Fréttablaðið - 22.02.2010, Blaðsíða 16
22. febrúar 2010 MÁNUDAGUR2
HVERT HERBERGI ætti að hafa fókus. Skemmtilegt
er að ganga inn í stofu þar sem athyglin beinist strax að
einhverjum einum áberandi hlut líkt og litríkum sófa eða
sérkennilega löguðum lampa.
Hönnuðurinn Mario Bellini útskrifað-
ist frá Plytechnic í Mílanó árið 1959.
Hann starfar enn á eigin arkitekta-
og hönnunarstofu í borginni.
Hann hefur starfað fyrir merki á
borð við Artemide, Erco, Fiat, B&B
Italia, Cassina og Olivetti. Fræg-
ustu verk hans eru stólar í CAB-
línunni sem hann hannaði fyrst
árið 1977.
www.interiordezine.com
„Þetta byrjaði allt þegar við Vil-
borg sátum yfir kaffibolla inni
í eldhúsi. Við vorum að tala um
hvað okkur vantaði oft kökudiska
á fæti sem taka ekki allt skápa-
pláss en Vilborg
var þá að und-
irbúa ferm-
ingarveislu. Þá
kviknaði hug-
myndin að
kökudiski
sem hægt er
að taka í sundur,“ útskýrir
Hafdís.
Þær hófust síðan handa við að
teikna við eldhúsborðið
heima og fengu fyrirtæk-
ið Logoflex til að skera
út formin. Fljótlega vatt
hugmyndin upp á sig og fylgdu
servéttustandar, kertastjakar og
fleira í kjölfarið. „Þegar við fund-
um x-ásinn sem hlutirnir er settir
saman með spruttu hugmyndirn-
ar fram.“
Þó stutt sé síðan fyrirtækið
fór af stað hafa Hafdís og Vil-
borg ekki setið auðum höndum.
Fram er komin ný vörulína sem
þær kalla Corvus sem inniheldur
meðal annars borðspegil, snaga
og kertastjaka. „Corvus er lat-
neska heitið yfir hrafn en okkur
finnst krummi svo fallegur fugl.
Við byrjuðum að vinna í línunni
strax fyrir jól og erum enn að
hugsa um fermingarnar en núna
gjafir. Krummi er glysgjarn og
við gerðum til dæmis borðspegil
sem krummi situr upp á. Svo er
hægt að hengja skartið á hann.“
Vörurnar frá Arca de-
sign má meðal annars finna
í verslununum Módern í Hlíðar-
smára, Póley í Vestmannaeyjum
og Sirku á Akureyri, Mótívó á
Selfossi og á pósthúsum víða um
land. Einnig eru þær stöllur með
eigin vefverslun í smíðum.
Hafdís segir vörurnar hafa
fengið góðar viðtökur og er nú
vinnan við Arcadesign orðin aðal-
vinna þeirra beggja. „Við bjugg-
umst ekki alveg við þessu þegar
við byrjuðum á kökudiskinum en
þetta hefur gengið alveg rosalega
vel. Við munum örugglega koma
með eithvað nýtt fyrir sumarið,
til dæmis fyrir brúðkaupin. Við
erum með svo mikið af hugmynd-
um og erum bara rétt að byrja.“
heida@frettabladid.is
Kökudiskar og
krummar
Stöllurnar Hafdís Heiðarsdóttir og Vilborg Aldís Ragnarsdóttir standa
á bak við Arcadesign. Fyrirtækið stofnuðu þær fyrir hálfu ári í kring-
um kökudisk úr plexígleri sem þær teiknuðu sjálfar og létu smíða.
Hafdís Heiðarsdóttir og Vilborg Aldís Ragnarsdóttir eru þegar komnar af stað með
nýja vörulínu sem þær kalla Corvus. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
út febrúar
Borgartúni 25 | Reykjavík | Sími 570 4000 | raudakrosshusid@redcross.is | www.raudakrosshusid.is | Opið virka daga kl. 12-17
Ókeypis námskeið og ráðgjöf
Mánudagur 22. febrúar
Miðvikudagur 24. febrúar
Fimmtudagur 25. febrúar
Qi – Gong - Viðar H. Eiríksson kennir fólki að afla,
varðveita og dreifa orku um líkamann. Tími: 12.00-13.00.
Gönguhópur - Klæddu þig eftir veðri. Tími: 13.00 -14.00.
NLP (Neuro Lingvistisk Programering) - Hvernig má
nýta NLP sem hjálpartæki þegar lífið tekur óvænta stefnu
og velja þarf úr nýjum möguleikum. Tími: 13.30 -14.30.
Vinnum saman - Ný viðhorf (Býflugurnar) - Vertu
með í skapandi hópi atvinnuleitenda. Tími: 14.00-16.00.
Að sýna trúna í verki - Umræður. Tími: 14.00-15.00.
Baujan sjálfstyrking - Fullt! Tími: 15.00 -17.00.
Skiptifatamarkaður - Barnaföt - Tími: 16.00 -18.00.
Fluguhnýtingar fyrir byrjendur - Skráning nauðsyn-
leg. Tími: 12:00 -13.30.
Föndur - skrapp myndaalbúm og kort - Gott er að
hafa skæri meðferðis. Tími: 12.00-14.00.
Saumasmiðjan - Gamalt verður nýtt. Tími: 13.00-15.00.
Hjálparstarf á Haítí - Sendifulltrúi Rauða krossins
segir frá starfi sínu og aðkomunni á Haítí örfáum dögum
eftir jarðskjalftann. Tími: 14.00-15.00.
Þýskuhópur - Við æfum okkur í að tala saman á þýsku
um málverk. Tími: 14.00-14.45.
Frönskuhópur - Við æfum okkur á frönsku í að tala um
mannlýsingar og ættartré. Tími: 15:00 -15.45.
Jóga - Viltu prófa jóga? Tími: 15.00-16.00.
Hjartahnoð - Lærðu og æfðu rétt viðbrögð þegar sek-
úndur skipta máli. Tími: 12.15 -13.15.
Gönguhópur - Klæddu þig eftir veðri. Tími: 12.30 -13.30.
Meðvirkni - Af hverju verðum við meðvirk? - Ráð-
gjafar Lausnarinnar (lausnin.is) bjóða upp á einstaklings-
ráðgjöf að fyrirlestri loknum. Tími: 13.15-14.45.
Hláturjóga - Viltu losa um spennu og fylla lífið af hlátri
og gleði? Tími: 15.30-16.30.
Föstudagur 26. febrúar
Hvernig stöndumst við álag - Hvað fær okkur til að
pirrast og reiðast yfir smámunum? Tími: 12.30 -14.00.
Prjónahópur - Lærðu að prjóna. Tími: 13.00 -15.00.
Enskuhópur - Æfðu þig að tala ensku. Tími: 14.00 -15.00.
Með hamingjuna í lúkunum - Þórhildur frá Þekking-
armiðlun fjallar um hamingjuna, hamingjuhindranir og
gefur gömlum broshrukkum nýtt líf. Tími: 14.30 -15.30.
Skákklúbbur - Komdu og tefldu. Tími: 15.30 -17.00.
Allir velkomnir!
Áhugasviðsgreining - Könnun og fagleg ráðgjöf.
Skráning nauðsynleg. Tími: 14.00 -16.00.
Ráðgjöf fyrir innflytjendur - Sérsniðin lögfræðiráð-
gjöf og stuðningur við innflytjendur. Tími: 14.00 -16.00.
Briddsklúbbur - Hefur þú gaman af bridds? Langar þig
að læra bridds?Tími: 14.00-16.00.
Skattar og skattabreytingar - Hvað þýða nýlegar
breytingar á skattakerfinu fyrir þig? Tími: 15.30-16.30.
Þriðjudagur 23. febrúar
Rauðakrosshúsið
Næring og lífsstíll - Þú þarft ekki að umturna lífi þínu
þó þú viljir lifa heilsusamlegu lífi. Tími: 12.30 -13.30.
Tölvuaðstoð - Persónuleg aðstoð. Tími: 13.30-15.30.
Aðstoðaðu okkur við að bæta dagskrána!
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
Allt sem þú þarft…
Kökudiskur eða fat
undir ávexti.