Fréttablaðið - 22.02.2010, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 22.02.2010, Blaðsíða 19
FASTEIGNIR.IS 22. FEBRÚAR 20108. TBL. Fasteignamarkaðurinn kynnir fallegt og vel skipulagt einbýlishús á tveimur hæðum í Holts- búð í Garðabæ. Húsið er 292,9 fermetrar að flatarmáli. Komið er inn í flísalagða forstofu með fataskápum. Gestasalerni er flísalagt og með glugga. Á hæðinni er stórt parketlagt herbergi, vinnuherbergi og sjónvarpshol. Þar er einnig líkamsræktarrými með gufubaði, salerni og sturtuklefa innaf. Innan- gengt er úr geymslu í bílskúr sem er tvöfaldur með gluggum og rafmagnsopna. Á efri hæð hússins er farið um fallegan stiga með viðarþrepum. Komið er í parketlagða setustofu með útgangi á stóra verönd með skjólveggjum, lýsingu og heitum potti. Á hæðinni eru samliggjandi stórar stof- ur með útsýni og útgangi á svalir til vesturs. Í stof- unum er fallegur arinn. Eldhúsið er parketlagt og rúmgott. Þar eru fal- legar hvítar eikarinnréttingar með tengi fyrir upp- þvottavél. Þvottaherbergi og búr eru innaf eldhúsi. Svefngangur er parketlagður og bjartur. Flísalagt baðherbergið er stórt með glugga og bæði baðkari og sturtuklefa. Góðar innréttingar eru í baðherbergi. Hjónaherbergið er með miklum innréttingum en inn- angengt er úr því í baðherbergi. Á hæðinni er einn- ig annað mjög stórt herbergi sem á teikningum eru tvö herbergi. Húsið að utan er í góðu ástandi og þak er í góðu lagi. Hiti er í innkeyrslu og stéttum fyrir framan húsið. Fögur lóð og gott útsýni Húsið er á tveimur hæðum og alls 292,9 fermetrar.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.