Fréttablaðið - 05.01.2010, Page 38
BAKÞANKAR
Júlíu
Margrétar
Alexanders-
dóttur
22 5. janúar 2010 ÞRIÐJUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Pabbi, þegar ég
ferðast á hraða
ljóssins verð ég þá
að gefa eitthvað
merki?
Þú munt taka eftir því
að það kemur svolítið
annað hljóð
úr hátölurun-
um núna.
Það
lægsta á
tónlistar-
sviðinu. Alvöru rokk og
ról?
Alltaf
best.
Alvöru
stuff,
þarna
erum við
að tala
saman.
Ætlar þú að
gera einhverj-
ar meiriháttar
breytingar á
staðnum nú
þegar þú átt
hann?
Tja, ég veit
ekki, hún
Lolla elskaði
jú Coldplay,
U2 og Sálina,
þú veist, þetta
skelfilega
leiðinlega
stelpupopp.
Það er mikil vinna
sem liggur þarna
að baki en svipur-
inn á honum gerði
þetta þess virði.
Hvað ertu
að gera? Heima-vinnuna.
Hvers konar
heimavinnu? Stærð-fræði.
Ég er
hræddur við
heimavinnu.
Hvers
konar
stærð-
fræði?
Ég-ætla-að-lemja-
litla-bróður-minn-
ef- hann-kemur-sér
-ekki-í-burtu-og-leyfir-
þér-að-gera-heimavinn-
una-í-friði-stærðfræði.
Algengur misskilningur kemur gjarnan upp þegar umræðuna um aðskilnað
ríkis og kirkju ber á góma. Að þar standi
trúleysingjar fremstir í flokki þeirra sem
vilja kirkjuna úr ríkisrekstri. Sem trúuð
manneskja og fullgildur meðlimur í þjóð-
kirkjunni er ég viss um að vandamálin sem
kirkjan glímir við í dag, doði og trúleysi,
gætu kannski farið að leysast að einhverju
leyti ef kirkjan tæki þá ákvörðun að hafna
framlögum úr ríkiskassanum og kjósa frek-
ar að standa á eigin fótum eins og önnur
trúfélög á landinu.
VANDI þjóðkirkjunnar sem ríkisstofnun-
ar felst einmitt í því orði: ríkisstofnun. Guð
er ekki ríkisstarfsmaður. Jesús var það
ekki heldur á sínum tíma. Jesús var bylt-
ingarmaður sem trúði því að hans ríki
væri af öðrum heimi. En því miður eru
prestar þjóðkirkjunnar í mínum huga
fyrst og fremst ríkisstarfsmenn; vissu-
lega mikil alhæfing og eflaust eru þeir til
sem þessi lýsing á ekki við. En þegar ég
hugsa um þjóðkirkjuna í heild sinni er hún
ekki sveipuð þeim baráttuanda né sann-
færingarkrafti sem ætti að vera eitt af
aðalsmerkjum hennar og hrífur fólk til
trúar.
RÍKISKIRKJAN stuðar mig ekki
sem mikið ástríðuapparat enda
þarf hún ekki að hafa miklar
áhyggjur af kirkjusókn, fjárlög-
in taka vart tillit til þess hvort
tíu eða hundrað mæta að meðaltali í kirkju
um hverja helgi. Kirkjan þarf raunar held-
ur ekki að hafa neinar áhyggjur af trúar-
lífi landsmanna. Ríkið borgar hvernig sem
staðan er.
Á tímum efahyggju og vísinda hefur trúin
átt undir högg að sækja. Og þá er stóra
spurningin sú hvort mögulegt sé að sækja
sína trúarsannfæringu til manna sem fá
alltaf greidd laun í hverjum mánuði frá rík-
inu. Að maður, sem hefur kvittað upp á að
Guð eigi sinn þátt í sögunni, sem gaf son
sinn svo að hann gæti frelsað mannkynið
frá syndinni, skuli þiggja laun sín frá jafn
óhelgri stofnun og ríkið er, getur varla tal-
ist rökrétt. Jú, kannski í menningarsögu-
legu tilliti en trúin á Jesú Krist hefur ekk-
ert með „menningarsögulegt tillit“ að gera,
trúin er ástríða, fullvissa þess að maður
eigi fyrir höndum eilíft líf eftir dauðann.
ÍSLENSK kirkja hefur húsnæði, starfsfólk,
oblátur og messuvín. Sannfæringin fyrir
tilvist Guðs, sem er einmitt svo mest heill-
andi við það að vera kristinnar trúar, býr
þó varla í ríkisbákni. Kirkjan virkar því
miður fráhrindandi á mig en hún á hins
vegar góðan möguleika á að ég öðlist trú á
hana og þá helst ef hún berst fyrir eigin til-
verurétti. Kirkjan ætti að taka ímynd sína
og útgeislun til verulegrar endurskoðun-
ar; hún virðist aðeins komast í umræðuna
þegar hjónaleysi velja sér vinsælar tíma-
setningar á borð við 10.10.10.
Sannfærðir kirkjugestir
Notuð tæki til
líkamsræktar
Vegna endurnýjunar og breytinga höfum við til
sölu notuð tæki til líkamsræktar.
Dæmi:
• Matrix Treadmill - Hlaupabretti
• Matrix Cross trainer - Skíðavél
• Matrix X bike - Spinning hjól
• Fjölmörg önnur fjölnota tæki
Til sýnis og sölu í Egilshöllinni
Nánari upplýsingar veita
Gunnar í síma 664-9601, gunnar@egilshollin.is
og Sigurgeir í síma 664-9602
Fossaleyni 1 - 112 Reykjavík
www.egilshollin.is
Austurbergi 5 111 Reykjavík Sími 570 5600
Símbréf 567 0389 Tölvupóstur: fb@fb.is
www.fb.is
UPPHAF VORANNAR 2010
ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR
Töfl uafhending kl. 9:00-13:00
í mötuneyti nemenda
FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR
Innritun í kvöldskóla 17:00-20:00
FÖSTUDAGUR 8. JANÚAR
Kennsla hefst í dagskóla
skv. stundaskrá.
MÁNUDAGUR 11. JANÚAR
Kennsla hefst í kvöldskóla
skv. stundaskrá.
Skólameistari