Fréttablaðið - 05.01.2010, Síða 31

Fréttablaðið - 05.01.2010, Síða 31
ÞRIÐJUDAGUR 5. janúar 2010 3 D-vítamín nýtir kalk og fosfór, sem er nauð- syn fyrir sterk bein og tennur. Það fæst til dæmis úr laxi, síld, sveppum, eggjum og mjólkur- afurðum. Ný og betri bæti- efnabiblía. Sex vikna lífsstílsnámskeið eru nýjung í starfsemi fyrirtækisins Maður lifandi. Arndís Thorar- ensen framkvæmdastjóri lýsir þeim. „Við munum fjalla bæði um and- lega og líkamlega næringu á nýju sex vikna lífsstílsnámskeiði sem hefst 18. janúar og horfa á heild- arpakkann. Þar verður bæði farið í hvaða fæðu við eigum að velja okkur og hvernig hún virkar fyrir líkamann en líka er lögð áhersla á að við nærumst á mörgu öðru en mat,“ segir Arndís og á þar greini- lega við sálrænt fóður. Nemendur mæta í níu skipti á námskeiðstímabilinu og byrja og enda á að fara í heilsufarsmat sem fer fram með einstaklingsviðtöl- um. Það telur Arndís hafa mikið að segja. „Þá fær fólk yfirsýn og áttar sig á því hvaða markmið það ætlar að setja sér. Við erum öll svo föst í vananum og gerum okkur ekki allt- af ljóst hvar við erum stödd,“ segir hún. „Þetta snýst ekki um að pína sjálfan sig heldur um að breyta venjum jafnt og þétt og tileinka sér holla lífshætti.“ Aðalleiðbeinandi á lífsstílsnám- skeiðinu verður Ingibjörg Stefáns- dóttir, jógakennari, markþjálfi og heilsuráðgjafi, að sögn Arndís- ar. Einnig koma gestafyrirlesar- ar við sögu, svo sem Ásdís Ólsen, lektor í HÍ sem mun kenna fólki jákvæða sálfræði. „Allt hefst jú í huga okkar og fólk er oft með þrá um bætta heilsu en veit ekki alveg hvar á að byrja,“ bendir Arndís á. Maður lifandi hefur hingað til einkum verið með stutt námskeið en Arndís segir lífsstílsnámskeið- in eiga að veita fólki meira aðhald. „Algengt er að fólk reyni að breyta venjum upp á sitt eindæmi en vanti eftirfylgnina. Aðhald er þekkt í lík- amsrækt en við þurfum líka á því að halda í sambandi við hugarfar og mataræði,“ segir hún sannfær- andi. Arndís er nýráðin framkvæmda- stjóri hjá Manni lifandi. Hún hefur starfað í tíu ár hjá HR við kennslu í viðskiptadeild og símenntun og síðustu fjögur ár einnig sem einkaþjálfari og heilsuráðgjafi í World Class. Hún lítur hið nýja starf björtum augum. „Það er hlutverk okkar í Manni lifandi að auka aðgengi fólks bæði að fræðslu og góðri vöru enda erum við með matstofur, verslun og fræðsluset- ur,“ segir hún og tekur fram að holl máltíð verði í hverjum tíma á lífsstílsnámskeiðinu. „Rannsókn- ir í kennslufræðum sýna að sadd- ir nemendur læra meira og þeim gengur betur á prófum en svöng- um,“ segir hún að lokum. - gun Næringin í lífi okk- ar kemur víða að „Það er hlutverk okkar að auka aðgengi fólks bæði að fræðslu og góðri vöru,“ segir Arndís, nýr framkvæmdastjóri hjá Manni lifandi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Rope Yoga Námskeið hefjast í dag www.elin.is • Bæjarhrauni 2 Hfj. • Sími: 696 4419

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.