Fréttablaðið - 13.01.2010, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 13.01.2010, Blaðsíða 8
8 13. janúar 2010 MIÐVIKUDAGUR Auglýsingasími – Mest lesið VIÐSKIPTI Mjög æskilegt væri að taka upp í íslensk lög reglur um afnám á takmörkun ábyrgðar hluthafa í hlutafélögum undir til- teknum kringumstæðum. Ólíkt lögum erlendis er eingöngu treyst á skaðabótalög hér á landi. Þetta kom fram í máli Jóhann- esar Rúnars Jóhannssonar, hæsta- réttarlögmanns og aðjúnkts við Háskólann í Reykjavík, á opnum fundi um ábyrgð hluthafa í Háskól- anum í Reykjavík í gær. Almennt gildir sú regla að ábyrgð hluthafa á því sem fram fer í hlutafélaginu takmarkast af því hlutafé sem hann hefur lagt félag- inu til. Jóhannes tók fram að þessi regla sem slík sé forsenda þess að viðskiptalífið eins og við þekkj- um það geti þrifist. Hlutabréfa- kaup séu mikið hreyfiafl, og kerf- ið myndi lamast bæri hver hluthafi ábyrgð á gerðum þeirra félaga sem hann ætti hlut í. Víðast hvar í þeim löndum sem við berum okkur saman við gilda reglur þar sem takmörkunum á ábyrgð hluthafa er aflétt undir vissum kringumstæðum, sagði Jóhannes. Engin slík ákvæði séu í íslenskum lögum. Í Bretlandi er til dæmis heim- ilt að víkja frá takmörkunum á ábyrgð hluthafa þegar sannað þyki að móðurfélag stjórni í raun öllu innan dótturfélags, eða þegar framin hafa verið lögbrot innan hlutafélags, sagði Jóhannes. Yfir- leitt sé þar alltaf misnotkun á hlutafélagaforminu að ræða. Þar sem slík ákvæði eru ekki í íslenskum lögum eiga kröfuhafar gjaldþrota hlutafélags þann kost helstan að leita réttar síns með því að fara í skaðabótamál gegn hluthöfum, sagði Jóhannes. Æski- legt sé að setja í íslensk lög ákvæði um niðurfellingu á takmörkun á ábyrgð hluthafa undir afmörkuð- um kringumstæðum. brjann@frettabladid.is Vill að hægt verði að ganga að hluthöfum Breyta ætti lögum svo hægt verði að ganga að hluthöfum í hlutafélögum undir sérstökum aðstæðum að mati hæstaréttarlögmanns. Hefði getað breytt miklu að hafa slíkan fælingarmátt í aðdraganda hrunsins, segir viðskiptasiðfræðingur. Nýtt aðalskipulag - Ávarp Júlíus Vífi ll Ingvarsson, formaður skipulagsráðs Skipulag útivistarsvæða í aðalskipulagi Reykjavíkur Björn Axelsson, umhverfi sstjóri skipulags- og byggingarsviðs Austurvöllur - Hlemmur, Auður Ottesen, Samtök um umhverfi og vellíðan Bláþráðurinn og Græni trefi llinn Þráinn Hauksson, landslagsarkitekt Hagrænt mat á gildi útivistarsvæða Kristín Eiríksdóttir Heildarskipulag opinna svæða 2010-2030 Björn Jóhannsson, landslagsarkitekt Umræður Fundarstjóri Ólöf Örvarsdóttir, skipulagsstjóri Morgunfundur í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu, 14. janúar kl. 08.30 - 10.00 Líta ætti til fælingarsjónarmiða þegar íhugað er hvort heimila eigi afnám takmarkana á ábyrgð hluthafa, sagði Stefán Einar Stefánsson, viðskiptasiðfræðingur við Háskólann í Reykjavík, í erindi sínu á fundinum í gær. „Flestir hefðu talið að óþarft væri að hafa áhyggjur af mögulegri misnotkun hlutafélagaformsins,“ sagði Stefán. Reiknað hafi verið með því að bankarnir neituðu að lána hlutafélögum sem ekki hefðu trygg veð gegn lánunum. Því færa megi rök fyrir því að ábyrgðin liggi einnig hjá lánastofnunum sem láni hlutafélögum fyrir hlutabréfa- kaupum með veði í bréfunum sem keypt eru fyrir lánið. Hefðu eigendur hlutafélaga sem tóku himinhá lán fyrir hlutabréfakaupum í aðdraganda hrunsins vitað að hægt yrði að ganga að þeim persónulega í einhverjum tilvikum hefði það að mati Stefáns haft mikinn fælingarmátt. Þeir sem skáki í skjóli takmarkana á ábyrgð og misnoti hana ættu þar með að fyrirgera rétti sínum til þess að vera í því skjóli. FYRIRGERA RÉTTI SÍNUM TIL SKJÓLS ÁBYRGÐ Takmarkanir á ábyrgð hluthafa á skuld- bindingum hlutafélags eru forsenda þess að viðskipta- lífið geti þrifist, en mögulegt ætti að vera að takmarka þá ábyrgð, segir Jóhannes Rúnar Jóhannsson. STEFÁN EINAR STEFÁNSSON FR ÉTTA B LA Ð IÐ /STEFÁ N DÓMSMÁL Íslensk stjórnvöld hafa átt í viðræð- um við brasilísk stjórnvöld að undanförnu um flutning dæmdra fanga til afplánunar í föð- urlandinu. Ástæða þessa er afplánun þriggja Íslendinga í fangelsum í Brasilíu. Vitað er að aðstæður þeirra og aðbúnaður er mismunandi, að sögn Rögnu Árnadóttur dómsmálaráðherra, sem segir það hvatann að viðræðunum, en samningur sé ekki frágenginn. „Hingað til höfum við ekki neitað föng- um um að koma heim til afplánunar,“ greinir ráðherra frá. „Hins vegar er málum þannig háttað að hér er plássleysi í fangelsum. Við veltum fyrir okkur við hvað við ættum að styðjast þegar við færum að taka afstöðu til beiðna um að vinna að því að fá fanga heim.“ Ragna kveðst hafa lagt málið fyrir ríkis- stjórn, sem hefði samþykkt tillögu sína þess efnis að meginreglan væri sú að menn afpláni þar sem þeir eru dæmdir. „Hins vegar verður tekið tillit til aðstæðna hverju sinni, og mæli þær eindregið með því að íslenskir fangar komi heim þá beiti íslensk yfirvöld sér fyrir því.“ Ragna segir að íslensk yfirvöld muni nú leita eftir staðfestingu á aðbúnaði íslensku fanganna og að því loknu verði tekin ákvörðun um hvernig með málið skuli fara. - jss RAGNA ÁRNADÓTTIR Íslensk stjórnvöld í viðræðum við Brasilíu um flutning fanga: Fangar við slæman aðbúnað afpláni refsingu sína heima

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.