Samtíðin - 01.10.1959, Side 35
SAMTÍÐIN
S1
ÞEIR/VITRU”7
óöc^oul: —------------
PRÓF. JÓN HELGASON: „Bæk-
urnar sem við gefum út eru að vísu
margar, en flestar heldur vondar;
blöðin eru því verri sem þau hafa
meira fé undiT höndum; þjóðleik-
húsið er þess illa megnugt að halda
leiksviði sínu hreinu af verkum á-
gengra klaufabárða; háskólinn læt-
ur ósköp lítið til sín taka, og þó að
hann rumski stundum á hátíðisdög-
um og segist nú ætla að fara að verða
„miðstöð norrænna fræða“, þá er
hér eins og annars að orðih ein eru
fánýt, það sem eftir er beðið er
verkin“.
BERNARD SHAW: „Þegar ég var
ungur, veitti ég því athygli, að 9/10
af því, sem ég gerði, mistókst. Mig
langaði ekki til að fara í hundana,
svo að ég vann tífalt verk.“
AGA KHAN: „Hestar eru skiln-
ingsbetri en menn. Þegar bílarnir
komu til sögunnar, hlógu mennirnir
að þessari nýju uppfyndingu, en hest-
arnir urðu dauðhræddir við hana.“
THOMAS CARLYLE: „A vand-
ræðatímum eru mennirnir eins og
þurrt eldsnevti, sem bíður eftir því,
að eldingu af himni slái niður — og
hún kveikti í þeim. Mikilmennið, sem
hefur fengið afl sitt beint úr hendi
guðs, er eldingin. Allt logar glatt í
kringum slíkan mann, jafnskjótt og
hann hefur tendrað í því sama eld-
inn og brennur í honum sjálfum.“
Wijjar bœkut ||
Matthías Jochumsson: Ljóðmæli II. bindi.
Þýdd ljóð. 710 bls., íb. kr. 270.00.
Karen Blixen: Siðustu sögur. Kaflar úr
skáldsögunni Albondocani. Nýjar
furðusögur. Ný vetrarævintýr. Arnheið-
ur Sigurðardóttir þýddi. 364 bls., íb. kr.
160.00.
Ágúst Sigurðsson: Litla dönskubókin.
Kennslubók ætluð efstu bekkjum barna-
skólanna. Með litmyndum. 79 bls„ ób.
kr. 40.00.
John Osborne: Horfðu reiður um öxl.
Leikrit í þrem þáttum. Thor Vilhjálms-
son þýddi. 120 bls., ób. kr. 75.00, íb. 95.00.
Haraldur Matthíasson: Setningaform og
stíll. Doktorsritgerð. 303 bls., ób. kr.
175.00, íb. 220.00.
í kompanii við allífið. Matthías Jóhannes-
sen talar við Þórberg Þórðarson. 254
bls., ób. kr. 130.00, íb. 195.00.
Þórbergur Þórðarson: Islenzkur aðall.
Endurminningar. 2. útg. 243 bls., ób.
130.00, íb. 175.00.
Jón Árnason: Islenzkar þjóðsögur og æv-
intýri V. bindi. Nýtt safn. Árni Böðvars-
son og Bjarni Vilhjálmsson önnuðust
útgáfuna. 503 bls., íb. kr. 250.00.
Rainer Maria Rilke: Sögur af himnaföð-
ur. Þrettán smásögur. Hannes Péturs-
son þýddi. 157 bls.„ ib. 'kr. 130.00.
Sigfús Sigfússon: Islenzkar þjóð-sögur og
sagnir. XV. hefti. Rím-gaman. 134 bls.,
kr. 115.00.
Sami: Islenzkar þjójð-sögur og- saghi’r,
XVI. hefti. Ljóðaþrautir. 91 bls., ób. kr.
70.00.
Útvegum allar fáanlegar bækur. Kaupið
bækurnar og ritföngin þar, sem úrvalið
er mest. — Sendum gegn póstkröfu um
land allt.
BÓKAVERZLUN
ISAFOLDARPRENTSMIÐJU H.F.
Austurstræti 8, Reykjavík. Sími 1-45-27.