Fréttablaðið - 05.01.2010, Page 4
4 5. janúar 2010 ÞRIÐJUDAGUR
EFNAHAGSMÁL Gylfi Arn-
björnsson, formaður
Alþýðusambands Íslands,
og Elín Björg Jónsdótt-
ir, formaður Bandalags
starfsmanna ríkis og
bæja, hvetja Ólaf Ragn-
ar Grímsson forseta til
að staðfesta sem fyrst
frumvarp um ríkisá-
byrgð vegna Icesave. Um
108 þúsund félagsmenn
eru í þeim fyrrnefndu,
en rúmlega 20 þúsund
í þeim síðarnefndu. Þá
tekur Vilhjálmur Egils-
son, formaður Samtaka
atvinnulífsins, í sama
streng. Í þeim samtökum
eru um tvö þúsund fyrir-
tæki, þar sem starfar um
helmingur allra launþega
í landinu.
„Ég óttast afleiðingar
af því ef íslenska þjóð-
in ætlar í opnar alþjóðlegar deil-
ur við alþjóðlegt fjármálakerfi
heimsins. Ég tel að við munum
skaðast áður en tekst að umturna
alþjóðlegu fjármálakerfi,“ segir
Gylfi. Hann segir að
klára þurfi málið, það sé
komið í gegnum Alþingi
og ótækt að opna það á
ný.
Hið sama segir Vil-
hjálmur. Hann segir að
forsetinn hefði átt að til-
kynna Alþingi fyrr, væri
eitthvað í frumvarpinu
sem hann gæti ekki skrif-
að undir. Þingmenn hefðu
þá getað brugðist við.
Hann telur afleiðing-
arnar af því að skrifa
ekki undir mjög slæm-
ar. „Það eru ekki það
miklar líkur á því að við
fengjum það mikið betri
samning þó við reyndum
í þriðja sinn að réttlæta
herkostnaðinn af því að
fara af stað. Það liggur
fyrir að bæði Bretar og
Hollendingar ollu okkur
stór tjóni á meðan málið var ófrá-
gengið.“ Vilhjálmur segir ekkert
benda til annars en að þjóðirnar
tækju þá baráttu upp á ný, skrifi
forsetinn ekki undir. Elín Björg telur Íslendinga bera
þá ábyrgð að ganga frá samkomu-
lagi við Breta og Hollendinga,
sama hve ógeðfellt það væri. Hún
treystir því að þeir sem stóðu að
samkomulaginu hafi gert það eins
vel og þeir hafi vit og getu til. „Ég
er ekki sannfærð um að ef þeir
fara í þjóðaratkvæði komi önnur
og betri niðurstaða, því almenn-
ingur mun ekki hafa þau gögn
undir höndum sem þeir sem voru í
samningunum höfðu. Menn munu
fyrst og fremst greiða atkvæði
með hjartanu,“ segir Elín Björg
og segir einboðið að enginn vilji
greiða þessar skuldir.
Jón Steindór Valdimarsson,
framkvæmdastjóri Samtaka
iðnaðarins, segir að klára verði
Icesave. Töfin á málinu sé mjög
óæskileg. „Þessi dráttur og þessi
málsmeðferð sem við erum að
horfa upp á núna hjá forsetan-
um er held ég mjög óæskileg.
Við eigum að klára málið og ekki
hleypa því í óvissu.“
Þá spyr Jón Steindór hvernig
menn munu klára málið; hafni
þjóðin samningunum hljóti að
þurfa að bera nýja samninga
aftur undir þjóðina. „Það er mjög
óheppilegt í milliríkjasamning-
um.“ kolbeinn@frettabladid.is
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
17°
4°
-5°
1°
2°
-2°
2°
0°
0°
21°
1°
16°
2°
11°
-13°
-1°
16°
-7°
Á MORGUN
Fremur hægur vindur.
FIMMTUDAGUR
Hægur eða fremur
hægur vindur.
-5
-9
-6
2
12
2
-1
-3
-2
-1
-7
-1
-3
-12
-8
-5
-10
-6
-8
-12
3
2
3
4
4
2
5
4
3
6
3 10
MEIRA FROST
Það herðir frostið á
landinu í dag en á
morgun hlánar um
landið vestanvert
og má búast við
slyddu vestanlands
síðdegis á morgun
og á fi mmtudag-
inn. Norðan- og
austanlands verður
hins vegar frost
áfram næstu daga.
Ingibjörg
Karlsdóttir
Veður-
fréttamaður
Óvíst er hvað gerist neiti forseti
Íslands að skrifa undir Icesave-lögin.
Engin lög eru til um framkvæmd
þjóðaratkvæðagreiðslu.
Tvö frumvörp um þjóðarat-
kvæðagreiðslu liggja fyrir Alþingi,
stjórnarfrumvarp og frumvarp frá
hluta minnihlutans. Meðal þess
sem deilt hefur verið um er hversu
margir þurfi að kjósa til að atkvæða-
greiðslan bindi hendur stjórnvalda.
Einnig hvort aukinn meirihluta þurfi
í atkvæðagreiðslunni, eða hvort
einfaldur meirihluti eigi að duga.
Forseti Íslands hefur aðeins einu
sinni synjað lögum staðfestingar,
þegar hann fékk fjölmiðlalögin til
undirritunar árið 2004. Í kjölfar
synjunar forseta þá drógu stjórnvöld
lögin til baka og því reyndi ekki á
ákvæði stjórnarskrár um þjóðarat-
kvæði.
ÓVISSA UM ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLU
Hvetja forsetann til að
skrifa strax undir Icesave
Forystumenn 130 þúsund launþega vilja að Icesave-frumvarpið verði strax staðfest. Sama gerir formaður
Samtaka atvinnulífsins. Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir málsmeðferð forsetans óheppilega.
JÓN STEINDÓR
VALDIMARSSON
ELÍN BJÖRG
JÓNSDÓTTIR
HVETJA TIL SAMÞYKKTAR Formenn ASÍ OG SA, þeir Gylfi Arnbjörnsson og Vilhjálmur
Egilsson, við undirritun stöðugleiksáttmálans. Þeir vilja að forsetinn staðfesti Icesave-
samningana. Það sama vill formaður BSRB og framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðar-
ins. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
HEILBRIGÐISMÁL Landspítalinn tók
um áramót við rekstri deildar L-1
á Landakoti, sem áður var í hönd-
um Dvalar- og hjúkrunarheimil-
isins Grundar. Á deildinni búa á
annan tug aldraðra, einkum fólk
með heilabilun.
Björn Zoëga, forstjóri Land-
spítalans, segir um tímabundna
ráðstöfun að ræða. Til standi að
leggja deildina niður þegar nýtt
hjúkrunarheimili í Mörkinni verði
tekið í notkun. Búast megi við því
að hjúkrunarheimilið verði tilbúið
síðla sumars eða í haust. Þang-
að til muni spítalinn reka deild-
ina samkvæmt samningi við heil-
brigðisráðuneytið. - bj
Deild fyrir heilabilaða:
Færist til Land-
spítala til hausts
BRETLAND Afar mikilvægt er að
forseti Íslands staðfesti Icesa-
ve-lögin, segir Alistair Darling,
fjármálaráðherra Bretlands.
Hann sagðist þó gera sér grein
fyrir því að
málið væri erf-
itt fyrir Íslend-
inga, á fundi
með fjölmiðla-
mönnum í Bret-
landi í gær.
Darling benti
á að bresk
stjórnvöld
hefðu lagt út
fyrir skuldbindingum íslenskra
banka í Bretlandi við erfiðar
aðstæður, og aðeins sé verið að
biðja um endurgreiðslu á því fé.
Hann sagði að þó að staðan á
Íslandi yrði erfið staðfesti forset-
inn lögin gæti hún orðið erfiðari
yrðu þau ekki staðfest. - bj
Fjármálaráðherra Bretlands:
Mikilvægt að
staðfesta lögin
ALISTAIR DARLING
EFNAHAGSMÁL Nafn og kennitala
félagsmálaráðuneytisins virðast
hafa verið misnotuð þegar ráðu-
neytið var skráð á undirskrifta-
lista InDefence, þar sem skorað
er á forsetann að staðfesta ekki
Icesave-lögin. Þetta kemur fram
í tilkynningu frá ráðuneytinu.
Jóhannes Þ. Skúlason, einn
aðstandenda undirskriftasöfn-
unarinnar, segir að einhver hafi
gert sér þetta að leik, og í kjöl-
far athugasemdar frá ráðuneyt-
inu hafi skráningunni verið
eytt. Hann sagðist í gær ekki
hafa upplýsingar um hvort fleiri
lögaðilar séu skráðir á undir-
skriftalistann, en mögulega
verði það kannað. - bj
Undirskriftasöfnun InDefence:
Eitt ráðuneyti
skráð á listann
ALÞINGI Meiri þekking á olíujarð-
fræðinni við Grænland en við
Ísland er helsta skýring þess að
olíuleitarfyrirtæki höfðu meiri
áhuga á útboði Grænlendinga á
sérleyfum til olíuleitar en útboði
Íslendinga.
Þetta kemur fram í svari iðnað-
arráðherra, Katrínar Júlíusdótt-
ur, við fyrirspurn Gunnars Braga
Sveinssonar Framsóknarflokki.
Olíuleit hefur staðið yfir við
Grænland með hléum frá 1969
og hafa umsvifin sveiflast í takt
við olíuverð.
Frá árinu 1992 hafa verið hald-
in fjögur útboð á sérleyfum til
olíuleitar og -rannsókna og tíu
slík leyfi veitt. Þrettán umsóknir
um þátttöku í útboði sem fram fer
í maí liggja fyrir.
Sem kunnugt er var í fyrsta
sinn efnt til útboðs sérleyfa til
olíuleitar á Drekasvæðinu við
Ísland fyrir nokkrum mánuðum.
Tvær umsóknir bárust en báðar
voru dregnar til baka.
Í svarinu kemur fram að ekki
hafi enn fundist olía við Græn-
land í vinnanlegu magni, en
ummerki um olíu hafi fundist í
borkjörnum á landi.
Þá segir að mikilvægt sé fyrir
Íslendinga að halda áfram að
byggja á reynslu nágrannaþjóða.
Reynslan sýni að olíuleit sé langt
ferli og að framgangur hennar
tengist aðstæðum í heiminum á
hverjum tíma. - bþs
Meiri áhugi á útboði Grænlendinga á sérleyfum til olíuleitar en útboði Íslendinga:
Meiri þekking við Grænland
GUNNAR BRAGI
SVEINSSON
KATRÍN JÚLÍUS-
DÓTTIR
GENGIÐ 04.01.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
232,7464
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
124,55 125,15
201,05 202,03
179,34 180,34
24,096 24,236
21,593 21,721
17,461 17,563
1,3477 1,3555
195,13 196,29
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR