Fréttablaðið - 22.02.2010, Blaðsíða 10
10 22. febrúar 2010 MÁNUDAGUR
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
A
T
A
R
N
A
Glæsileg ryksuga með
öflugum mótor, 2000 W.
Sjálfinndregin snúra,
hleðsluskynjari.
4 lítra slitsterkur poki.
Vinnuradíus: 10 m.
Vinnuhollt handfang.
Stillanleg lengd á sogröri.
Ryksuga VS 06G2001
23.900Tilboðsverð: kr. stgr.
(Verð áður: 29.900 kr.)
VR krefst þess að ráðist verði í
mannaflsfrekar framkvæmdir.
PEKINGÓPERA Söngkona á sviði í
Peking í tilefni af ári tígursins, sem nú
er nýhafið. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
KÓPAVOGUR Garðyrkjustjóri Kópa-
vogs á að gera tillögur um frágang
á landfyllingu vegna bryggju-
hverfis á norðanverðu Kársnesi.
Að því er kom fram í bæjarráði á
fimmtudag frestast framkvæmd-
ir á svæðinu og á meðan er það til
vandræða. Úrgangur sé losaður
í óleyfi og fok frá svæðinu valdi
íbúum í grenndinni angri.
Hægt sé að sá fræi, gera hjóla-
stíga og leyfa hundum að hlaupa
lausum. Vestast á svæðinu hafi
orðið til sandströnd sem nota megi
til sjósunds og sjóbaða. - gar
Landfylling til vandræða:
Gróður hefti
fok á Kársnesi
SAMGÖNGUR „Við fylgjumst með
og höfum auðvitað vonast eftir
því að sjá óyggjandi tölur um
aukningu,“ segir Reynir Jónsson,
framkvæmdastjóri Strætós bs.
„Tölurnar sem við höfum sýna
hins vegar ekki verulega fjölgun
þótt heldur virðist vera stígandi
í þessu.“
Reynir segir fyrstu tölur um
fjölda farþega Strætós í janúar
benda til ríflega þriggja pró-
senta fjölgunar borið saman við
sama tíma í fyrra. Mælingin sé
hins vegar ekki með nema um 95
prósenta öryggi og aukningin því
innan skekkjumarka. „Við skipt-
um árinu upp í þrjú tímabil. Best
er að taka þessar tölur saman
þegar skólahaldi lýkur í sumar-
byrjun. Þá verður hægt að segja
til um það með nokkurri vissu
hvort einhver breyting hefur
orðið,“ segir Reynir.
Þá segir Reynir að fólk kunni
að verða vart við fjölgun á álags-
tímum vegna þeirrar nýbreytni
að bjóða nemendahópum í sam-
floti við kennara, bæði á grunn-
og leikskólastigi, að nota Strætó í
vettvangsferðum.
- óká
REYNIR JÓNSSON Segir fyrstu tölur ársins
benda til fjölgunar farþega.
Bíða verður talna sem fást í vor til þess að merkja raunbreytingu hjá Strætó:
Vísbending um fjölgun farþega
VÍSINDI Bandarískir vísindamenn
hafa þróað nýtt blóðpróf sem getur
sagt til um hvort krabbameins æxli
hefur myndast á nýjan leik eða
hvort lyfjameðferð hefur áhrif.
Prófið er talið geta bylt rannsókn-
um á krabbameini og meðferðum
við því. Sagt er frá prófinu í breska
blaðinu Times.
Með prófinu er læknum gert
kleift að fylgjast náið með þróun
hvers konar krabbameins í sjúk-
lingum og miða meðferðina við það
á hvaða stigi það er hverju sinni.
Prófið, sem áætlað er að geti
orðið aðgengilegt víðast hvar
innan fimm ára, gæti hlíft sumum
sjúklingum við óþarfri lyfja- eða
geislameðferð, en að sama skapi
tryggt að aðrir hljóti nauðsynlega
aukaaðhlynningu ef fyrstu við-
brögð granda ekki meininu. Próf-
ið ætti einnig að geta greint örsmá
afgangsæxli sem ekki sjást á hefð-
bundnum sneiðmyndum.
Þá væri með prófinu hægt að
komast hjá miklum skurðaðgerð-
um, enda má með því komast að því
hvort mein hefur dreift sér í eitla
eða vefi sem virðast heilbrigðir
og láta þá afskiptalausa ef svo er
ekki.
Í ferlinu er notast við erfðatækni
til að greina DNA-auðkenni krabba-
meinsfrumna í blóði. Slík próf eru
ekki glæný af nálinni þegar fylgj-
ast þarf með blóðkrabbameini,
til dæmis hvítblæði, en hafa hins
vegar ekki staðið til boða fyrir þá
sem þjást af æxlum í föstu formi.
Nýja blóðprófið hefur hins vegar
verið prófað á fjórum sjúklingum
með ristilkrabbamein og tveimur
með brjóstakrabbamein. Í örfáum
millilítrum af blóði fundust leifar
af erfðaefni æxlisins.
Prófið kostar nú um 600 þúsund
krónur, en búist er við því að sú tala
lækki hratt eftir því sem tæknin
sem þarf í framleiðsluna verður
algengari og ódýrari.
„Þetta er mjög mikilvægt starf
sem þarna hefur verið unnið og
mun hafa gríðarleg áhrif á þróun
einstaklingsmiðaðrar krabbameins-
meðferðar,“ segir Mike Stratton,
prófessor við Sanger-stofnunina,
sem sérhæfir sig í rannsóknum á
krabbameini og erfðum.
Rannsóknin var kynnt á vísinda-
ráðstefnu sem fór fram nýlega í San
Diego í Bandaríkjunum og hefur
vakið mikla athygli.
stigur@frettabladid.is
Gæti bylt krabba-
meinsmeðferðum
Nýtt blóðpróf sem vísindamenn hafa þróað getur sagt til um hvort meðferð við
krabbameini virkar eða hvort æxli hefur gert vart við sig á ný. Gæti mögulega
hlíft sjúklingum við óþörfum geisla- og lyfjameðferðum eða skurðaðgerðum.
SKURÐAÐGERÐ Hið nýja blóðpróf gerir læknum kleift að fylgjast náið með þróun
hvers konar krabbameins í sjúklingum. Það er jafnframt talið geta orðið til þess að
sjúklingar þurfi ekki að fara í skurðaðgerð eða erfiða lyfjameðferð.
NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES