Fréttablaðið - 13.01.2010, Blaðsíða 22
BAKÞANKAR
Kolbeins
Óttarssonar
Proppé
18 13. janúar 2010 MIÐVIKUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Nýir
skór.
Ný jakkaföt. Fokdýrt hvítvín
handa öllum.
Og samt
fer ég
einn heim
í kvöld.
Samt,
flottar
græjur!
Hmm... nærbuxur
sem liggja á
gólfinu.
Hreinar
eða skí-
tugar?
Hreinar
eða skí-
tugar?
Hreinar eða
skítugar?
Ég hef sál
áhættufíkils
en ekki snefil
af innsæi.
Pabbi,
hefurðu
séð stærð-
fræðibók
Hannesar?
Já, hún
er frá-
bær!
Hann virðist skilja undirstöðuat-
riðin miklu betur en Solla gerði
á sama tíma.
Ég heyrði að
barnaskóla-
stærðfræðin
væri auðveldari
um þessar
mundir.
Og það er byrjað á ný. Aftur hefur verið tekinn snúningur á Icesave og í
hugum margra virðumst við vera komin á
byrjunarreit. Nú á víst ekki að borga neitt,
eða hvað? Samstaða sem fyrir nokkr-
um dögum virtist vera fyrir hendi um
eitthvert lágmark er horfin út í veður og
vind. Þeir sem þráðu ekkert heitar – fyrir
hönd lýðræðisins og íslensku þjóðarinnar,
fráleitt sína eigin – en að þjóðin fengi að
greiða atkvæði, sjá nú á því alla meinbugi.
Og þeir sem einu sinni töldu bestu mögu-
legu samningum náð telja að nú, einmitt
nú, sé bestu mögulegu samningum náð. Og
skynsemin liggur í valnum.
HÆTTU, hættu áður að hálsi þér sjálf-
um verði snaran snúin. Svo orti Jónas í
kvæði sínu um galdraveiðina og þrúðga
þrætudrauginn og svo var mælt í
Lukku-Láka þegar orðgnóttin var
orðin einum um of. Hættu, hættu.
EFTIR maraþonumræður á Alþingi, eftir
ótal viðtöl, eftir mýmargar greinar, eftir
fjölda frétta, eftir gnótt fréttaskýr-
inga, eftir útskýringar á útskýring-
ar ofan, þá stöndum við … tja, hvar?
Hvar er Icesave-málið statt í dag?
Hvort er það að fara í þjóðarat-
kvæðagreiðslu eða ekki? Og
um hvað á þá að kjósa? Eða
er loksins að nást pólitísk
samstaða um … hvað? Lág-
markstrygginguna? Að
borga ekki neitt?
RÉTT upp hönd sem halda að í þjóðarat-
kvæðagreiðslu verði kosið um hvort borga
eigi Icesave eða ekki? Neibbs, óekki. Um
þetta verður kosið: „Lög nr. 1/2010 kveða
á um breytingu á lögum nr. 96/2009, um
heimild til handa fjármálaráðherra, fyrir
hönd ríkissjóðs, til að ábyrgjast lán Trygg-
ingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta
frá breska og hollenska ríkinu til að standa
straum af greiðslum til innstæðueigenda
hjá Landsbanka Íslands hf. Alþingi sam-
þykkti lög nr. 1/2010 en forseti synjaði þeim
staðfestingar. Eiga lög nr. 1/2010 að halda
gildi?“ Einfalt og öruggt.
EN hvað ef lögin halda gildi? Hvað borg-
um við þá og hvenær? Hverjum? En ef þau
verða felld úr gildi? Eru þá gömlu lögin
í gildi? En ríkisábyrgð þeirra tekur ekki
gildi nema Bretar og Hollendingar sam-
þykki fyrirvarana. Og þeir eru búnir að
hafna þeim. Hvaða lög gilda þá? Þarf þá
að skipa nefnd? Eða förum við þá að borga
samkvæmt gömlu lögunum? Borgum við
alltaf? Um það verður í það minnsta ekki
kosið.
UMRÆÐAN um Icesave hefur verið löng,
flókin og leiðinleg. Það síðastnefnda skipt-
ir sosum engu; þetta er mál sem verður
að leysa og skemmtanagildi þess skipt-
ir litlu. En stundum hvarflar að manni að
kannski hafi tíminn og tækifærin til að
leysa málin ekki verið nýtt. Frekar hafi
menn þrúðgað þrætudrauginn í eiginhags-
munaskyni.
Þrúðgur þrætudraugur
ENDUR-
ÓMUN
Miðasala er í síma 568 8000
og á borgarleikhus.is
Viðvörun: Flogaveiku fólki er
ráðlagt frá því að sjá sýninguna
vegna notkunar blikkljósa (strobe)
í sýningunni sem þekkt er að geti
framkallað flog eða aðra vanlíðan
hjá flogaveikum.
Rómað útskriftarverk Leifs Þórs
Þorvaldssonar úr Fræði og fram-
kvæmd vorið 2009 nú á Litla sviðinu.
Aðeins tvær sýningar – 13. og 14. janúar
Endurómun er hrein skynupplifun sem
tekst að bjaga og teygja á skynfærum
áhorfandans um leið og sýningin veitir
okkur innsýn í nýjustu kenningar um
mannsheilann.