Fréttablaðið - 05.01.2010, Síða 27
ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 2010 9heilsa ● fréttablaðið ●
Karítas Sif Halldórsdóttir hefur
æft íshokkí síðan hún var fimmt-
án ára. Hún heillaðist af sportinu
löngu áður en hún byrjaði að æfa
og nú getur hún ekki hætt.
„Mér finnst þetta bara frábært.
Þetta er hröð íþrótt og „kontakt-
sport“ sem gerir það skemmti-
legt,“ segir Karítas og útskýr-
ir fyrir blaðamanni að hún hafi
aldrei ætlað sér að fara í mark.
„Það gerðist eiginlega; ég var eitt-
hvað að leika mér og prófaði mark.
Mér gekk geðveikt vel, varði mikið
og þetta kom voða fljótt,“ segir
Karítas, sem æfir með Birninum
í Egilshöll.
Að sögn Karítasar getur kostn-
aðurinn við að byrja að æfa íshokkí
verið mikill. „Fyrst var maður
bara með lánsskauta og ég keypti
notaðan galla. Það er geðveikt dýrt
að starta þessu en svo þegar þú átt
allt er þetta ekki jafn dýrt og fólk
heldur,“ útskýrir hún.
Kvennalið í íshokkí eru þrjú á
Íslandi: Björninn í Reykjavík og
Skautafélag Akureyrar sem skipt-
ist í tvö lið, Junior og Senior. Kar-
ítas er í landsliðinu en í fyrra
var ekki haldin heimsmeistara-
keppni. „Engin þjóð gaf sig fram
til að halda keppnina, því þjóðin
sem heldur hana lendir yfirleitt í
mínus,“ segir Karítas og bætir við
að konurnar fái helmingi lægri
styrki heldur en karlarnir auk
þess sem ekki sé hægt að selja inn
á leikina.
En hvað sem öllu óréttlæti líður
er almennt góður andi í kvennaís-
hokkíinu. „Við erum voða lítið í að
meiða hver aðra, við erum svo sið-
samlegar. Strákarnir eru miklu
æstari á geði,“ segir Karítas. - nrg
Góður andi í íshokkí
Karítas í fullum herklæðum en búin að
taka af sér hjálminn, búnaðurinn er
algjör skylda ætli maður sér að fá pökk-
inn í sig.
Á æfingu í Egilshöll. Liðið getur aðeins treyst á markmanninn þegar andstæðingur-
inn hefur sloppið í gegnum vörnina. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Tinna Sigurðardóttir, skrifstofu-
og sölustjóri hjá Arctic Advent-
ures, er mikil ævintýrakona og
stundar jaðarsport af ýmsu tagi.
Hún hefur þó nokkra reynslu af
ísklifri og stefnir að því að verða
jöklaleiðsögumaður þegar fram
líða stundir. „Ég er byrjuð í námi
hjá Arctic Adventures og hef farið
sem aukaleiðsögumaður í nokkrar
ferðir en fyrirtækið býður upp á
dagsferðir á Sólheimajökul.“
Tinna segir útiveruna heilla
sig mest. „Mér finnst spennandi
að klifra en álíka gaman að ganga
um jökulinn á broddum og virða
fyrir mér umhverfið og útsýnið.“
Tinna notast oftast við topp-línu en
á léttari veggjum hefur hún prófað
sig áfram með ísskrúfur. „Þetta er
sport sem reynir mikið á og tekur
til að mynda vel á hendurnar.“
Ísklifrið er langt frá því eina
íþróttin sem Tinna leggur stund
á. Hún hefur lengi stundað köfun
á Þingvöllum auk þess að vinna
sem leiðsögumaður í flúðasigl-
ingum á sumrin. „Þá útskrifað-
ist ég sem gönguleiðsögumaður
úr Leiðsögumannaskólanum í vor
auk þess sem ég hef verið að prófa
mig áfram í brettasportinu. Hjóla-
brettið lagði ég þó til hliðar þegar
ég handleggsbraut mig á því fyrir
nokkru en sneri mér þess í stað að
að brimbrettaiðkun og stefni að því
að fara til Filippseyja. Þar ætla ég
að dvelja í mánuð og reyna að ná
góðum tökum á brettinu. - ve
Útiveran heillar mest
Tinna er yfirleitt í topp-línu en á léttari
veggjum prófar hún sig áfram með
ísskrúfur. MYND/ÚR EINKASAFNI
Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | www.veggsport.is
Skokk – spinning – tækjasalur 2 sinnum í viku
Áhersla : Þol – Styrkur – Liðleiki – Mikil brennsla
Vikulegar mælingar og ráðleggingar um mataræði
Tímar: kl.6:30 | 7:45 | 9:30
Upplýsingar og skráning í síma 577-5555
HÖRKU
ÁTAKSNÁMSKEIÐ
Hörku átaksnámskeið er að hefjast í Veggsport
5 vikna námskeið - 5 sinnum í viku
Hentar konum jafnt sem körlum
Kennari er Nadja
Staðreyndir um dagblaðalestur
Íslendingar yngri en 55 ára verja lengri tíma á virkum dögum
til að lesa síður Fréttablaðsins en síður Morgunblaðsins.
Heimild: Lestrarkönnun Capacent maí-okt 2009.