Fréttablaðið - 05.01.2010, Blaðsíða 24
5. JANÚAR 2010 ÞRIÐJUDAGUR6 ● fréttablaðið ● heilsa
Úrval jógagreina sem kenndar eru á
Íslandi er með fjölbreyttara móti og
ættu allir að geta fundið eitthvað við
sitt hæfi.
Jógagreinum hefur fjölgað ört á Íslandi síð-
ustu ár með þeim afleiðingum að í boði er
ógrynni námskeiða sem miða við ólíkar
þarfir hvers og eins þótt ávallt sé leitast við
að hafa jákvæð áhrif á líkama og sál. Mikið
framboð gerir það að verkum að áhugasöm-
um reynist oft þrautin þyngri að greina á
milli allra þessara ólíku afbrigða og finna
það sem hentar best. Þeim til glöggvunar
fara hér á eftir dæmi um nokkrar jóga-
greinar sem eru í boði á Íslandi og hvar
þær eru meðal annars kenndar. - rve
Mannræktarkerfi sem
allir geta lagt stund á
Jóga eru nokkuð þúsund ára gömul fræði sem rekja uppruna sinn til Indlands og byggja á slökun, öndunar-
æfingum, ákveðnum stöðum, íhugun og stundum réttu fæðuvali. Jóga er ekki trú heldur mannræktarkerfi
sem leitast við hafa jákvæð áhrif á líkama og sál. NORDICPHOTOS/GETTY
Heitt jóga (e. Hot yoga) gengur út á jógastöður og
teygjur í miklum hita. Hiti er aukinn til að draga úr
viðnámi vöðva við teygjum, svo hægt sé að komast
dýpra í stöðurnar ásamt því að draga úr líkum á
meiðslum og auka líkur á bata eftir meiðsli. Kennt
meðal annars í Sporthúsinu, Yoga Shala Reykjavík
og Jóga Stúdíó. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Hatha-jóga er þekktasta gerð jóga á Vesturlöndum,
undirstaða flestallrar jógaleikfimi, þar sem
fjöldi afbrigða af því er jafnframt kennt, svo
sem asht anga-jóga og kripalu-jóga. Hatha-jóga
byggist á 84 stöðum, öndun og slökun og er kennt
í einhverri mynd víðast hvar á landinu, svo sem hjá
Yoga Shala Reykjavík, Yogastöðinni Heilsubót og
Kærleikssetrinu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Barna jóga samanstendur yfirleitt af léttum æfing-
um, slökun og hugleiðslu fyrir börn. Barna jóga er
kennt hjá Studio Fitt og Ljósheimum svo dæmi séu
tekin.
Rope-jóga eru æfingar sem Guðni Gunnarsson hefur hannað og miða að því að nota meðal annars öndun
og teygjur með böndum til að styrkja grunnvöðva kviðarins til að ná jafnvægi og styrk og draga úr streitu.
Kennt hjá Rope Yoga setrinu, Hress, NordicSpa, World Class, Jassballetskóla Báru og víðar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Jóga fyrir golfara. Íþróttafólk stundar jóga í aukn-
um mæli til að ná góðum árangri í sinni íþrótt. Jóga
fyrir golfara er sniðið að þörfum kylfinga og ætlað
að bæta frammistöðu þeirra á vellinum og stuðla
að góðri heilsu og almennri vellíðan. Kennt hjá
World Class og Yoga Shala Reykjavík.
Auk þessara greina má nefna kraftjóga, jóga
gegn streitu og kvíða, jóga-pilates, jóga með
blómadropaívafi, kundalini-jóga, raja-jóga,
tantra-jóga og er þá aðeins fátt upp talið.
Meðgöngujóga er fyrir verðandi mæður og á að
stuðla að vellíðan á meðgöngu ásamt því að vera
góður undirbúningur fyrir fæðingu. Mömmujóga er
ætlað nýbökuðum mæðrum sem geta haft börnin
með nokkrum vikum eða mánuðum eftir fæðingu.
Annað eða hvort tveggja kennt til að mynda hjá
Hreyfilandi, Lótus Jógasetri og Mecca Spa.
Í Kramhúsinu er lagt upp með að börn og ungling-
ar læri á eigin forsendum og byggist starfið á engan
hátt á keppni. Þar er boðið upp á fjölbreytt úrval
dansnámskeiða sem gefa mörg hver innsýn inn í aðra
menningarheima.
„Við erum með breik, krump og hipp hopp, street,
funk og locking, magadans, bollywood-dans, afro og
nútímadans svo dæmi séu tekin en nemendurnir fræð-
ast um uppruna dansanna og fá tækifæri til að kynn-
ast menningu annarra þjóða sem vonandi eykur víð-
sýni þeirra um leið,“ segir Þórunn Ásdís Óskarsdóttir,
starfsmaður Kramhússins.
Hún segir krakkana fá mikla útrás í dansinum og
að gleðin skíni úr andlitum þeirra. „Við sjáum oft
mikinn mun á börnunum og þau fara fljótt að bera
sig betur og verða öruggari með sig. Þá hafa marg-
ir sem hafa ekki fundið sig í hópíþróttum blómstrað
hjá okkur.“
Leiklistarstarf fyrir börn hefur verið fastur liður í
starfi Kramhússins frá upphafi, eða síðastliðin 26 ár,
en í vetur mun leikkonan Alexía Björg Jóhannsdóttir
hafa umsjón með starfinu sem er fyrir níu til ellefu
ára og tólf til fjórtán ára börn.
- ve
Fá útrás og fyllast gleði
Krakkarnir læra breik-dans hjá Natöshu Monay Royal, sem
ólst upp í Brooklyn og New York, og fá innsýn inn í bandaríska
götudansmenningu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM