Fréttablaðið - 13.01.2010, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 13.01.2010, Blaðsíða 26
22 13. janúar 2010 MIÐVIKUDAGUR sport@frettabladid.is Hornamaðurinn knái, Þórir Ólafsson, varð fyrir miklu áfalli á æfingu í gærmorgun. Þá tóku sig upp hjá honum meiðsli í kálfa sem hann hélt hann væri laus við. Meiðslin eru það alvarleg að Þórir mun þurfa að fylgjast með mótinu úr sófanum. „Þetta er alveg hrikalega svekkjandi. Það er ekki hægt að neita því. Ég hef farið varlega í sakirnar og taldi mig vera orðinn góðan af meiðslunum. Það reyndist því miður ekki vera þannig,“ sagði Þórir, vitanlega súr og svekktur. Hann hafði verið að æfa með Haukum um síðustu helgi án þess að kenna sér meins. „Ég lendi í smá samstuði og þá kemur einhver stingur í þetta. Það er einhver blæðing í kálfanum og málið nógu alvarlegt til þess að ég missi lík- lega af EM,“ sagði Þórir sem meiddist uppruna- lega á kálfanum í leik í Þýskalandi 8. febrúar. „Ég var orðinn 90-95 prósent góður og afar bjartsýnn að ná mótinu. Ég verð væntanlega ekk- ert sérstaklega lengi frá og við sjáum eftir nokkra daga hvern- ig þetta verður. Ég mun hugsanlega vera áfram í meðferð hér heima enda fæ ég betri meðferð hér heldur en ytra,“ sagði Þórir sem stefnir á að horfa á mótið á Íslandi í stað þess að fara út og horfa á ofan úr stúkunni. „Ég er búinn að stefna að þessu móti mjög lengi. Það verður erfitt að kveikja á sjónvarpinu og horfa á frekar en að vera á vellinum að spila. Það verður alveg djöfullegt,“ sagði Þórir sem lék einstaklega vel fyrir liðið í undankeppni EM og hefði klár- lega verið í nokkuð stóru hlutverki í Austurríki. „Ég fann það frá þjálfaranum að hann bar traust til mín. Ég verð bara að stefna á HM í Svíþjóð að ári. Það er ekkert annað að gera. Ég neita því samt ekki að það hefði verið rosalega gaman að vera með í Austurríki,“ sagði Þórir. Hann leikur með TuS N-Lubbecke í þýsku úrvals- deildinni en þar hefur hann farið mikinn í vetur og líklega aldrei verið betri en núna. HANDKNATTLEIKSKAPPINN ÞÓRIR ÓLAFSSON: MISSIR AF EM Í AUSTURRÍKI VEGNA MEIÐSLA Hélt ég væri alveg laus við þessi meiðsli HANDBOLTI Það verður fjör í Höll- inni í kvöld þegar Ísland mætir Portúgal í eina æfingalandsleik liðsins á Íslandi fyrir Evrópumót- ið sem hefst í Austurríki eftir rétt tæpa viku. Ísland vann tvo sigra í Þýskalandi um helgina og tekur síðan þátt í hraðmóti í Frakklandi um næstu helgi. „Það hefur gefið okkur mikið að spila þessa leiki. Það hefur mynd- ast ótrúleg stemning í Höllinni og í síðasta leik á móti Makedóníu var stemningin ólýsanleg,“ segir Guðmundur Guðmundsson lands- liðsþjálfari og vísar þá í 34-26 sigur síðasta sumar sem tryggði liðinu farseðilinn til Austurríkis. Leikurinn á móti Portúgal hefst klukkan 20.15 í Laugardalshöll- inni í kvöld. „Það gefur okkur svakalega mikið og þess vegna væri frábært að fylla höllina og fá þessa stemn- ingu sem hefur verið. Það myndi gefa okkur ákveðna næringu og þá finnum við fyrir þessum stuðn- ingi þjóðarinnar sem við vonumst að verði áfram eins og alltaf. Þá fáum við hann beint í æð sem væri stórkostlegt,“ segir Guðmundur og bætir við: „Þetta er stórkostleg stemning og bara upplifun þegar þetta hefur verið best. Við stefnum á það að gefa allt í þennan leik og spila vel,“ segir Guðmundur. Íslenska liðið vann Þjóðverja tví- vegis um helgina og er greinilega rétt gírað fyrir EM. „Við fengum mjög gott próf á liðið um helgina. Þetta voru mjög erfiðir leikir sem reyndu mikið á liðið en við fengum mjög góð svör. Nú er bara að fá það sem upp á vantar og það gerist í leiknum á morgun,“ segir Guðmundur sem segir það mikilvægt að halda lið- inu á jörðinni. „Það þurfa allir að gera sér grein fyrir því að þetta voru fínir sigrar en þetta voru bara æfingaleikir og þeir telja ekki á EM,“ segir Guðmundur. Logi Geirsson er tæpur fyrir EM og það ræðst endanlega í kvöld hvort hann fari með. „Hann þarf að vera tilbúinn að fara í gegnum erfitt mót og ef ekki eru það bara aðrir sem taka upp merkið. Hann var ekki með í Þýskalandi og það voru aðrir menn sem stóðu sig mjög vel þar. Svona er þetta bara,“ segir Guðmundur og bætir við: „Við erum öllu vanir. Það er búið að vera mjög erfitt eftir Ólymp- íuleika þar sem við höfum verið með allt frá fimm upp í níu menn meidda. Við erum búnir að ganga í gegnum ákveðna prófraun hvað það varðar og það var kannski þegar upp var staðið bara mjög gott fyrir okkur að fá það,“ segir Guðmundur sem tilkynnir endan- legan hóp á morgun. „Logi er síðasta spurningar- merkið í þessu en síðan vel ég bara liðið eftir leikinn. Það er ekki eftir neinu að bíða með það,“ segir Guð- mundur. ooj@frettabladid.is Fáum stuðninginn beint í æð í kvöld Strákarnir okkar kveðja þjóðina í Höllinni í kvöld þegar landsliðið mætir Portúgal fyrir framan vonandi troðfulla höll. Guðmundur Guðmundsson landsliðþjálfari segir leik sem þennan vera næringu fyrir liðið. BROSMILDUR Það var létt yfir Guðmundi Guðmundssyni landsliðsþjálfara á blaða- mannafundi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Ef þú notar MasterCard kort frá Kreditkorti gæti barnið þitt upplifað ógleymanlega stund. Tveir krakkar á aldrinum 7-9 ára fá að fara ásamt fylgdarmanni á leik í Meistaradeild Evrópu í Englandi 2010 og leiða leikmann inn á völlinn. Fjölmargir skemmtilegir aukavinningar SKRÁÐU ÞIG TIL LEIKS Á WWW.KREDITKORT.IS UPPLIFUN SEM ALDREI GLEYMIST BARNIÐ ÞITT GÆTI LEITT HETJUNA SÍNA INN Á VÖLLINN Í MEISTARADEILDINNI  Enska bikarkeppnin: Coventry-Portsmouth 1-2 e. framlengingu 1-0 Leon Best (22.), 1-1 Stephen Wright, sjm (90.), 1-2 Aaron Mokoena (120.) Birmingham-Nott. Forest 1-0 1-0 Barry Ferguson (62.) Bristol-Cardiff 1-1 Derby-Millwall 1-1 (6-4 e. vítaspyrnukeppni) QPR-Sheff. Utd 2-3 FÓTBOLTI Fimm leikir fóru fram í þriðju umferð ensku bikarkeppn- innar í gær. Mesta athygli vakti Íslendingaslagur Coventry og Portsmouth. Lengi vel leit út fyrir að mark Leons Best myndi duga Coventry til sigurs en Stephen Wright varð fyrir því óláni að tryggja Port- smouth framlengingu með sjálfs- marki. Það var síðan í uppbótartíma framlengingar sem Aaron Moko- ena tryggði Portsmouth sigurinn. - hbg Enski bikarinn: Portsmouth skreið áfram MARKI FAGNAÐ Leikmenn Coventry fagna marki Leons Best í gær. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES > Valsstúlkur unnu toppslaginn Það var sannkallaður stórleikur í N1-deild kvenna í gær þegar Fram tók á móti Val. Valsstúlkur voru sterkari í leiknum og unnu þriggja marka sigur, 25-22. Valur náði um leið þriggja stiga forskoti á toppi deildarinnar en stúlkurnar hafa ekki tapað leik í vetur. Ágústa Edda Björnsdóttir og Hrafnhildur Skúladóttir voru atkvæðamestar í liði Vals með 5 mörk. Stella Sigurðardóttir og Karen Knútsdóttir skoruðu síðan báðar 6 mörk fyrir Framstúlk- ur.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.