Fréttablaðið - 13.01.2010, Blaðsíða 2
2 13. janúar 2010 MIÐVIKUDAGUR
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
Gellur og kinnar
nýjar og saltaðar
Hrogn, lifur og kúttmagi
Súr Hvalur
OPNUM KL 8.00
HEILSA Kraftaverkaefni sem Landlæknisembættið
hefur varað við hefur verið selt í Heilsubúðinni Góð
heilsa gulli betri við Njálsgötu. Efnið nefnist MMS,
Miracle Mineral Solution/Supplement. Eitrunarmið-
stöð Landspítalans segir efnið geta valdið alvarleg-
um veikindum og jafnvel dauða.
Viktoría Áskelsdóttir, verslunarstjóri Heilsubúð-
arinnar, segist hafa tekið MMS úr sölu meðan Heil-
brigðiseftirlitið kannar málið. Hún áréttar um leið að
MMS hafi verið notað með góðum árangri sé það rétt
blandað. Þá verði ekki til natríum klórít sem eitrun-
armiðstöð Landspítalans vari við.
Samkvæmt upplýsingum úr heilsuvöruverslunun-
um Heilsuhúsinu, Manni lifandi og Yggdrasil hefur
efnið ekki verið í sölu hjá þeim.
„Ég hef haft þá reglu að setja ekkert í sölu sem ég
er ekki tilbúin að prófa á sjálfri mér,“ segir Ben ed-
ikta Jónsdóttir, heilsuráðgjafi í Manni lifandi.
Í tilkynningu landlæknis kemur fram að MMS-
vökvinn innihaldi 28 prósent natríum klórít og sagt
ætlað að lækna sjúkdóma allt frá alnæmi til berkla.
Engin vísindaleg gögn styðji þó notkun við sjúkdóm-
um.
„Natríum klórít er eitur sem valdið getur met-
rauðablæði, skemmdum á rauðum blóðkornum og
nýrnabilun,“ segir í tilkynningunni og er eindregið
varað við notkun efnisins. „Mikilvægt er að tilfelli
þar sem grunur leikur á eitrun af völdum MMS séu
tilkynnt til yfirvalda.“ - óká
VIKTORÍA ÁSKELSDÓTTIR BENEDIKTA JÓNSDÓTTIR
Hér á landi er vitað til þess að fólk hafi keypt og notað MMS:
Varað við lífshættulegu efni
STJÓRNSÝSLA Kjararáð hefur enn
ekki lækkað laun þeirra starfs-
manna ríkisins sem eru á hærri
launum en forsætisráðherra, eins
og kveðið er á um í lögum sem sett
voru síðasta sumar. Á fimmta tug
starfsmanna mun lækka í laun-
um segir Guðrún Zoëga, formað-
ur kjararáðs.
Ákvörðun um launalækkun telst
íþyngjandi ákvörðun samkvæmt
stjórnsýslulögum, og því skylt að
veita þeim sem lögin hafa áhrif á
andmælarétt, segir Sigrún. Hún
reiknar með að einhverjar vikur
til viðbótar taki að lækka launin.
Samkvæmt lögunum má enginn
starfsmaður ríkisins eða ríkisfyr-
irtækis, utan við forseta Íslands,
vera á hærri launum en forsætis-
ráðherra. Laun forsætisráðherra
eru nú um 935 þúsund krónur.
Spurð hversu margir starfs-
menn muni lækka í launum segir
Sigrún að í fyrstu verði laun ríf-
lega tuttugu starfsmanna lækkuð.
Væntanlega verði svo annar eins
fjöldi í síðari lotunni, þegar fjall-
að verði um dótturfélög ríkisfyrir-
tækja. Fjöldinn verður því saman-
lagt eitthvað á fimmta tuginn.
Lögin voru sett síðastliðið sumar,
en laununum hefur enn ekki verið
breytt. Spurð hverju það sæti segir
Guðrún málið snúið, og ýmis álita-
efni sem taka þurfi á. Um töluvert
marga einstaklinga sé að ræða, og
stefnt að því að úrskurða um allan
hópinn í einu. - bj
Yfir fjörutíu ríkisstarfsmenn hafa ekki lækkað í launum þrátt fyrir lagasetningu:
Ríkisforstjórar vefjast fyrir kjararáði
LAUNAÞAK Engir ríkisstarfsmenn, utan
forseta Íslands, eiga að hafa hærri laun
en Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráð-
herra samkvæmt lögum sem sett voru í
sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Steinþór, er Borgin að borga
sig?
„Já, eða að minnsta kosti fyrir
einum borgara í hádeginu.“
Hið tæplega ársgamla útgáfufyrirtæki
Borgin seldi 35 þúsund plötur fyrir jól.
Steinþór Helgi Arnsteinsson er einn
eigenda Borgarinnar.
RÚSSLAND, AP Sergei Lavrov,
utanríkismálaráðherra Rúss-
lands, segir að nýr kjarnorku-
afvopnunar-
samningur
Bandaríkjanna
og Rússlands
verði líklega að
veruleika síðar
í mánuðinum.
„Við vonum
að þetta verði
einhvern tím-
ann í seinni
hluta jan-
úarmánaðar,“ sagði Lavrov í
Moskvu í gær.
Samningurinn á að koma í
staðinn fyrir START-samning-
inn frá 1991, sem rann út í byrj-
un desember. Rússar og Banda-
ríkjamenn höfðu stefnt að því að
ná nýjum samningi fyrir árslok,
en það tókst ekki. - gb
Utanríkisráðherra Rússlands:
Styttist í nýjan
vopnasamning
SERGEI LAVROV
STJÓRNMÁL Forsenda þess að Bret-
ar og Hollendingar hefji viðræð-
ur við Íslendinga um nýja Icesave -
samninga er að full samstaða
takist með íslensku stjórnmála-
öflunum. Í slíkri samstöðu myndi
felast trygging fyrir að nýir samn-
ingar myndu halda. Um leið þurfa,
að mati Breta og Hollendinga, að
liggja fyrir skýr samningsmark-
mið af hálfu Íslands.
Íslenskum stjórnmála- og emb-
ættismönnum, sem átt hafa í sam-
skiptum við starfsbræður sína í
Bretlandi og Hollandi, hefur verið
gert þetta ljóst.
Samkvæmt upplýsingum Frétta-
blaðsins hafa þau samskipti verið
stöðug síðustu daga. Upplýsingum
er miðlað á báða bóga og þreifað
á viðmælendum en engar form-
legar yfirlýsingar verið gefnar.
Þá hefur Steingrímur J. Sigfús-
son fjármálaráðherra hitt að máli
sendiherra nokkurra Evrópuríkja
á Íslandi.
Bretar og Hollendingar eru var-
færnir enda forðast þeir íhlutun í
íslensk innanríkismál. Þeim er
bent á að mikil óvissa kunni að
skapast um lyktir Icesave felli
íslenska þjóðin lögin þar um í
þjóðaratkvæðagreiðslu. Í krafti
þess er reynt að fá þá að samn-
ingaborðinu að nýju.
Lagt er upp með að nýjar við-
ræður yrðu frábrugðnar hinum
fyrri að því leytinu til að sátta-
semjari yrði fenginn til að stýra
þeim.
Bretar og Hollendingar hafa
sagt að eigi að koma til nýrra við-
ræðna þurfi Íslendingar að óska
eftir þeim með formlegum hætti.
Þeir muni ekki biðja um viðræður
að fyrra bragði.
Jóhanna Sigurðardóttir forsæt-
isráðherra ræddi á mánudag, auk
fjármála- og utanríkisráðherra,
við forystumenn stjórnarandstöð-
unnar. Þar var sammælst um að
reyna að koma málinu í sáttafar-
veg. Eftir fundinn sagði Jóhanna
Breta og Hollendinga hafa lýst
skilningi á stöðunni hér þótt þeir
hafi um leið lýst vonbrigðum með
hana.
Auk þess að reyna að finna flöt
á nýjum viðræðum við Breta og
Hollendinga hafa íslensk yfirvöld
átt í samskiptum við Norðurlönd-
in vegna lánamála. Samningar um
lánveitingar fóru í salt í framhaldi
af ákvörðun forseta Íslands í síð-
ustu viku.
Eftir því sem næst verður kom-
ist hefur ekkert nýtt gerst á þeim
vettvangi en áfram er reynt að
þoka málum. bjorn@frettabladid.is
kolbeinn@frettabladid.is
Íslensk samstaða er
forsenda viðræðna
Ekki kemur til nýrra samningaviðræðna um Icesave nema full eining ríki milli
stjórnmálaflokkanna á Íslandi. Bretar og Hollendingar vilja tryggingu fyrir að
nýir samningar haldi. Þeim er bent á mikla óvissu felli þjóðin lögin úr gildi.
ODDVITARNIR Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrímur J. Sigfússon
fjármálaráðherra hafa átt í stöðugum samskiptum við erlenda ráðamenn síðustu
daga. Myndin er frá fundi þeirra með blaðamönnum daginn sem forsetinn tilkynnti
um ákvörðun sína um Icesave. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VINNUMARKAÐUR Vinnumála-
stofnun áætlar að hátt í fjöru-
tíu manns bætist á atvinnuleys-
isskrá á hverjum degi út janúar.
Þetta sagði forstöðumaður vinnu-
málasviðs Vinnumálastofnunar á
Bylgjunni í gær.
Frá áramótum hafa 300 manns
skráð sig atvinnulausa. Nú eru um
sextán þúsund manns á atvinnu-
leysisskrá og atvinnuleysi mælist
8,1 prósent. Mest var það 9,1 pró-
sent í apríl í fyrra. Þá voru tæp-
lega sautján þúsund manns skráð-
ir án atvinnu. Gert er ráð fyrir
að atvinnuleysið nái áður óþekkt-
um hæðum á næstu mánuðum og
verði um eða yfir tíu prósent. - sh
Atvinnuleysi í nýjum hæðum:
Fjörutíu á dag
missa vinnuna
Ópíumrækt ræður úrslitum
Tom Wilsnack, landbúnaðarráðherra
Bandaríkjanna, segir útkomu stríðsins
í Afganistan ráðast af því hvort takast
megi að fá afganska bændur til að
hætta ræktun ópíumvalmúa. Banda-
ríkjamenn ætla að verja 20 milljónum
dala í þetta verkefni.
AFGANISTAN
Kínverjar leggja flugvöll
Kínverjar ætla að opna nýjan flugvöll
í Tíbet árið 2011 í rúmlega 4.400
metra hæð. Þetta verður sá flugvöll-
ur í heiminum sem hæst stendur.
Gagnrýnendur óttast að aukin umferð
til héraðsins flýti fyrir eyðileggingu
tíbetskrar menningar.
TÍBET
Sextán ára transgender
Sextán ára piltur hefur undirgeng-
ist kynskiptiaðgerð á Spáni, fyrstur
Spánverja undir lögaldri sem fer í
slíka aðgerð.
SPÁNN
BANDARÍKIN Tveir menn létust og
þrír særðust þegar vopnaður
maður hóf skotárás í gær í
skrifstofubyggingu í úthverfi
Atlanta í Bandaríkjunum.
Byssumaðurinn flúði á pallbíl,
en var handtekinn stuttu síðar.
Hann var klæddur felubúningi að
hætti hermanna.
Bandarískir fréttamiðlar
skýrðu frá þessu í gærkvöld.
Maðurinn var fyrrverandi
starfsmaður á bílaleigunni sem
hann réðist á. Fjórir þeirra, sem
urðu fyrir skotum hans, voru
starfsmenn bílaleigunnar, en sá
fimmti var viðskiptavinur.
- gb
Skotárás í Atlanta:
Tveir látnir og
þrír særðir
ÞJÓÐKIRKJAN Náðst hefur sátt í
máli séra Guðbjargar Jóhannes-
dóttur og Biskupsstofu að því er
kemur fram á
heimasíðu Þjóð-
kirkjunnar.
Séra Guðbjörg
vísaði til kæru-
nefndar jafn-
réttismála máli
vegna stöðu-
veitingar prests
í Garðapresta-
kalli frá 1. sept-
ember í haust.
Guðbjörg var
ein umsækjenda en séra Hans
Guðberg Alfreðsson var skip-
aður. „Biskupsstofa telur að við
skipun í embættið hafi verið brot-
ið gegn lögum um jafna stöðu og
jafnan rétt kvenna og karla nr.
10/2008 og að litið hafi verið fram
hjá umframhæfi sr. Guðbjargar.
Með sátt er málinu lokið af hálfu
beggja aðila,“ segir á kirkjan.is.
- gar
Kirkjan semur við kvenprest:
Játar brot við
skipan prests
SÉRA GUÐBJÖRG
JÓHANNESDÓTTIR
SPURNING DAGSINS