Fréttablaðið - 22.02.2010, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 22.02.2010, Blaðsíða 32
 22. FEBRÚAR 2010 MÁNUDAGUR4 ● fréttablaðið ● híbýli og viðhald Óvæntir húsgagnafjársjóð- ir finnast ekki bara í Góða hirðinum eða á öðrum flóa- mörkuðum. Þannig geta þeir sem eru duglegir að vakta netið dottið inn á góð kaup á íslenskum vefsíðum, séu þeir í leit að hönnunarvör- um í þeim geira. Undanfar- ið hefur nokkuð borið á því að húsgögn sem fólk hefur fjárfest í síðustu árin séu nú í sölu, til að mynda vegna flutninga. Til að vakta slík húsgögn má benda á dálk- inn „húsgögn“ á barnaland. is sem og smáauglýsinga- dálka blaðanna. - jma Fjársjóðir leynast víða Hægt er að gera góð kaup á húsgögnum á netinu. Þegar ætlunin er að láta tvo liti mætast þegar herbergi er málað skiptir öllur að línurnar séu bein- ar og fallegar. Til þess er notast við límband sem eftir mælingu veggjanna er límt á eftir kúnstar- innar reglum. Hins vegar er fátt jafn svekkjandi og að taka lím- bandið af og uppgötva þá að máln- ingin hefur runnið inn fyrir það og þannig eyðilagt dagsverkið. Góð leið til að koma í veg fyrir slíkt er að renna fyrst þétt yfir límbandið á veggnum með nöglinni eða kreditkorti. Taka síðan þunn- an pensil og strjúka yfir límbands- brúnirnar með glærum, möttum gljáa. Svo þarf að leyfa þessu að þorna í um klukkutíma áður en hafist er handa við málninguna. Mikilvægt að línur séu beinar og fallegar Með því að lakka aðeins yfir límbandið er komið í veg fyrir að málningin leki með- fram því. Gömul og góð húsráð er oft gott að kunna þegar óhöpp eiga sér stað inni á heimilinu. Margir eiga í stökustu vand- ræðum með að ná límmiðum af gleri en gott ráð við því er að hella sítrónudropum í blauta tusku og nudda vel yfir þar til límið er horfið. Bletti í parketi getur einnig verið leiðinlegt að eiga við en stundum virkar vel að taka blauta tusku og hella ediki í hana og strjúka yfir blettinn. Edik getur einnig gert gagn ef losna á við vonda lykt úr ísskáp með því að hella ediki í tusku og strjúka innan úr ísskápnum. - sm Burt með vonda lykt Edik kemur sér stundum vel til að losna við óþef.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.