Fréttablaðið - 22.02.2010, Blaðsíða 18
22. FEBRÚAR 2010 MÁNUDAGUR2 ● fréttablaðið ● híbýli og viðhald
Í þrílyftu húsi í Mosfellsbænum
búa Rannveig Halldórsdóttir
og Kristján Jóhann Guð-
mundsson ásamt börnunum
Gyðu Margréti og Halldóri
Gauta og hundinum Neró.
Húsið keyptu þau árið 2005 og
hófust handa við að gera það
upp þremur árum síðar.
„Ég er á því að maður verði að
vera búinn að búa í húsinu í ein-
hvern tíma til að finna út úr því
hvernig maður vill hafa hlutina,“
segir Rannveig en búið er að taka
neðri hæð hússins í gegn og stefnt
á efri hæðina í framhaldinu.
Skipt var um gólfefni og hiti
lagður í gólfin, eldhúsið og borð-
stofan tekin í gegn og eins snyrt-
ingin á hæðinni.
„Við nutum aðstoðar Kristín-
ar Guðmundsdóttur hjá Innark
og hún teiknaði til dæmis eldhús-
ið. Það var bæði lítið og erfitt að
vinna í því svo við lögðum áherslu
á að fá pláss undir alla hluti og
góða vinnuaðstöðu. Til dæmis var
gerð útdraganleg eyja sem nýtist
sérstaklega vel.“
Þegar Rannveig er beðin að lýsa
stílnum heima hjá sér vefst henni
tunga um tönn en segir hann þó
ekki minimalískan og heldur
ekki „brjálæðískan“. „Ég set bara
saman minn eigin stíl og vil hafa
hlýlegt í kringum mig. Ég labba
ekki í leiðslu út í búð og kaupi eitt-
hvað bara af því ég sá það hjá ein-
hverjum öðrum. Mér er líka alveg
sama hvort flottur hlutur fæst í
Rúmfatalagernum eða Casa. Ég
Mestu munar um
Heimasætan Gyða Margrét og húsfreyj-
an Rannveig með hundinn Neró á milli
sín. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Klukka á vegg innan um myndir en
Rannveig segist gjarnan nostra við
smáatriðin.
Rannveig segist hrifin af bókstöfum á veggi. Svörtu stafina keypti hún í blómaverslun á Ísafirði fyrir nokkru.
● ALLTAF NÝTT OG NÝTT
Þeir sem vilja prýða híbýli sín
með málverki eða teikningu
eftir íslenskan listamann geta
leigt slíkt verk fyrir eitt til tíu
þúsund krónur á mánuði. Þeir
geta svo hvort sem er, eignast
það smátt og smátt eða skil-
að því aftur og jafnvel feng-
ið annað.
Artótekið - Listhlaða leigir
og selur íslenska samtíma-
myndlist til almennings og
fyrirtækja. Lágmarks leigutími
er mánuður og hámark 36
mánuðir en lánþegi getur hve-
nær sem er á leigutímanum keypt listaverkið og þá dregst frá verðinu
sú leiga sem áður hefur verið greidd.
Artótekið er til húsa á 1. hæð Grófarhúss við Tryggvagötu 15 og
þangað getur fólk komið á afgreiðslutíma Borgarbókasafnsins og skoð-
að myndverkin. Auðvelt er líka að fara inn á vefinn www.artotek.is og
líta á úrvalið sem til er hverju sinni.
● BRÁÐSNIÐUG SVEPPAHILLA Hillur þurfa ekki að kosta of
fjár. Hægt er að hanna þær sjálfur með því að nota gamlan viðarbút.
Austurríski hönnuðurinn Katharina Mischer hannaði hilluna Limited
Fungi Shelf sem hefur vakið mikla athygli. Hillan er
búin til úr gömlum viði sem búið er að fínpússa
og lakka og upp úr
honum standa fal-
legir skógarsveppir
úr kopar.
Hillur úr notuðum viði
eru því einföld og skemmti-
leg lausn sem mun án efa
gefa heimilinu skemmtilegan
blæ.