Fréttablaðið - 05.01.2010, Síða 6
6 5. janúar 2010 ÞRIÐJUDAGUR
Ertu sátt(ur) við að Ólafur
Ragnar tók sér umhugsunar-
frest?
JÁ 64,5%
NEI 35,5%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ætlar þú að gera þér dagamun
á þrettándanum?
Segðu þína skoðun á visir.is
"Af stað".
Bættu heilsuna á nýju ári
Okkar vinsælu leikfi minámskeið hefjast miðvikudaginn 6. Janúar.
Skráning á skrifstofu GÍ. Fagfólk með áralanga reynslu og mikla
þekkingu, sjúkraþjálfarar og hjúkrunarfræðingur, sjá um þjálfunina
sem fer fram í þægilegu og rólegu umhverfi
Í boði er fjölbreytt úrval tíma t.d. STOTT-PILATES, jóga, karlahópur
og vatnsleikfi mi. Hentar vel gigtarfóki, fólki með verki og öllum
þeim sem þurfa að þjálfa undir góðu eftirliti
Kynntu þér málið
Nánari upplýsingar eru undir hópþjálfun á heimasíðunni www.gigt.is
Upplýsingar og skráning er á skrifstofu G.Í.
Ármúla 5, sími 5303600
Óska eftir að kaupa
íslensk-ensku námskeið
Óska eftir að kaupa íslensk-ensku Lingapon námskeið. En ég tel nær fullvíst að
aðeins eitt íslenskt – ensku Lingapon námskeið hafi komið út á Íslandi. Kennslubókin
var innbundin kilja en bæði hærri og breiðari en venjuleg kilja.
Eigir þú námskeiðið þá borga ég glaður 40.000 kr fyrir námskeiðið.
Viljir þú ekki selja getum við samið um greiðslu fyrir afnot af bókinni.
Sími. 865-7013
Sjálfstæðisfl okkurinn í Hafnarfi rði
auglýsir aðalfundi allra félaga
Vorboðinn heldur aðalfund 12. janúar kl. 20
dagskrá fundarins:
1. venjuleg aðalfundarstörf
2. önnur mál
Landsmálafélagið Fram heldur aðalfund 13. janúar kl. 20
dagskrá fundarins:
1. venjuleg aðalfundarstörf
2. önnur mál
F.U.S. Stefnir heldur aðalfund 14. janúar kl. 20
dagskrá fundarins:
1. venjuleg aðalfundarstörf
2. önnur mál
Allir fundirnir verða haldnir í félagsheimili fl okksins
að Norðurbakka 1 Hf. Félagar eru hvattir til að mæta.
Sjálfstæðisfélögin í Hafnarfi rði.
www.hafnarfjordur.xd.is
BANKAR Áætlað er að á bilinu 27
þúsund til 29 þúsund kröfur hafi
borist í þrotabú Kaupþings. Um
þrjátíu manns hafa unnið við mót-
töku og skráningu krafna síðustu
vikur og hefur hópurinn nú þegar
lokið við að skrá 23 þúsund kröf-
ur í bú Kaupþings. Frestur til að
gera kröfu í bú bankans rann út
30. desember síðastliðinn.
Magnið er í takt við vænting-
ar, að sögn Ólafs Garðarssonar
lögmanns sem situr í slitastjórn
bankans. „Við áttum von á allt að
þrjátíu þúsund kröfum í bank-
ann. Flestar kröfurnar koma
frá Þýskalandi, sparifjáreigend-
um sem gera vaxtakröfur vegna
innstæðna sem þegar hafa verið
greiddar út,“ segir hann.
Hæsta skráða krafan fram til
þessa hljóðar upp á um tvö hundr-
uð milljarða króna en sú lægsta
nemur tæpum tveimur evrum,
jafnvirði tvö hundruð króna.
Flestar kröfurnar eru frá Þýska-
landi en heildarkröfur eru frá 111
löndum, samkvæmt tilkynningu
frá skilanefnd Kaupþings. Ekkert
hefur verið gefið út um heildar-
upphæð krafna.
Eins og áður hefur komið fram
er ekki útilokað að kröfuhafahópi
Kaupþings muni svipa til kröfu-
hafahóps Glitnis en þar voru fyr-
irferðarmiklir bandarískir fjár-
festingarsjóðir sem höfðu keypt
skuldabréf gömlu bankanna eftir
hrun þeirra.
Kröfuhafaskrá Kaupþings verð-
ur birt í heild sinni á vefsvæði
fyrir kröfuhafa 22. janúar næst-
komandi og er gert ráð fyrir að
unnið verði á vöktum til að ljúka
skráningunni en mikið magn
fylgiskjala getur fylgt hverri
kröfu.
Viku eftir birtingu kröfuskrár
verður fundað með kröfuhöfum
þar sem farið verður yfir skrána
og afstöðu slitastjórnar til lýstra
krafna. jonab@frettabladid.is
Fleiri kröfur í Kaup-
þing en Glitni og LÍ
Ekki er útilokað að 29 þúsund kröfum frá 111 löndum verði lýst í þrotabú
Kaupþings. Til samanburðar var samtals 21 þúsund kröfum lýst í bú Glitnis og
Landsbankans. Í takt við væntingar, segir Ólafur Garðarsson í slitastjórn.
Fjárhæð krafna í þrotabú Kaupþings banka liggur fyrir 22. janúar næstkom-
andi. Gangi áætlanir slitastjórnar eftir verða kröfurnar 29 þúsund talsins.
– Til samanburðar var 12.053 kröfum lýst í bú gamla Landsbankans upp á
6.459 milljarða króna. Heildarforgangskröfur námu 2.857 milljörðum króna.
Búist er við að um 90 prósent fáist upp í forgangskröfur, sem að mestu eru
vegna Icesave-innlánsreikninganna í Bretlandi og Hollandi. Ekkert fæst upp
í almennar kröfur.
– Þá var 8.685 kröfum lýst í þrotabú Glitnis upp á 3.436 milljarða króna.
Áætlað er að kröfuhafar fái á bilinu 20 til 23 prósent upp í kröfur, eða á milli
690 til 860 milljarða króna.
STÆRSTA ÞROTABÚIÐ
UNNIÐ VIÐ SKRÁNINGU KRAFNA Búist er við að tæplega þrjátíu þúsund kröfum
verði lýst í bú Kaupþings. Unnið verður á vöktum við skráningu krafnanna.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
BANKAR Verið er að fara
yfir umsóknir um stöðu
bankastjóra A rion
banka. Frestur til að
sækja um starfið rann
út 20. desember síð-
astliðinn og hefur ekk-
ert verið gefið út um
umsækjendur og fjölda
þeirra.
Erna Bjarnadóttir,
stjórnarformaður bank-
ans, segir málið í vinnslu
og hafi verið samið við
Finn Sveinbjörnsson,
núverandi bankastjóra,
um að hann sitji áfram
þar til eftirmaður hans
tekur við. Finnur hefur
gefið út að hann sæk-
ist ekki eftir starfinu
áfram.
Að sama skapi liggur
ekki fyrir hvenær nýtt
bankaráð Arion banka
verður skipað. Stefnt var
að því að það yrði um áramótin
að undangengnu samþykki Sam-
keppniseftirlitsins og Fjármála-
eftirlitsins fyrir samruna eignar-
haldsfélaga kröfuhafa við Arion
banka og Íslandsbanka.
Fyrrnefnda eftirlitið samþykkti
samrunana á Þorláksmessu að
teknu tilliti til ákveðinna fyrir-
vara en Fjármálaeftirlitið á eftir
að gefa grænt ljós á samruna
félags kröfuhafa og nýja bank-
ans. - jab
Ekkert hefur verið gefið upp um hverjir sóttu um starf bankastjóra Arion banka:
Finnur heldur sætinu heitu
ERNA BJARNA-
DÓTTIR
ORKUMÁL. Rekstur gagnaveitu og sala á
ráðgjöf á orkusviði telst til kjarnastarf-
semi Orkuveitu Reykjavíkur samkvæmt
heildarstefnu, sem stjórn fyrirtækisins
samþykkti einróma í síðustu viku.
Þar segir að starfssvæði Orkuveit-
unnar sé fyrst og fremst á Íslandi en að
það leggi áherslu á að „selja þekkingu
og reynslu til þeirra landa sem hafa
arðbær tækifæri í jarðvarma.“
Fyrirtækið geri ríkar siðferðilegar
og umhverfislegar kröfur til allra verk-
efna sem það tekur þátt í. Í stefnunni er
ekki vikið að erlendum fjárfestingum.
Eins og kunnugt er urðu miklar deil-
ur innan borgarstjórnar um þátttöku
Orkuveitunnar í útrásinni undir merkj-
um REI á árunum 2007 og 2008. REI er
enn starfandi en þar eru umsvif lítil,
samkvæmt heimildum Fréttablaðs-
ins, en tengjast helst jarðhitaverkefni
í Djibútí. Eins deildu sjálfstæðismenn
í borgarstjórn hart á þá uppbyggingu,
sem fyrst fór fram undir merkjum
Línu.net, í tíð Reykjavíkurlistans. Sú
starfsemi telst nú hluti af kjarnastarf-
semi Orkuveitunnar samkvæmt þeirri
nýju heildarstefnu, sem allir stjórnar-
menn fyrirtækisins tóku þátt í að móta.
Guðlaugur Sverrisson, stjórnarfor-
maður Orkuveitunnar, segir í fréttatil-
kynningu, að samhljómur og sátt sé um
flesta þætti starfseminnar, „þótt vita-
skuld sé þar á áherslumunur í einstök-
um atriðum.“ - pg
Gagnaveitan, áður Lína.net, orðin hluti af kjarnastarfsemi Orkuveitu Reykjavíkur:
Siðferðilegar kröfur til allra verkefna
KJARNASTARFSEMI. „Orkuveita Reykjavíkur framleiðir, dreifir og
selur heitt vatn og kalt, rafmagn og annast uppbyggingu og rekstur
fráveitu og gagnaveitu. Orkuveita Reykjavíkur selur einnig ráðgjöf á
orkusviði,“ segir í nýrri heildarstefnu fyrirtækisins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
KJÖRKASSINN