð. Í byrjun desem- ber barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu kæra frá foreldrum vegna samskipta mannsins við dótt- ur þeirra. Hann var þá handtekinn og yfirheyrður en sleppt að því búnu. Á næstu tveimur vikum höfðu svo foreldrar tveggja stúlkna til viðbótar samband við lögreglu vegna samskipta mannsins við dætur þeirra á Facebook og kærðu athæfi hans. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins var hann handtekinn 29. desember. Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald sem rennur út á morgun. Um er að ræða rannsóknar- gæslu. Maðurinn hefur áður komið við sögu hjá lögreglu vegna minni háttar brota, en þó ekki vegna kynferð- isbrotamála. Lögreglan rannsakar málið. Meðal annars er verið að fara í gegnum tölvubúnað mannsins. - jss Tuttugu og fjögurra ára karl grunaður um vafasöm samskipti við ungar stúlkur: Í varðhaldi vegna áreitis á Facebook FORSETI Eitt þeirra níu bréfa sem skrifstofa forseta Íslands afhenti rannsóknarnefnd Alþingis, en vill ekki birta almenningi, er ritað til Alexanders, krónprins í Serbíu. Í því landi er ekki kónga- fólk við völd heldur þjóðkjörinn forseti. Forsetaembættið hefur lýst því yfir að það hafi þegar birt opin- berlega öll þau bréf sem afhent voru rannsóknarnefnd nema þau sem rituð voru þjóðhöfðingjum eða æðstu mönnum ríkja. Úrskurðarnefnd um upplýs- ingamál hefur nú til umfjöllunar beiðni blaðamanns Fréttablaðsins vegna bréfa forsetans og hefur fengið rökstuðning forsetaemb- ættisins fyrir því að meðhöndla eigi bréf serbneska krónprinsins með sama hætti og þjóðhöfðingja og æðstu manna ríkja. - pg / sjá síðu 12 Níu óbirt bréf forseta Íslands: Er krónprins einn æðstu manna Serbíu? Menn ársins „Dregin er upp skýr mynd af þessum mönnum, viðhorfum þeirra og persónuleika, með við- tölum við þá sjálfa og vini þeirra,“ skrifar Jónína Michaelsdóttir. Í DAG 16 Víða hægur vindur en heldur meiri vindur við austurströndina. Bjart veður og kalt. Lítilsháttar él gætu fallið við austurströndina. VEÐUR 4 -7 -8 -10 -8-3 EFNAHAGSMÁL Ólafur Ragnar Grímsson tilkynnir um ákvörðun sína varðandi lög um ríkis ábyrgð vegna Icesave á Bessastöðum klukkan 11 í dag. Þá kemur í ljós hvort hann staðfestir lögin eða synjar. Lögin voru samþykkt 30. desember og afhent forsetanum til undirritunar á gamlársdag. Þá tilkynnti hann að hann tæki sér umþóttunartíma vegna málsins. Á laugardag hitti hann fulltrúa Ind- efence sem afhentu honum tug- þúsund áskoranir um að vísa mál- inu til þjóðaratkvæðagreiðslu. Ólafur Ragnar fundaði á sunnu- dag einslega með fjórum ráðherr- um; þeim Jóhönnu Sigurðardótt- ur forsætisráðherra, Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra, Össuri Skarphéðinssyni utanrík- isráðherra og Gylfa Þ. Magnús- syni, efnahags- og viðskiptaráð- herra. Þá hefur Fréttablaðið heimildir fyrir því að á mánudag hafi hann rætt símleiðis við Má Guðmunds- son seðlabankastjóra, og fleiri sérfræðinga, um efnahagslegar afleiðingar þess að synja frum- varpinu staðfestingar. Forsetinn ræddi ekki við for- ystumenn stjórnarandstöðunnar og hafði ekki samband við Franek Roswadowski, fulltrúa Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins á Íslandi. Forystumenn Alþýðusambands Íslands, Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, Samtaka atvinnu- lífs og Samtaka iðnaðarins hvetja allir forsetann til að staðfesta frumvarpið hið fyrsta. Óvíst er hvað gerist staðfesti Ólafur Ragnar ekki lögin. Engin lög eru til um framkvæmd þjóð- aratkvæðagreiðslu. - kóp, bþs, bj / sjá síðu 4 Hitti fjóra ráðherra vegna ríkisábyrgðar Forseti Íslands tilkynnir um ákvörðun sína um Icesave-lögin í dag. Hefur rætt við fjóra ráðherra og seðlabankastjóra en ekki við leiðtoga stjórnarandstöðu. VETRARSÓL Á BESSASTÖÐUM Allra augu munu beinast að Bessastöðum fyrir hádegi í dag. Forseti Íslands hefur boðað til blaðamannafundar klukkan 11. Þar mun hann greina frá því hvort hann hyggst undirrita nýsamþykkt Icesave-lög eða synja þeim staðfestingar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Allur frítíminn fer í liðið Guðmundur Guðmundsson hóf lokaundir- búninginn fyrir EM í handbolta í gær. ÍÞRÓTTIR 23 SLYS Þrettán ára gamall dreng- ur var fluttur á slysadeild í gær- kvöldi eftir flugeldaslys. Tveir félagar hans sluppu við meiðsl. Ekki náðist í vakthafandi lækni, en drengurinn var fluttur af slysadeild á sérhæfðari deild til meðferðar. Slysið varð í Loga- fold í Grafarvogi og barst lög- reglu tilkynning um það klukk- an 18.46 í gærkvöldi. Sjúkralið fór þegar á vettvang. Varðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sagði óljóst með hvaða hætti slysið hefði orðið. Piltarnir hefðu verið með flugeldatertu sem hefði sprung- ið, að mestu í andlit hins slasaða. Allt benti til að slysið hefði verið nokkuð alvarlegt, þar sem pilt- urinn var fluttur á milli deilda. - kóp Flugeldaslys í Grafarvogi: Flugeldaterta sprakk í andlit unglingspilts

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.