Fréttablaðið - 13.01.2010, Síða 15
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
GÖNGULEIÐIR Á TRÖLLASKAGA er göngu-
kort sem var endurútgefið af Hólaskóla – Háskólanum
á Hólum um áramótin. Þekktar gönguleiðir er að finna
á kortinu, meðal annars Heljardalsheiði, Svarfdæla-
leið, Hólamannaveg og Hjaltadalsheiði auk annarra
skemmtilegra gönguleiða. www.holar.is
Sigmar bjó fyrir nokkrum árum
í Chile og dóttir hans, Rósa Marí,
var þá með í för. Á þeim tíma ferð-
uðust þau meðal annars til Perú en
nú í sumar var farin ferð til Mar-
okkó þar sem sonur hans, Alex-
ander Þór, 12 ára, var einnig með
í för.
„Ég kýs að ferðast til staða þar
sem ekki er mikið um ferðamenn.
Mér finnst það ekki síst öruggara
þegar ég er með krakka, þar sem
ekkert er þá um glæpi sem tengj-
ast oft ferðamannastöðum og svo
er það oft rólegra og afslappaðra,“
segir Sigmar.
Ferðin til Marokkó var hugsuð
sem bakpokaferðalag þar sem Sig-
mar, Alexander og Rósa ferðuðust
þvert yfir landið, ýmist með næt-
urlestum, ferjum eða rútum en
Sigmar segir að þau hafi reynt að
ferðast á nóttunni til að geta notað
daginn í annað.
„Það reyndist ódýrast að kaupa
pakkaferð til Costa del Sol, með
hóteli og öllu, og mun ódýrara en ef
ég hefði bara tekið flugið. Þannig
var þetta tvískipt ferð: Nokkrir
dagar í sundlaugunum á hótelinu
og svo ævintýraferð: bakpokaferð-
in um Marokkó. Við tókum lest til
Malaga og svo næturferju til Mar-
okkó og dvöldum fyrst í litlum bæ
við landamæri Líbíu.“
Þaðan hófst ferðalagið þvert
yfir Marokkó en Sigmar var með
lítinn þrjátíu lítra bakpoka á bak-
inu og allir voru með tvenn föt til
skiptanna, en ekkert annað. „Það
er þægilegt að vera með lítinn
farangur í svona ferðalögum enda
ekki farangursgeymslur á hverju
strái. Ég þvoði fötin svo í vaski á
kvöldin enda fljót að verða skítug
í rykinu og hitanum sem fór oft
yfir fjörutíu stig. Við sáum margt
athyglisvert. Gamli virkisbærinn
í Melilla er vel þess virði að skoða
og að ráfa um þröngar götur mið-
aldabæjarins Fez er líkt því að
ferðast aftur í tímann. Á markað-
inum þar fæst allt milli himins og
jarðar, allt frá ávöxtum til úlfalda.
Innan um ferska ávexti og fram-
andi krydd voru svo kjötbúðirn-
ar sem minntu meira á gæludýra-
verslanir með gaggandi hænur,
jarmandi kindur og flóttalegar
skjaldbökur.“
Eftir að hafa ferðast eftir Mið-
jarðarhafsströnd Marokkó endaði
ferðin í Tanger þaðan sem ferja
var tekin yfir Gíbraltarsund aftur
til Spánar. Sigmar segir ferðina
hafa verið frábæra lífsreynslu
fyrir börnin og góða tilbreytingu
frá skipulögðum pakkaferðum.
„Mér finnst alltaf skemmtilegra
að ferðast á eigin vegum og þá sér-
staklega með börnin, ekki síst á þá
staði þar sem ferðamenn með börn
eru sjaldséðir. Viðmót fólks breyt-
ist og alls staðar er manni tekið
opnum örmum.“ - jma
Ferðast með krakkana
sína á óvenjulega staði
Sigmar Örn Alexandersson ferðast gjarnan með börnin sín á staði sem ekki eru miklir ferðamannastaðir.
Hann hefur ferðast um Suður-Ameríku með dóttur sína og nú síðast til Marokkó með son og dóttur.
Sigmar Örn á ferðalagi um Perú fyrir nokkrum árum með dóttur sína, Rósu Marí. MYND/ÚR EINKASAFNI
Lín Design, gamla sjónvarpshúsið Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is
Auglýsingasími
– Mest lesið