Fréttablaðið - 22.02.2010, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 22.02.2010, Blaðsíða 6
6 22. febrúar 2010 MÁNUDAGUR N1 Deildin KARLAR Mánudagur Höllin Kaplakriki Vodafone höll Akureyri - Fram FH - Stjarnan Valur - HK 19:00 19:30 19:30 2009 - 2010 NJARÐARBRAUT 9 - REYK JAN ES BÆ FIS KIS LÓÐ 3 - REYKJAVÍK VM krefst ... Nánari upplýsingar á www.asi.is ... greiðsluaðlögunar sem nær til almennra skulda og veðskulda, íbúðalána og bílalána. A u g lý si n g a sí m i Allt sem þú þarft… FÉLAGSMÁL Einelti í 4. til 10. bekk í grunnskólum í Reykjavík, sem fylgja Olweusaráætluninni, mældist að meðaltali sjö prósent samkvæmt nýrri könnun sem gerð var í nóvember og desember síðastliðnum. Þetta jafngildir því að einn til tveir nemendur í hverj- um bekk verði fyrir einelti ann- arra nemenda, að sögn Þorláks H. Helgasonar, framkvæmda- stjóra Olweusar-áætlunarinnar á Íslandi. Áætlunin er sem kunnugt er notuð gegn einelti í skólum. Í grunnskólum Reykjavíkur mældist eineltið mest í 4. bekk, rúm þrettán prósent, og lækk- ar eftir því sem ofar dregur. Það er fjögur prósent í 10. bekk. Ein- elti mælist meira hjá strákum en stelpum nema í 6. bekk. Þorlákur segir að breytinga hafi orðið vart milli ára 2008 til 2009 sem felist í því að fleiri svari því til en áður að þeim líki illa á unglingastigi í skólanum. 2,6 prósent stúlkna í 8. til 10. bekk sögðu sér líka illa í skólan- um haustið 2008 en 4,4 prósent haustið 2009. „Það er einkum þrennt sem stendur upp úr þegar spurt er um tegund eineltis,“ útskýrir Þorlák- ur. „Það er orðbragðið og stríðn- in á óþægilegan og meiðandi hátt. Þá er það rógburðurinn, að breiða út sögur og loks beinlínis útilok- un. Þetta er svokallað dulið ein- elti. Skólarnir bregðast við lík- amlegu áreiti svo sem höggum og spörkum, en suma þeirra þarf að aga til að bregðast við duldu ofbeldi. Aðalatriðið er að hinir fullorðnu, foreldrar, starfs- fólk skóla og skólayfirvöld, beri ábyrgð og setji reglur.“ Þorlákur segir að þar sem skól- ar hafi agað sig og fylgt Olweus- ar-áætluninni í hvívetna sé að nást verulega góður árangur. Í nokkrum skólum sé einelti helm- ingi minna milli ára og börnunum þar líði augljóslega betur. Hann kveðst ekki vilja nefna einstaka skóla í þessu sambandi. „Reykjavíkurborg hefur stutt þetta verkefni myndarlega. Ég er með ákveðinn ramma sem ég er nú að útfæra á hvern skóla í borg- inni. Svona þarf að vinna þetta og styrkja hvern einasta skóla, ekki á einhverjum meðaltalsgrund- velli heldur með tilliti til þarfa hvers og eins.“ jss@frettabladid.is OLWEUSAR-VERKEFNIÐ Á milli 55 til 60 prósent grunnskólabarna eru þátttakendur í Olweusar-verkefninu. Einn framhaldsskóli, Framhaldsskólinn á Selfossi, hefur tekið upp áætlunina innan sinna vébanda með ágætum árangri. Í hittifyrra kom svo fyrsti leikskólinn inn í verkefnið, Eyrarskjól á Ísafirði. Eineltið mest hjá níu til tíu ára krökkum Í könnun sem gerð var í lok síðasta árs í þeim grunnskólum Reykjavíkur sem fylgja Olweusar-áætluninni mældist einelti mest í 4. bekk, eða rúm þrettán pró- sent. Framkvæmdastjóri áætlunarinnar segir hana víða draga mjög úr einelti. Skólarnir bregðast við líkamlegu áreiti svo sem höggum og spörkum, en suma þeirra þarf að aga til að bregðast við duldu ofbeldi. ÞORLÁKUR HELGASON FRAMKVÆMDASTJÓRI Ætlar þú að smakka á köku ársins sem byrjað er að selja í bakaríum landsins? JÁ 29,5% NEI 70,5% SPURNING DAGSINS Í DAG: Borðaðir þú fisk oftar en einu sinni í síðustu viku? Segðu þína skoðun á visir.is EFNAHAGSMÁL Búast má við að tæp- lega þriðjungur íslenskra heimila safni upp skuldum, gangi á eignir til að standa undir daglegri neyslu og afborgunum af lánum, eða hafi dregið svo mikið úr neyslu að lág- marksviðmið samfélagsins eiga ekki við hjá þeim. Þetta kemur fram í úttekt sem unnin var fyrir Neytendasam- tökin. Niðurstöður úttektarinnar, sem unnin var af Kjartani Brodda Bragasyni hagfræðingi, benda til þess að Seðlabankinn og aðrir opinberir aðilar ofmeti greiðslu- getu íslenskra heimila. Þegar tekið hefur verið tillit til „eðlilegra neyslustaðla“ er töluverð hætta á greiðsluþroti hjá töluverð- um hluta þeirra skuldsettu heimila sem eru með lægstu ráðstöfunar- tekjurnar, að því er fram kemur í skýrslunni. Tekjulægsti hópurinn, sem telur tæplega 11 þúsund heimili, um níu prósent íslenskra heimila samkvæmt skýrslunni, er með um 235 þúsund krónur í ráðstöfunar- tekjur þegar tekið hefur verið til- lit til vaxta- og barnabóta. Þennan hóp vantar um 129 þúsund krónur á mánuði til að borga fyrir daglega neyslu og til að greiða vaxtakostn- að af lánum. Þessi hópur þarf því annaðhvort að ganga hratt á eign- ir, taka lán fyrir neyslu, eða draga verulega úr neyslu sinni. - bj Niðurstaða hagfræðiúttektar á greiðsluvanda heimilanna fyrir Neytendasamtökin: Þriðjungur heimila er í vanda HEIMILI Töluverð hætta er á greiðsluþroti hjá skuldsettustu heimilunum sem eru með lægstu ráðstöfunartekjurnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM HOLLAND, AP Ríkisstjórn Hollands féll á laugardag, eftir miklar deil- ur um veru hollenskra hermanna í Afganistan. Hollenskir hermenn hafa verið í Afganistan frá árinu 2006, en áformað hafði verið að draga her- liðið burt á þessu ári. Fyrr í mánuð- inum bað Nató ríkisstjórnina um að endurskoða þá ákvörðun og halda herliðinu í landinu. Deilur hafa verið á milli stjórnarflokkanna vegna málsins. Kristilegir demó- kratar vildu skoða beiðni Nató en Verkamannaflokkurinn vildi halda fyrri áætlun. Í umræðum um málið á þinginu var meirihluti fyrir því að hefja brottflutning á árinu. Stjórnarsamstarfinu lauk svo þegar ráðherrar Verkamanna- flokksins gengu af sextán klukku- stunda löngum fundi þar sem reynt var að ná samkomulagi um málið. Forsætisráðherrann, Jan Peter Balkenende, tilkynnti svo í gær að hollenski herinn myndi hefja brott- flutning frá Afganistan í ágúst. Hann hefði ekki lengur vald til þess að breyta þeirri ákvörðun. Líklegt er að nú verði boðað til kosninga í maí, ári fyrr en áætlað var. - þeb Ríkisstjórnin í Hollandi deildi um veru hermanna í Afganistan: Afganistan felldi ríkisstjórn FORSÆTISRÁÐHERRANN Jan Peter Balk- enende tilkynnti um slit stjórnarinnar á laugardagsmorgun. Hann mun ganga á fund drottningar í dag og líklegt er að boðað verði til kosninga í maí. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SAMFÉLAGSMÁL Orator, félag laga- nema við Háskóla Íslands, mun á næstu vikum bjóða borgarbúum upp á lögfræðiráðgjöf á bóka- söfnum borgarinnar. Laganem- ar verða á aðalsafni Borgarbóka- safns í dag milli 16 og 18. Þjónustan er borgarbúum að kostnaðarlausu, en mannrétt- indaráð Reykjavíkurborgar veitti styrk fyrir verkefninu. Laganem- ar hafa hingað til eingöngu veitt ráðgjöf í gegnum síma og verður því haldið áfram samhliða aðstoð á bókasöfnum. - bj Félag laganema við HÍ: Ókeypis ráðgjöf á bókasöfnum KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.