Fréttablaðið - 05.01.2010, Síða 20
5. JANÚAR 2010 ÞRIÐJUDAGUR2 ● fréttablaðið ● heilsa
● HÆTT AÐ REYKJA Reykleysis-
námskeið og heilsunámskeið fyrir 60
ára og eldri eru meðal nýjunga sem
nú eru í boði hjá Heilsuborg, heilsu-
stöðinni í Faxafeni. Reykleysisnám-
skeiðið stendur yfir í fjórar vikur og
er ætlað að hjálpa fólki að hætta að
reykja. Það samanstendur af vikulegri
hópmeðferð með lækni, fræðslu um
næringu, hreyfingu og heilbrigðan lífs-
stíl auk hreyfingar þrisvar í viku.
Við námskeiðið hjá Heilsuborg
starfa læknar, sjúkraþjálfarar, íþrótta-
fræðingar, næringarfræðingar og fleiri
og það er haft að leiðarljósi að tvinna
saman hreyfingu, ráðgjöf og meðferð.
● SMITHÆTTA Handþvottur er
afar mikilvægur til að koma í veg fyrir
smit á kvefi og öðrum sjúkdómum en
það er einnig gott ráð að þrífa hluti
á heimilinu og vinnustaðnum sem
allir snerta. Hlutir eins og hurðahún-
ar, fjarstýringar, lyklaborð, handfang-
ið á ísskápnum og rofar eru í daglegri
notkun og því líklegt að þar leynist
margar bakteríur. Ef mikið er um kvef
og veikindi á heimilinu er ráð að þrífa
þessa hluti reglulega til að koma í veg
fyrir frekari smit.
Auglýsingasími
– Mest lesið
„Húsnæðið sem við erum í er orðið
of lítið, sérstaklega aðstaðan sem
við höfum fyrir þyngri lyfting-
ar,“ segir Bergþór Ólafsson eig-
andi Árbæjarþreks. Í lok mán-
aðarins verður opnuð ný aðstaða
fyrir þyngri lyftingar í verslun-
arhúsnæði að Selásbraut 98. „Við
erum að standsetja það núna og
setja upp klefa,“ segir Bergþór en
rýmið er alls 240 fermetrar. Þar
verður allt til alls fyrir lyftingar
auk þess sem aðstaða verður til ól-
ympískra lyftinga, bæði lóð og sér-
stakt ólympískt gólf.
Bergþór segir aðsóknina í Ár-
bæjarþrek fína. Aukning hafi orðið
við upphaf kreppunnar en nokk-
urt jafnvægi sé komið á nú. „Fólk
nýtir líka kortin sín betur,“ segir
hann. Mesta aukningin er í lyfting-
um. Sérstaklega sýni ungir menn
um tvítugt og jafnvel yngri íþrótt-
inni aukinn áhuga.
Aðalhúsnæði Árbæjarþreks
verður eftir sem áður í íþrótta-
húsi Fylkis við Árbæjarlaug. Þar
er góður tækjasalur, hlaupabretti
og aðstaða fyrir spinning og aðra
þrektíma í sal. - sg
Árbæjarþrek stækkar við sig
Nýr salur Árbæjarþreks verður opnaður í lok mánaðarins en þar er lögð áhersla á
lyftingar. Aðalhúsnæðið verður þó áfram í Fylkishöllinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Leikfimi í volgri laug gerir lið-
unum gott og mótstaða vatns-
ins reynir á vöðvana. Þetta veit
Sigurlaug Guðmundsdóttir,
ein þeirra eldri borgara sem
iðka vatnsleikfimi í Grafar-
vogslaug undir stjórn Brynjólfs
Björnssonar kennara.
„Mér finnst deginum borgið ef ég
kemst í vatnsleikfimina og vil ekki
missa af henni,“ segir Sigurlaug.
„Auðvitað get ég alltaf farið í sund-
laugina en þetta er öðruvísi. Það er
líka svo gott að vera með vissan
tíma því þá fer maður frekar, ann-
ars getur alltaf eitthvað glapið.“
Sigurlaug kveðst hafa stundað
vatnsleikfimina í nokkur ár, eða
frá því að byrjað var að bjóða upp
á hana í Grafarvogslaug á vegum
ÍTR. Hún telur hana hafa góð
áhrif bæði á líkama og sál, enda
sé kennarinn Brynjólfur einstak-
ur og „alveg mátulega kátur“ eins
og hún kemst að orði. „Hann um-
gengst okkur af virðingu og lipurð
og segir svo stundum brandara.“
Félag eldri borgara í Grafarvogi
nefnist Korpuúlfar og er með fjöl-
margar tómstundagreinar á dag-
skrá en af þeim telur Sigurlaug
vatnsleikfimina vera best sótta.
„Við höfum flest verið fjörutíu og
níu í lauginni, það er fullmargt en
við hliðrum til hvert fyrir öðru.
Þetta sýnir að fólk er ánægt með
leikfimina, enda eru æfingarnar
góðar og ef einhverjar eru þannig
að við þolum þær ekki þá bara
sleppum við þeim,“ lýsir hún.
Vatnsleikfimin tekur hálftíma í
senn hjá Sigurlaugu en hún segir
að oft fari tveir tímar í sundlaug-
arferðina. „Ég mæti á þriðjudög-
um og föstudögum og er í leikfim-
inni frá hálf tíu til tíu, þá er ég yf-
irleitt búin að synda og svo fer ég
í heita potta og gufu á eftir. Rúsín-
an í pylsuendanum er svo kaffisopi
sem laugin býður upp á, þar kynn-
ist fólkið og spjallar saman enda er
bannað að sitja einn við borð.“ - gun
Leikfimi fyrir líkama og sál
Sigurlaug iðkar vatnsleikfimina af
áhuga og lætur ekki þar við sitja heldur
fer líka í aðra líkamsrækt, les uppi á
elliheimili og stundar alls konar tóm-
stundaiðju. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Teygjum nú á úlnliðunum,“ leggur Brynjólfur kennari til við Korpuúlfana og laumar svo að þeim brandara á eftir enda er vatns-
leikfimin ein vinsælasta tómstundagreinin sem boðið er upp á hjá þeim að sögn Sigurlaugar.
F r
Bakleikfimi með mjúku sambaívafi
Betri líðan í hálsi, herðum og baki undir
leiðsögn sjúkraþjálfara
Hádegis- og eftirmiðdagstímar
Námskeið hefst 7. janúar
Upplýsingar og skráning í síma 897-2896 og á
www.bakleikfimi.is
Heilsulausnir
Sérsniðnar lausnir til að fyrirbyggja heilsubrest
Heilsumat, fræðsla og hreyfing
Námskeið hefjast 11. janúar
Reykleysisnámskeið
„Já, en ég fitna ef ég hætti að reykja“
er engin afsökun lengur!
Fræðsla, stuðningur, ráðgjöf og hreyfing.
Námskeið hefst 11. janúar
Heilsuhópur 60+
Námskeið fyrir 60 ára og eldri
Markviss hreyfing í góðum félagsskap
Námskeið hefst 11. janúar
BETRI HEILSA BORGAR SIG