Fréttablaðið - 05.01.2010, Síða 10
10 5. janúar 2010 ÞRIÐJUDAGUR
Í SKOTSTÖÐU Menn í bláum bolum
fyrir framan konungshöllina í Phnom
Pehn í Kambódíu bíða þess að flytja
erlenda ferðamenn um borgina á
þríhjóla leiguvögnum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STJÓRNSÝSLA Mannanafnanefnd
hefur breytt fyrri úrskurðum
og heimilað millinafnið Kjarr-
val. Beiðni um að taka Kjarrval á
mannanafnaskrá var áður synj-
að árin 2006 og 2007 þar sem of
mikil líkindi væru við ættarnafn-
ið Kjarval. Nú var mannanafna-
nefnd bent á að líkindi með nöfn-
um séu ekki einsdæmi.
„Eftir að hafa kannað ýmis
dæmi þar sem framburður milli-
nafna og ættarnafna er mjög
líkur eða jafnvel eins en stafsetn-
ing ólík, s.s. Blöndal og Blönd-
ahl, Leví og Levy, Brimdal og
Bryndal, Hvanndal og Hvammd-
al og Nordal og Norðdahl telur
mannanafnanefnd að það væri
mismunun að hafna Kjarrval á
þeim forsendum að það líktist um
of ættarnafninu Kjarval.“ - gar
Mannanafnanefnd söðlar um:
Kjarrval í lagi
sem millinafn
STJÓRNMÁL Kristján Þór Júlíusson
alþingismaður er hættur sem bæj-
arfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn á Akureyri.
„Vegna ófyrirséðra anna í störf-
um Alþingis á þessu ári og fyrir-
sjáanlegum miklum önnum strax í
upphafi næsta árs hef ég nú ákveð-
ið að óska eftir lausn frá störfum í
bæjarstjórn Akureyrar frá og með
næstkomandi áramótum,“ segir í
bréfi Kristjáns sem lesið var upp
á síðasta bæjarstjórnarfundi.
Kristján hefur verið bæjar-
fulltrúi á Akureyri frá 1998 og
var bæjarstjóri frá þeim tíma til
2006 og tók sæti á Alþingi eftir
kosningar vorið 2007. „Ég hef í
störfum mínum
fyrir Akureyr-
arbæ lagt mig
fram um að
sinna þeim af
trúmennsku og
litið á það sem
meginskyldu
mína að leita
þeirra leiða
sem færar eru
hverju sinni til
að óskir og ábendingar bæjarbúa
um eflingu bæjarfélagsins nái að
verða að veruleika,“ segir í yfir-
lýsingu Kristjáns þar sem enn
fremur kemur fram að hann muni
ekki taka þátt í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins vegna bæjar-
stjórnarkosninganna í maí. „Þessi
ár hafa verið mér mikils virði og
ég hef kynnst fjöldanum öllum af
frábæru fólki, jafnt starfsmönn-
um Akureyrarbæjar sem öðrum
íbúum og fólki víða um land og
lönd.
Með bestu óskum um farsæld
til handa „Höfuðborg hins bjarta
norðurs“,“ segir að endingu í bréfi
Kristjáns.
Næsti varafulltrúi sjálfstæði-
manna verður fjaverandi að miklu
leyti á næstunni svo þeir funda í
dag um það hver tekur við bæjar-
fulltrúastöðunni af Kristjáni.
- gar
Kristján Þór Júlíusson fór úr bæjarstjórn Akureyrar um áramótin:
Hættur vegna anna á Alþingi
HEILBRIGÐISMÁL Sjúkratryggingar
Íslands miða endurgreiðslur við
ódýrustu dagskammta astma- og
ofnæmislyfja, frá og með ára-
mótum.
Er breytingin í samræmi við
þær breytingar sem gerðar
voru í lyfjaflokkum á liðnu ári,
vegna PPI lyfja, blóðfitulækk-
andi lyfja, blóðþrýstingslyfja og
beinþéttnilyfja.
Læknir getur sótt um lyfja-
skírteini fyrir dýrari lyfjunum
að uppfylltum ákveðnum skil-
yrðum. Fyrir sjúklinga sem nú
þegar eru í meðferð með dýrari
lyfjunum sem gengur vel getur
læknir sótt um lyfjaskírteini
þar sem færð eru fagleg rök
fyrir notkuninni. - jss
Niðurgreiðslur astmalyfja:
Miðast við
ódýrustu dag-
skammta
STJÓRNMÁL Þrettán gefa kost á sér
í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Hafnarfirði 30. janúar næstkom-
andi. Talsverð endurnýjun er á
lista flokksins en tveir bæjarfull-
trúar af þremur gefa ekki kost á
sér á ný. Þar á meðal er Harald-
ur Þór Ólason, oddviti sjálfstæðis-
manna. Rósa Guðbjartsdóttir, sem
lenti í öðru sæti í prófkjöri fyrir
fjórum árum, er sú eina sem hefur
lýst því yfir að hún stefni á fyrsta
sætið.
Sjálfstæðismenn fengu slæma
útreið í síðustu bæjarstjórn-
arkosningum í Hafnarfirði og
misstu þá tvo bæjarfulltrúa yfir
til Samfylkingar og VG. - jab
Prófkjör sjálfstæðismanna:
Þrettán í fram-
boð í Firðinum
SAMGÖNGUR Búast má við að lítraverð á bensíni muni
hækka um tæplega átta krónur, og lítrinn af dísil-
olíu um tæpar sjö krónur þegar auknar álögur rík-
isins fara út í eldsneytisverðið snemma í janúar,
samkvæmt útreikningum Félags íslenskra bifreiða-
eigenda (FÍB).
Bensíngjaldið hækkaði um 2,50 krónur á hvern
lítra um áramót, og olíugjaldið um 1,65 krónur. Við
það bætist nýr kolefnisskattur, 2,60 krónur á hvern
bensínlítra og 2,90 krónur á hvern lítra af olíu. Að
auki hækkar virðisaukaskattur úr 24,5 prósentum í
25,5 prósent.
Með hækkunum sem tóku gildi um áramót hafa
álögur á eigendur meðal fjölskyldubíls hækkað um
tæplega 60 þúsund krónur á einu ári, segir Runólfur
Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB.
Meðalverð á bensínlítra í sjálfsafgreiðslu á þjón-
ustustöð á höfuðborgarsvæðinu var rúmlega 186,6
krónur í desember. Miðað við sömu álagningu mun
lítrinn hækka í um það bil 194,40 krónur eftir að
hækkanirnar skila sér út í eldsneytisverðið. Dísilolía
kostaði að meðaltali um 183,10 krónur á hvern lítra,
en mun kosta um 190,10 krónur, segir Runólfur.
Við þessar hækkanir bætist tíu prósenta hækkun
á bifreiðagjöldum, sem einnig tók gildi um áramótin.
Gjöldin hækkuðu síðast um mitt síðasta ár, og hafa
hækkað um samtals 21 prósent á einu ári, segir Run-
ólfur. - bj
Álögur á venjulegan bifreiðaeiganda aukist um 60 þúsund á einu ári, segir FÍB:
Bensínlítrinn hækkar um átta krónur
HÆKKAR Auk hækkunar á bensín- og olíugjaldi bætist við
nýr kolefnisskattur, sem er 2,60 eða 2,90 krónur á hvern lítra.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
39
89
8
KRISTJÁN ÞÓR
JÚLÍUSSON