Fréttablaðið - 13.01.2010, Qupperneq 30
26 13. janúar 2010 MIÐVIKUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
LÁRÉTT
2. glansa, 6. þys, 8. mælieining, 9.
gerast, 11. tveir eins, 12. nafnbætur,
14. kriki, 16. tveir eins, 17. gaul, 18.
stansa, 20. þessi, 21. þekkja leið.
LÓÐRÉTT
1. löngun, 3. 950, 4. planta, 5. fiskur,
7. möttull, 10. skammstöfun, 13. hluti
kynfæra, 15. klúryrði, 16. hugfólginn,
19. strit.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. gljá, 6. ys, 8. mól, 9. ske,
11. ll, 12. titla, 14. kverk, 16. kk, 17.
gól, 18. æja, 20. sá, 21. rata.
LÓÐRÉTT: 1. lyst, 3. lm, 4. jólarós,
5. áll, 7. skikkja, 10. etv, 13. leg, 15.
klám, 16. kær, 19. at.
„Þetta er elsta harðkjarnasíðan í
þessum bransa. Við kunnum mjög
vel að meta að hafa verið valin,“
segir Hilmar Veigar Pétursson,
forstjóri CCP, sem framleiðir
tölvuleikinn EVE Online.
EVE Online var í vikunni val-
inn leikur ársins hjá vefsíð-
unni mmorpg.com, sem er ein sú
stærsta sinnar tegundar heimin-
um. „Þetta er sá blaðamannahópur
sem erfiðast er að gera til geðs,“
segir Hilmar. „Þeir eru búnir að
vera í þessum bransa í áratugi og
kalla ekki allt ömmu sína.“
EVE Online er fjölspilunarleikur
þar sem þúsundir notenda spila á
sama tíma í sýndarheimi á Netinu.
Leikurinn War of Worldcraft er
stærsti fjölspilunarleikur heims,
en hann hafnaði í öðru sæti í vali
reynslubolta vefsíðunnar mmorpg.
com.
Aðspurður segir Hilmar að
afrekið sé sérstakt vegna þess að
EVE kom út árið 2003. „Það komu
út nokkrir nýir og ferskir leikir
í fyrra. Að við séum að taka þá í
bakaríið er gaman,“ segir Hilmar
á léttu nótunum. CCP sendi frá sér
tvær uppfærslur fyrir EVE Online
í fyrra sem féllu sérstaklega vel í
kramið hjá gagnrýnendum og not-
endum.
Takmark Hilmars og félaga hjá
CCP hefur verið að ná notenda-
fjölda EVE Online fram úr fjölda
Íslendinga. Takmarkinu er náð
í dag, áskrifendurnir eru orðnir
fleiri en 330.000, en Íslendingar
eru tæplega 318.000. „Það var
svakalegur ágangur í EVE
um jólin. Leikurinn hefur
tekið góðan vaxtarkipp,“
segir Hilmar.
Eru þið komin með nýtt
takmark?
„Við erum ekki alveg búin
að „tjúna næsta target“
en eins og gangur-
inn er núna og við-
urkenningin sem
leikurinn er að fá
þetta gamall, þá er
augljóst að EVE
hefur tækifæri til
að fara talsvert
hærra en í okkar
villtustu draumum í
upphafi.“
Eve leikur ársins hjá reynsluboltunum
LEIKUR ÁRSINS EVE
Online var valinn
leikur ársins hjá
reynsluboltum vef-
síðunnar mmorpg.
com. Hilmar Veigar,
forstjóri CCP, er
ánægður með sigur-
göngu Eve Online.
Íslenska útgáfufyrir tækið
Bedroom Community hefur gert
dreifingarsamning við þýska fyr-
irtækið Kompakt Records.
Samningurinn kveður á um
að plötur Bedroom Community
komi út víðs vegar um heiminn.
„Við vorum með svipaðan samn-
ing áður hjá bresku fyrirtæki sem
var öllu minni. Þannig að þetta er
í rauninni næsta skref upp á við
í að reyna að koma plötunum sem
víðast,“ segir upptökustjórinn og
tónlistarmaðurinn Valgeir Sig-
urðsson. „Þetta er mjög virt fyr-
irtæki. Það byrjaði sem dálítið
sérhæft teknó-fyrirtæki en á síð-
ustu árum hafa þeir verið að víkka
sig talsvert mikið út, sérstaklega
í dreifingunni.“ Kompakt er einn-
ig með hljómsveitina Gus Gus á
sínum snærum og dreifði nýjustu
plötu sveitarinnar erlendis á síð-
asta ári.
Þrjár fyrstu plöturnar frá
Bedroom Community sem
Kompakt dreifir eru By the Throat
eftir Ben Frost, Draumalandið
eftir Valgeir og Processions með
Daníel Bjarnasyni. Plata með Sam
Amidon er einnig væntanleg, sem
margir bíða spenntir eftir, auk
þess sem nýtt efni frá Ben Frost
og Nico Muhly er í pípunum. - fb
Samningur við þýska útgáfu
VALGEIR SIGURÐSSON Valgeir og félagar í Bedroom Community hafa gert dreifingar-
samning við þýska fyrirtækið Kompakt Records. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Ég man nú ekki hver greiðsl-
an var en þetta hélt mér uppi í
heilt ár í London. Og var borgin
dýr þá. Umboðsmaðurinn minn
sagði að þarna væru árslaunin
komin,“ segir Óskar Páll Sveins-
son, lagahöfundur og upptöku-
stjóri, en hann var einn af heilun-
um á bak við söluhæstu smáskífu
Bretlands á áratugnum sem var að
líða að því er kemur fram í breska
blaðinu The Sun. Óskar stjórnaði
upptökunum á laginu Anything is
Possible sem var lokalagið í fyrstu
Idol-keppni Bretlands árið 2002.
Will Young fór með sigur af hólmi
í þeirri keppni en söngvararnir
þrír sem voru í úrslitum sungu
allir lagið. Sá sem hins vegar var
krýndur popp-idol Bretlands fékk
smáskífuna gefna út undir sínu
nafni en Anything is Possible
seldist í tæpum tveimur milljón-
um eintaka.
„Ég held að ég hafi fengið þre-
falda platínu-plötu fyrir þetta
og það gerist nú ekki oft,“ rifjar
Óskar Páll upp en hann var á þess-
um tíma á mála hjá Sony í Lond-
on. „Þótt ótrúlegt megi virðast
þá þekkti ég aðeins til Will Young
áður en hann byrjaði í þessari
keppni. Hann vann nefnilega sem
sendill hjá Sony og ég kannaðist
aðeins við hann,“ segir Óskar sem
viðurkennir að hann hafi ekki haft
mikla trú á því að Will gæti unnið
þessa keppni. „Nei, hann var eitt-
hvað svo lítillátur og hógvær að
maður trúði því einhvern veginn
ekki að hann myndi standa uppi
sem sigurvegari.“
Óskar kynntist einnig sjálfum
Simon Cowell, hinum eitilharða
dómara þáttanna, við upptökur
á laginu og þeir unnu saman að
nokkrum verkefnum eftir það. „Ég
man eftir því að við vorum að klára
hljóðblöndun lagsins þegar Simon,
Nigel Lythgoe (aðalsprautan og
einn af dómurum So you think you
can Dance-þáttanna) og einhverj-
ir aðrir komu í stúdíóið, vel við
skál. Og þá lék Simon við hvurn
sinn fingur og var mjög almenni-
legur. Hann veit hins vegar allt-
af hvað hann vill og ég fékk ein-
mitt mjög gott heilræði frá honum
þá sem var: „never overestimate
the public“, eða, ekki ofmeta hinn
venjulega hlustanda. Við vorum þá
að missa okkur í einhverju smáat-
riði.“ freyrgigja@frettabladid.is
ÓSKAR PÁLL: FÉKK ÁRSLAUN FYRIR SMÁSKÍFU WILL YOUNG
Var heilinn á bak við sölu-
hæstu smáskífu Bretlands
Í FLOTTUM FÉLAGSSKAP
Óskar Páll stjórnaði upptökunum á söluhæstu smáskífu áratugarins í
Bretlands en það var sigurlag Will Young í Pop Idol 2002. Óskar vann þá
náið með hinum eitilharða Simon Cowell, sem vissi alltaf hvað hann vildi,
og Will en Óskar sagðist ekki hafa haft mikla trú á því að hann gæti sigrað
í keppninni.
Eurovisionstjarnan
Jóhanna Guðrún
og Veðurguðinn
Ingó komu fram
í Söngvakeppni
Sjónvarpsins á
laugardaginn
og tilkynntu
um fyrirhugað
samstarf. Stefna þau á að halda
tónleika á árinu og flytja saman
fræga dúetta. Samstarfið hlýtur
að teljast afar áhugavert þar sem
þau eru bæði gríðarlega vinsæl og
skiptu með sér efstu sætunum í
undankeppni Eurovision í fyrra. Eki
er byrjað að ræða um gerð plötu,
en ljóst er að hún myndi seljast
eins og ólgandi heitar lummur yrði
hún að veruleika.
Og meira um sætar
stelpur og fótbolta-
stráka. Nú heyrist
að ungfrú Ísland,
Skagamærin Guðrún
Dögg Rúnarsdóttir
og hinn bráðefni-
legi fótboltakappi
Björn Bergmann
Sigurðarson, sem
leikur með Lilleström í Noregi, hafi
fagnað nýja árinu með því að byrja
saman. Fótboltakappar hafa þótt
lunknir við að næla í fagrar dömur
og Guðrún Dögg er vissulega með
þeim glæsilegri, enda nýkominn
heim frá Suður-Afríku þar sem hún
keppti um titilinn Ungfrú heimur.
Guðrún hefur þar með bæst í
sístækkandi hóp ofurskutlna sem
næla í fótboltakappa. Í hópnum
eru margar af glæsilegustu konum
landsins, til dæmis Manúela Ósk,
sem er gift Grétari Rafni Steinssyni,
leikmanni Bolton í ensku úrvals-
deildinni. Pattra Sriyanonge sem
er trúlofuð Theódóri Elmari, sem
leikur með Gautaborg í Sví-
þjóð. Og ekki má gleyma
Kristrúnu Ösp Barkardótt-
ur, sem átti í ástarsam-
bandi við markaskorarann
Dwight York, en hann lék
á sínum tíma meðal
annars með Manchest-
er United. - afb
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Ég hlusta helst á Rás 2 eða
bara eitthvað gott af Youtube.
Ég hlusta á Mugison, Sigur Rós
og stundum Damien Rice. Síðan
er kvikmyndatónlistin úr Once
alveg yndisleg.“
Thelma Jónsdóttir hjá Endurmenntun
Háskóla Íslands.