Fréttablaðið - 13.01.2010, Blaðsíða 16
13. janúar 2010 MIÐVIKUDAGUR2
Verkleg sumarnámskeið í
ýmsum greinum og þriggja ára
BS-nám í reiðmennsku og reið-
kennslu eru þær nýjungar sem
fram undan eru í hestafræði-
deild Háskólans á Hólum.
Víkingur Gunnarsson er stjórn-
andi hestafræðideildarinnar á
Hólum en aðrar deildir þar eru
fiskeldis- og fiskalíffræði og ferða-
málafræði.
Mánaðarlöng sumarnámskeið á
háskólastigi í reiðmennsku og sögu
hestsins byrjuðu fyrir tveimur
árum og framhald verður á þeim
á sumri komanda að sögn Víkings.
Nú á líka að bæta við sérhæfðum
vikunámskeiðum í reiðmennsku,
svo sem tölti og skeiði. „Við búum
svo vel að eiga hér frábæra sér-
hæfða kennsluhesta,“ segir hann
og nefnir líka námskeið í fortamn-
ingu og ræktun, fóðrun og með-
ferð.
Öll sumarnámskeiðin eiga það
sameiginlegt að vera kennd á
ensku. Víkingur segir þau vissu-
lega opin Íslendingum en nemend-
ur erlendis frá hafi verið í meiri-
hluta undanfarin sumur, jafnvel
alla leið frá Ástralíu. „Við getum
líka hannað námskeið fyrir hópa
ef óskað er, því við erum með sér-
fræðinga á mörgum sviðum,“ tekur
hann fram.
Frá og með næsta hausti verð-
ur allt nám við hestadeildina á
háskólastigi og kennt til BS-prófs.
„Annars vegar verður boðið upp á
sameiginlega námsgráðu háskól-
anna á Hólum og á Hvanneyri og
hins vegar verður nú boðið upp
á BS-nám í reiðmennsku og reið-
kennslu. Þar erum við að byggja
ofan á nám sem hér hefur verið og
hefur sérstöðu í heiminum. Þeir
sem vilja geta hoppað af vagnin-
um á leiðinni og útskrifast með
diplóma eftir eins eða tveggja
vetra nám,“ útskýrir Víkingur.
Hann segir atvinnugreinar kring-
um íslenska hestinn víða hafa
byggst upp erlendis og því sé mark-
aður fyrir þetta nám. „Þriðjungur
nemenda við deildina nú er útlend-
ingar,“ lýsir hann. „Þeir leggja það
á sig að læra tungumálið áður en
þeir koma þannig að áhuginn er
mikill og sýnir glögglega hvað
ævintýrið kringum íslenska hest-
inn er stórt í sniðum.“ - gun
Ævintýrið er mikið
í kringum hestinn
KREPPAN virðist ekki hafa áhrif á geðheilsu barna
og enn sem komið er hefur ekki orðið marktæk aukn-
ing á eftirspurn eftir geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn
og unglinga hér á landi. www.heimiliogskoli.is
„Við eigum frábæra og sérhæfða kennsluhesta,“ segir Víkingur Gunnarsson, stjórn-
andi reiðdeildar Hólaskóla. MYND/SÓLRÚN
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
Nýtt námskeið hefst
14.janúar 2010
Skráning í síma 5813730 og á jsb@jsb.is
Í boði er spennandi og krefjandi 10 vikna JAZZDANS
og PÚL námskeið fyrir þá sem elska að dansa og
hafa áhuga á að koma sér í form.
• Kennt er í lokuðum hópum
• Tímar fyrir byrjendur og lengra komna
• Ýmsir dansstílar kynntir s.s.
Musical – Lyrical - Modern.
• Kennarar eru Irma Gunnarsdóttir
og Þórdís Schram
Námskeið hefst 14.janúar !
Skráning í síma 5813730 og á jsb@jsb.is
Tímar eru 2 x í viku, frjáls aðgangur að tækjasal
meðan á námskeiði stendur.
Dansstudio 1: Byrjendur, mánudaga kl.19:45, sal 1
og fimmtudaga 19:30, sal 2.
Dansstudio 2: Framhald, mánudaga kl. 20:45, sal 1
og fimmtudaga kl.20:30, sal 2.
Verð: 24.900 kr.
Danslistarskóli JSB
er samstarfsaðili að
Frístundakorti
Reykjavíkurborgar.
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
f í
s
k
h
ö
n
n
u
n
Nýtt!
STUDIOKORT er árskort sem gildir á öll
dansnámskeið í Dansstudioi JSB.
Kortið veitir einnig frjálsan aðgang að
tækjasal JSB.
Verð: 56.900 kr.
¨
www.jsb.is
Innritun hafin! Sími 581 3730
ansararD
Gítarnámskeið