Fréttablaðið - 22.02.2010, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 22.02.2010, Blaðsíða 12
12 22. febrúar 2010 MÁNUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Jón Kaldal jk@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Gólfþjónustan er með sérlausnir í smíði borða fyrir fyrirtæki og heimili. Við smíðum borð algjörlega eftir þínu máli svo sem borðstofuborð, sófaborð og fundarborð. SÉRSMÍÐI ÚR PARKETI info@golfthjonustan.is | golfthjonustan.is S: 897 2225 S amtök atvinnulífsins hafa látið frá sér fara myndar- legt yfirlit um tillögur sínar til endurreisnar í íslensku atvinnulífi og efnahag þjóðarinnar. Mikil vinna liggur greinilega að baki þessum viðamiklu tillögum sem hafa það að markmiði að vísa þjóðinni leið til endurreisnar, kröftugs atvinnulífs og bættra lífskjara. Auðvitað verða skiptar skoðanir um ýmislegt í þessum tillögum SA, en viðleitnin er mjög jákvæð. Alþýðusambandið hefur líka hreyft mörgum tillögum og hug- myndum og gert skýrar kröfur til ríkisstjórnarinnar um aðgerðir í efnahags- og atvinnumálum. Að verulegu leyti er samhljómur með þessum helstu samtökum í íslensku atvinnulífi og vinnumark- aði. Óskandi væri að ríkisstjórnin og stjórnmálaflokkarnir allir vildu hlusta á þessar tillögur og taka tillit til þeirra. Samtök atvinnulífsins hafa greinilega miklar áhyggjur af því að horfur eru á langvarandi kyrrstöðu eða efnahagslægð og fjölda- atvinnuleysi á Íslandi á komandi misserum. Af þeim sökum leggja SA megináherslu á að bætt verði hressilega í fjárfestingar, iðnþró- un og orkubeislun þegar á komandi mánuðum. Samtökin leggja fram margþættar tillögur og hugmyndir til að stuðla að þessu. Það er skoðun Samtaka atvinnulífsins að framvinda efna- hags- og atvinnumála á næstu árum sé undir því komið hverjar ákvarðanir Íslendingar sjálfir taka og hvernig okkur farnast að framfylgja þeim. Þau benda sérstaklega á það grundvallaratriði að fjárfestingar í útflutningsgreinum verða að draga vagninn. Og þau gera þá eðlilegu kröfu að stjórnvöldin vinni með atvinnu- lífinu. Markmið Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambandsins eru þau að hér verði atvinna fyrir alla þegar á næstu árum. Þá verði unnið að varanlegri eflingu atvinnulífsins með orkunýtingu og stórfjárfestingum sem eru virkasta leiðin til þess að rykkja hag- kerfinu í kröftugan gír til atvinnuaaukningar og almennra lífs- kjarabóta í landinu. Samtökin leggja þunga áherslu á að vaxta- stigið í landinu verði lagað að þessum markmiðum og horfið frá gjaldeyrishöftunum, en þau eru í raun vantraustsyfirlýsing á krónuna og koma þannig alveg í veg fyrir að hún geti náð tiltrú á markaðinum. Þær aðgerðir sem Samtök atvinnulífsins boða nú eru einmitt mikilvægar til þess að skapa tiltrú og traust á íslensku atvinnulífi og íslenskri hagþróun til framtíðar. Tillögurnar eru víðtækar og ná til allra helstu samfélagsþátta sem máli skipta. Allir sjá að ríkisstjórnin er stórlega löskuð og kemur eiginlega engu eða fáu til leiðar, að minnsta kosti í bili. Iðnaðarráðherra er aftur og aftur að boða aðgerðir og fyrirætlanir en virðist jafnóðum hrundið til baka af afturhaldsöflum innan stjórnarinnar. Meðal annars af þessari ástæðu hljóta menn að líta til frumkvæðis og tillagna úr öðrum áttum. Það verður að koma vitinu fyrir þá sem standa á móti. Ef ríkisstjórnin megnar ekkert til góðs verður hún auðvitað að víkja. Nú þarf að setja startkapla á hagkerfið. Aðrar aðferðir eru of seinvirkar til að vélin hrökkvi í gang. Tillögur Samtaka atvinnu- lífsins eru mikilvægt framlag sem allir ættu að kynna sér. Mikilvægt framlag Samtaka atvinnulífsins: Nú þarf startkapla JÓN SIGURÐSSON SKRIFAR Franskir blaðamenn, sem eru öllum hnútum kunnugir, sögðu nýlega frá því í fréttum að eftir jarðskjálftann í Haítí hafi vúddú-særingar, sem þar eru landlægar, mjög svo færst í aukana. Einn þeirra hafði við- tal við „hougan“ nokkurn, en svo eru vúddú-prestar nefndir þar í landi, sem taldi augljóst að and- arnir hefðu vitað fyrir um ham- farirnar. Viku fyrir þær hefði hann haldið mikla serimoníu með bænasöng og bumbuslætti ásamt með fleiri prestum í „pot- omitan“ eða hofi, og þá hefðu andarnir að vísu mætt eins og búist var við en verið eitthvað undarlegir, hvorki viljað borða né tala heldur einungis grát- ið. Jafnvel guðinn Ogou, sem er venjulega svo kátur og reifur, hefði ekki sagt eitt aukatekið orð. Greinilegt var að eitthvað skelfilegt var í aðsigi, þótt menn skildu það ekki þá. Öll þessi guð- fræði er hvítum Vesturlanda- búum framandi, en hins vegar þekkja þeir aðra hlið á vúddú- kukli, – neikvæðu hliðina þegar særingamenn búa til dúkku af fjandmanni sínum og stinga í hana nálum til að ljósta hann sjálfan einhverjum kaunum og pestum. Dúkkur af því tagi hafa jafnvel verið til sölu í verslunum í París, m.a. í líki Sarkozys, og fylgja nálarnar með. Svo var þó að sjá af greinun- um að fréttamennirnir hefðu brosað út í annað þegar þeir voru að skrifa þær, en það ættu þeir ekki að gera. Því íbúar vítt og breitt á Vesturlöndum hafa ekki farið varhluta af sínum eigin vúddú-særingum og þær af hinu grimmasta tagi. Fyrir nokkrum árum fóru ýmsir hag- fræðingar frjálshyggjunnar að básúna þá nýju kenningu að með því að lækka skatta mjög mikið, einkum og sérlega á hátekju- mönnum og fyrirtækjum, væri hægt að auka skattatekjur rík- isins til muna. Þetta rökstuddu þeir með því að við þessar lækk- anir yrðu menn svo glaðir að þeir færu að vinna mun meira en áður – kenningin gengur sem sé út frá því að alltaf sé næga vinnu að fá, o.s.frv. – þá myndu tekjur þeirra hækka verulega og þeir borga meiri skatta í raun þótt hundraðstalan væri lægri. Þetta var svo skýrt með stærð- fræðiformúlum sem voru jafn óskiljanlegar og særingaþulur á Haítí. Fljótlega fékk kenningin nafn sem hún hefur síðan gengið undir og var kölluð „vúddú-hag- fræði“, og fannst sumum að hún vekti áleitna spurningu: skyldu þeir sem halda þessu fram trúa í raun og veru á þessa kenn- ingu sína? Það töldu margir af og frá. Þeir héldu því fram að tilgangurinn væri sá einn að nota þessa nýju hagfræði til að framkalla sem háværasta tóma- hljóð í ríkiskössum, því það væri segin saga að þegar fjármál hins opinbera væru illa stödd, hvar í heimi sem væri, myndu við- brögð stjórnmálamanna jafnan verða þau sömu, að byrja á að draga úr kostnaði í félagsmál- um af öllu tagi, heilbrigðiskerfi, skólum og slíku. Því strax í upp- hafi frjálshyggjunnar bjuggu hagfræðingar hennar til líkan, eða dúkku, af því sem þeim var mest nöp við, sem sé velferð- arríkinu, – því líkön eru þeirra ær og kýr – og hafa þeir síðan verið í óða önn við að pikka í hana með kenninga-nálum af öllu tagi til að reyna að ráða nið- urlögum þessa þjóðfélags, koma því helst til leiðar að sjúkrahús- um verði lokað, nema rándýrum einkaspítölum fyrir auðkýfinga, dregið verði úr framlögum til menntamála, þannig að í staðinn fyrir opinbera skóla komi einka- skólar með háum skólagjöldum, og atvinnuleysisbætur og annað slíkt verði skorið niður við trog, svo ekki sé talað um það fé sem runnið hefur til menningarmála. Þessi vúddú-hagfræði hefur víða borið góðan árangur frá sjónarhóli þeirra sem bjuggu hana til, en nú bætist annað við í sama anda, og það er kreppan. Hún er í raun og veru framhald vúddú-hagfræðinnar og himna- sending fyrir frjálshyggjuna, því hennar vegna neyðast jafn- vel vinstri stjórnir til að fram- kvæma þá stefnu sem hún fylgir sem harðast; þótt þær séu á önd- verðum meið eiga þær ekki leng- ur annarra kosta völ en brýna kutana og vaða út í blóðugan niðurskurð á öllu því sem kennt hefur verið við heilbrigðismál, félagsmál og menningu. Þannig er ýmsum helstu atrið- um frjálshyggjunnar hrundið í framkvæmd, án þess að frjáls- hyggjumenn þurfi að koma nálægt því sjálfir og bera á því nokkra minnstu ábyrgð. Þeir geta horft á þetta allt saman skellihlæjandi meðan þeir bíða eftir því að fá aftur upp í hend- urnar þau fyrirtæki, banka, skipafélög og annað sem þeir misstu um stundarsakir í kreppunni, hvítþvegin og skuld- laus, ásamt með auðmjúkri beiðni um afsökun fyrir óþæg- indin. Vúddú EINAR MÁR JÓNSSON Í DAG | Hagfræði og galdrar UMRÆÐAN Erla Ósk Ásgeirsdóttir skrifar um at- vinnumál Atvinnuleysi meðal ungs fólks er áhyggjuefni. Við erum að missa unga fólkið af landi brott en flestir þeirra sem flust hafa í burtu eru á aldrinum 25–29 ára sem er einmitt fjölmennasti ald- urshópurinn á atvinnuleysisskrá, eða um 30,5% allra atvinnulausra. Þetta er verulegt áhyggjuefni enda mannauðurinn ein helsta auðlind okkar. Þessar tölur eru skýr skila- boð um að ungt fólk er að sækja sín atvinnutæki- færi utan landsteinanna sem þýðir aftur að fjöldi fólks metur það svo að það sé ákjósanlegra að búa annars staðar. Ísland á að vera ákjósanlegur staður fyrir ungt fólk að búa á og við verðum að búa svo um hnútana að það finni kröftum sínum farveg hér heima. Atvinnumálin þola enga bið, ef ekkert verður að gert blasir við að þeim mun fjölga sem velja að flytjast af landi brott. Við stöndum frammi fyrir því að aldrei hafa jafn margir flutt frá landinu og á síðasta ári en 4.835 fleiri fluttu frá landinu en til þess. Næstflest- ir brottfluttir umfram aðflutta voru árið 1887. Ef opinberar spár ganga eftir munu Íslendingar þurfa að horfast í augu við aukið atvinnuleysi á árinu verði ekki gripið í taumana. Ef ekkert verður að gert mun atvinnuleysi aukast í 10-11% á árinu. Þróunin á vinnumarkaðinum er grafalvarleg en samkvæmt vinnumark- aðskönnun Hagstofunnar fækkaði störf- um um 11 þúsund á milli áranna 2008- 2009 og meðalvinnustundum fækkaði um rúmlega 10% sem gefur sterka vísbendingu um minni verðmætasköpun í hagkerfinu. Við verðum öll að leggja okkar af mörkum í uppbyggingu atvinnulífsins og samfélagsins því nú ríður á að sköpuð verði ný störf og atvinnu- leysi útrýmt. Efnahagsleg endurreisn hefur gengið hægar en vonir stóðu til. Það er því löngu orðið tímabært að stjórnmálamenn horfi til framtíðar og vinni saman að því finna lausnir á þeim vanda sem við blasir og móti skýra fram- tíðarsýn þannig að Ísland verði áfram ákjósan- legur staður fyrir ungt fólk að búa á. Höfundur er varaþingmaður. Staða ungs fólks áhyggjuefni ERLA ÓSK ÁSGEIRSDÓTTIR Miðstýring frjálshyggjunnar Frjálshyggjufélagið hélt aðalfund sinn um helgina. Hann sátu „hátt á fjórða tug manns“ líkt og segir í tilkynningu frá félaginu. Líkt og venja er á aðal- fundum var kjörið í stjórn, en hana skipa 19 menn. Karlmenn. Ungir frjálshyggjudrengir. Líkur á að komast í þá stjórn eru nokkuð góðar, vel ríf- lega helmingur fundarmanna var kosinn í stjórn. Óvíst er hvort, John Locke hefði skrifað upp á miðstýringu af þessu tagi. Komist drengirnir í félaginu til valda má líklega búast við mikilli útþenslu ríkisbáknsins, ef koma á rúmlega helmingi þjóðarinnar í stjórn. Rökþrot eða vanþroski? Frjálshyggjudrengirnir bera hag hinna ríku mjög fyrir brjósti og í samþykkt aðalfundarins segir að orðið auðmaður sé komið á sama stall og orðið gyðingur „í munni áróðursmeistara þýska nasistaflokks- ins“. Vonandi er hægt að skrifa jafn ósmekklega samlíkingu á vanþroska drengjanna. Það hefur nefnilega löngum verið mælikvarði á rökþrot að seilast í líkingum til Þýskalands Hitlers. Ekkert fútt lengur Aðalfundurinn virðist hafa farið nokkuð friðsamlega fram og raunar er það lenska orðin að fundir stjórn- málahreyfingar eru hálflitlausir. Engin átök, ekkert fútt, allir vinir. Það er af sem áður var þegar oft lá við handa- lögmálum á slíkum samkundum. Þannig var það á miðstjórnarfundi Alþýðubandalagsins í Neskaupstað fyrir margt löngu. Eftir pólitísk átök yfir daginn voru kverkarnar vættar um kvöldið. Þá fannst nokkrum, sem sumir enduðu síðan á Alþingi, eðlilegt næsta skref að henda Ásmundi Stefánssyni, þá hag- fræðingi ASÍ, í höfnina, en voru stöðvaðir á bryggjusporðinum. kolbeinn@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.