Fréttablaðið - 13.01.2010, Side 20

Fréttablaðið - 13.01.2010, Side 20
 13. janúar 2010 MIÐVIKUDAGUR HANNIBAL VALDIMARSSON FÆDDIST ÞENNAN DAG. „Vinnubrögð verkalýðshreyf- ingarinnar, viðbrögðin gagnvart henni, þjóðfélagið sjálft, allt er orðið breytt og þó að flestu til hins betra, nema kannski við sjálf.“ Hannibal Valdimarsson (1903– 1991) var formaður í tveimur stjórnmálaflokkum, Alþýðuflokkn- um og Samtökum frjálslyndra og vinstri manna og kosningabanda- laginu Alþýðubandalaginu. Hanni- bal var einnig forseti Alþýðusam- bands Íslands 1954–1971. „Það heldur manni mjög ungum að vera svona mikið innan um lítil börn í svona mörg ár. Mér finnst þetta yndislega skemmti- legt starf og meðan mér þykir þetta gaman þá sé ég ekki fram á að hætta þessu,“ segir Helga Steffensen, stjórnandi Brúðu- bílsins, en í vor verða þrjátíu ár liðin síðan þessi fasti liður í borgarlífinu lagði upp í sína fyrstu ferð. Brúðubíllinn frumsýnir tvær sýningar á hverju sumri, ferð- ast um Reykjavík í júní og júlí og heimsækir svo landsbyggð- ina í ágúst. Sýnt er á ýmsum útivistarsvæðum, görðum og við gæsluvelli og skóla. Sýningarnar krefjast töluverðs undir- búnings og þessa dagana er Helga að búa til brúður og skrifa handrit fyrir sumarið, ásamt Höllu Ólafsdóttur. Helga segir Brúðubílinn hafa leikið stórt hlutverk í lífi sínu undanfarna þrjá áratugi. „Þetta hefur verið mikið og skemmti- legt ævintýri. Ég hef lagt mikið í Brúðubílinn og að sama skapi hefur hann gefið mér svo mikið. Ég er ástfangin af Brúðubíln- um,“ segir hún og hlær. Gríðarlegur fjöldi fólks hefur notið sýninga Brúðubílsins í gegnum tíðina, og segir Helga vart hægt að giska á tölur í því sambandi. „Einna skemmtilegast við þetta allt saman er að núna eru mörg af börnunum sem horfðu á sýningarnar á sínum tíma sjálf orðin foreldrar og því önnur kynslóð Brúðu- bíls-aðdáenda komin fram. Líklega eru ekki svo mörg ár í að þriðja kynslóðin komi fram,“ segir hún og skellir upp úr. Spurð hvort það lýsi ekki talsverðri bjartsýni að starfrækja útileikhús í hinni heimsfrægu íslensku sumarveðráttu játar Helga því fúslega. „Allir sem koma að Brúðubílnum hafa allt- af verið mjög bjartsýnir. Aldrei hefur fallið niður heil sýning og aðeins einu sinni þurftum við að hætta í miðri sýningu. Það átti sér stað í Mosfellsbæ síðasta sumar, þegar skyndilega skall á hvílíkt ofsaveður að við héldum hreinlega að börnin myndu fjúka út í buskann. Ég held líka að vont veður sé bara nokkuð sjálfsagt í augum barnanna og þau eru ekkert að kippa sér upp við slíkt. Þau klæða sig bara vel,“ segir Helga. Hún segist hlakka til sumarsins eins og allra annarra sumra síðustu ár. „Börnin eru strax farin að spyrjast fyrir um Brúðu- bílinn,“ segir Helga. kjartan@frettabladid.is BRÚÐUBÍLLINN: ÞRJÁTÍU ÁRA Mikið ævintýri SUMARIÐ UNDIRBÚIÐ Helga undirbýr þessa dagana þrítugasta Brúðu- bíls-sumarið en vinnur líka í öðrum verkefnum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, afi og langafi, Þórður Jónsson Dalbraut 27, sem andaðist að morgni jóladags, verður jarðsunginn frá Áskirkju föstudaginn 15. janúar kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Bergmál, líknar- og vinafélag. Fyrir hönd aðstandenda Margrét Anna Þórðardóttir Bergur Jón Þórðarson Eydís Ólafsdóttir Árnína Jónsdóttir afa- og langafabörn. Ástkær eiginmaður minn, Stefán Sörenson fyrrum háskólaritari, sem andaðist að heimili okkar hinn 7. janúar sl. verður jarðsunginn frá Neskirkju föstudaginn 15. janúar kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Perla Kolka. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ingunn Anna Hermannsdóttir lést á Hrafnistu Reykjavík mánudaginn 4. janúar. Jarðarförin fer fram frá Langholtskirkju föstudaginn 15. janúar kl. 13.00. Björn Jónasson Herman Páll Jónasson Finnbogi Jónason Gunnar Börkur Jónasson Dóra Hansen Kristín Jónasdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, Sigríður Sæmundsdóttir Hjúkrunarheimilinu Skjóli, Reykjavík, lést miðvikudaginn 23. desember sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki 3. hæðar á Hjúkrunarheimilinu Skjóli fyrir hlýju og góða umönnun. Sæmundur Árnason Guðríður Árnadóttir Elísabet Árnadóttir Svava Árnadóttir og aðrir aðstandendur. Elsku hjartans sonur minn, bróðir okkar, mágur og frændi, Sigurður Jóhann Thorsteinsson lést miðvikudaginn 6. janúar. Útför hans fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn 15. janúar kl. 13.00. Guðbjörg Elín Þórarinsdóttir Dóra Thorsteinsson Sigurður Ólafsson Geir Thorsteinsson Halldóra Æsa Aradóttir Pjetur Stefánsson María Árnadóttir Helga Sigríður Thorsteinsson Jón Helgi Jónsson og systkinabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýju við andlát og útför föður okkar, tengda- föður, afa, langafa og langalangafa, Gríms Bjarna Bjarnasonar fyrrverandi stöðvarstjóra Pósts og síma, Ólafsfirði. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hornbrekku, Ólafsfirði fyrir hlýhug og frábæra umönnun. Með nýárskveðjum, Guð blessi ykkur öll. Hrafnhildur J. Grímsdóttir Grímur Grímsson Valgerður S. Ebenesersdóttir Sigurpáll Grímsson Ingibjörg K. Geirmundsdóttir Bjarni Kr. Grímsson Brynja V. Eggertsdóttir Sigurður Egill Grímsson Katrín B. Bergmundsdóttir og fjölskyldur. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir, tengdafaðir og afi, Haukur Bjarmi Óskarsson rafvirki, lést á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut mánudaginn 11. janúar. Útförin verður auglýst síðar. Sigríður Sigurðardóttir Óskar Baldvin Hauksson Inga Jóna Friðgeirsdóttir Sigurður Ferdinandsson Guðrún Matthíasdóttir Reynir Jóhannsson Inga Rún Garðarsdóttir börn og barnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Erna Rafn Jónsdóttir verður jarðsungin frá Áskirkju, föstudaginn 15. janúar, kl. 11.00. Margrét Theodórsdóttir, Halldór Jón Theodórsson, Sigrún Edda Theodórsdóttir og aðrir aðstandendur. Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur vináttu, samúð og hlý- hug við andlát og útför okkar ástkæra Guðmundar Heiðars Guðjónssonar frá Bakkagerði, Ystaseli 21. Guð blessi ykkur öll. Halldóra Sigurðardóttir Heiðrún Ásta Guðmundsdóttir Andrew James Scrimshaw Sigurjón Már Stefánsson Ásta Sólveig Stefánsdóttir Guðjón Guðmundsson systkini og afastrákar. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Anna Sigrún Snorradóttir sem lést á Hjúkrunarheimilinu Eir þriðjudaginn 22. desember, verður jarðsungin frá Laugarneskirkju, fimmtudaginn 14. janúar kl. 15.00. Birgir Þórhallsson Snorri Sigfús Birgisson Guðrún Sigríður Birgisdóttir Martial Nardeau Þórhallur Birgisson Kathleen Bearden og barnabörn. Ástkær sonur okkar, bróðir og mágur, Kristinn Freyr Arason Stekkjarhvammi 12, Hafnarfirði, lést af slysförum fimmtudaginn 7. janúar. Ari Óskar Jóhannesson Ólöf Sigurlín Kristinsdóttir Steinunn Aradóttir, Inga Nína Sigríður Jóhannsdóttir. timamot@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.