Fréttablaðið - 05.01.2010, Síða 26
5. JANÚAR 2010 ÞRIÐJUDAGUR8 ● fréttablaðið ● heilsa
Þegar sól hækkar á lofti og enn er víða snjór á lág-
lendi, þyrstir marga í að komast út og hreyfa sig.
Gönguskíði eru frábær kostur því íþróttin er þess
eðlis að flestir eiga auðvelt með að stunda hana og er
hún frábært fjölskyldusport.
Vissulega er ákveðinn stofnkostnaður við að kaupa
sér skíði, skó, bindingar og stafi en búnaðurinn er þó
mun ódýrari en svigskíðabúnaður og úreldist seint.
Vorin eru oft besti tíminn til að fjárfesta í búnaði því
þá eru oft tilboð og útsölur á skíðabúnaði.
Fjölmargir Íslendingar stunda íþróttina og að-
stæður til iðkunar hennar verða sífellt betri. Útbún-
ar eru gönguskíðabrautir í nágrenni skíðasvæðanna
í Reykjavík, í Heiðmörk, við Hlíðarfjall á Akureyri,
í Kjarnaskógi og víðar um landið. Það er þó alls ekki
skilyrði að vera í gönguskíðabraut til að geta stundað
gönguskíði og tilvalið að keyra svolítið út fyrir bæj-
armörkin og fá sér göngutúr á skíðunum. Í nágrenni
Reykjavíkur er algengt að sjá fólk á gönguskíðum
uppi á Hellisheiði, Mosfellsheiði og víðar. Göngu-
skíðaiðkun hentar öllum aldurshópum og í Noregi er
alþekkt að heilu stórfjölskyldurnar gangi í halarófu
á góðum dögum.
Hreyfingin sem fólk fær á gönguskíðum er mjög al-
hliða. Vissulega reynir íþróttin á fæturna, því meira
eftir því sem lengra og hraðar er farið. En hend-
ur, bak og magi fá líka að taka á því. Kosturinn við
íþróttina er að auðvelt er að ná tökum á henni, hægt
er að stunda hana á sínum hraða, í lengri eða styttri
tíma í senn. Hún krefst útiveru og yfirleitt líður fólki
dásamlega vel eftir ástundun hennar.
- bb
Gönguskíði eru fyrir alla fjölskylduna sem getur þá gengið
saman eftir gönguskíðabrautum sem finnast um á öllum
helstu skíðasvæðum þegar snjór leyfir. NORDICPHOTOS/GETTY
Frábært fjölskyldusport
Linda Björk Sumarliðadóttir
segir mikið frelsi fólgið í iðkun
brettaíþrótta.
„Um og yfir sjötíu prósent þeirra
sem fara í fjöllin eru á bretti sam-
kvæmt mælingum í Hlíðarfjalli,“
segir Linda Björk Sumarliðadótt-
ir. „Mun fleiri af þeim sem stunda
fjöllin „hversdags“, það er ekki
bara um páska og einstaka helgar,
eru á brettum frekar en skíðum.“
Hún telur ástæðuna vera þá að
yngra fólk sé meira á brettum,
sennilega af því að það er meira
frelsi fólgið í brettaiðkun. „Það er
auðveldara fyrir hvern sem er að
taka bretti og renna sér heldur en
að stunda skíði með öllum sínum
reglum. Svo er hægt að stökkva á
bretti og gera alls konar kúnstir
þannig að það er kannski bara
meira spennandi að vera á bretti.
Og skemmtilegra.“
Linda hefur iðkað brettaíþrótt-
ir í tíu ár. „Ég byrjaði á brettum
1999. Mig langaði alltaf í snjó-
bretti og keypti mér bretti þegar
ég var átján ára. Upp úr því kynnt-
ist ég svo krökkum sem voru mikið
á brettum og fór að hanga með
þeim. Nú eru brettin stór hluti af
lífi mínu. Út frá snjóbrettinu fór
ég á hjólabretti og þaðan á brim-
bretti. Það er kannski eitt af því
sem dregur fólk að brettunum, Það
er félagsskapur í kringum brettin
allt árið, ekki bara á veturna.“
Linda bendir á að ekki þurfi að
eiga flókinn búnað á snjóbretti.
„Þú þarft að eiga bretti, binding-
ar og skó en svo er hægt að vera
með hlífar og hjálm. Það skiptir
ekkert öllu máli í hverju þú ert en
ef þú ert í einhverju sem þér finnst
flott þá líður þér betur í fjallinu.
Þú þarft ekki að vera mjög töff til
að vera á snjóbretti en ef þú fílar
þig þá ertu töff.“ Árlega er haldið
Íslandsmeistaramót í snjóbretta-
iðkun en einnig eru haldnar svo-
kallaðar „sessjónir“ þar sem fólk
kemur saman og stekkur og svo
velja keppendurnir sjálfir hver
þeim fannst bestur. „Í ár ætlum
við að hafa sýningarkeppni á Blá-
fjalladeginum,“ segir Linda. Gefn-
ar eru þrjár einkunnir fyrir stökk
sem taka mið af því hvernig stökk-
ið er, hversu langt er stokkið og
hvernig lendingin er. Það síðast-
nefnda skiptir öllu máli að sögn
Lindu. „Það getur hver sem er
nánast hent sér í hvaða trikk sem
er en að lenda er listin. Og oft er
helmingurinn af einkunninni fyrir
lendinguna eina.“
Brettaiðkendur eru komir með
aðstöðu í Bláfjöllum og ætla í
framhaldi af því að hafa bretta-
skóla þar sem bæði byrjendur og
lengra komnir geta fengið tilsögn í
íþróttinni. Nánar á brettafelag.is.
- bb
Ef þú fílar þig þá ertu töff
„Út frá snjóbrettinu fór ég á hjólabretti og þaðan á brimbretti,“ segir Linda sem hefur iðkað brettaíþróttir í tíu ár.
Laugavegi 178 - Sími: 562-1000 - www.utivist.is
Skipulegðu nýtt
ferðaár með Útivist
Ferðaáætlun Útivistar er
á www.utivist.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
S
F
G
4
20
40
0
4.
20
08
Fæst í verslunum Maður Lifandi
PH-ion Green Alkalizing Superfood er kraftmikið næringarríkt grænt duft sem hjálpar við
að afeitra ristilinn og blóðið. Það inniheldur mikið af góðum vitaminum, steinefnum,
ensýmum, söltum og snefilefnum, aminosýrum og andoxunarefnum.
Inniheldur sérlega stóran skammt af blaðgrænu
Hjálpar líkamanum að komast í jafnvægi og verða basískari
Hreinsar blóðið og viðheldur réttu sýrustigi í líkamanum
Dregur úr streitu, styrkir ónæmiskerfið og eykur orku
Kemur jafnvægi á blóðsykurinn, meltinguna og sýrustigið í þörmunum
Maður Lifandi veitir faglega ráðgjöf varðandi hreinsanir, erum með ýmsar lausnir fyrir þig.
Frábær tilboð í verslunum okkar varðandi hreinsanir.
Græna duftið sem allir eru að tala um!
Borgartún 24 – Hæðarsmára 6 – Hafnarborg s. 58 58 700 www.madurlifandi.is