Fréttablaðið - 22.02.2010, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 22.02.2010, Blaðsíða 2
2 22. febrúar 2010 MÁNUDAGUR Fréttablaðið kemur út í nýju broti í dag. Nýja brotið er tveimur sentimetrum lægra en áður en prentflöturinn minnkar þó aðeins um einn sentimetra. Breytingarnar eru gerðar í hagræðingarskyni en töluverð- ur sparnaður næst í pappírs- kaupum. Ný pappírsstærð felur ekki í sér breytingar á fram- setningu efnis. Fréttablaðið í nýju blaðabroti STJÓRNMÁL Ármann Kr. Ólafsson hlaut örugga kosningu í fyrsta sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokks- ins í Kópavogi fyrir sveitarstjórn- arkosningarnar í vor. Ármann lagði þar Gunnar I. Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóra. Gunnar sóttist eftir fyrsta sætinu, en hafn- aði í því þriðja. „Ég er mjög sáttur við þessa nið- urstöðu, þetta eru afgerandi úrslit og mikil traustsyfirlýsing við mitt framboð,“ segir Ármann. Ekki náðist í Gunnar í gær, en hann sagði á fundi með fram- bjóðendum í síðustu viku að hann myndi ekki taka annað sætið á listanum tap- aði hann slagn- um um fyrsta sætið. Ármann seg- ist ekki hafa heyrt í Gunnari eftir að úrslit urðu ljós. Um 4 . 9 0 0 manns voru skráðir í flokkinn hinn 21. janúar. Um 6.000 voru á kjörskrá í prófkjörinu og því hafði fjölgað um 1.100 í flokknum á einum mánuði. Alls kusu 3.337 í prófkjörinu og kjörsókn því um 56 prósent. Ármann segir sitt framboð ekki hafa stundað smölun. Eðlilegt sé að nýjum mönnum fylgi nýir stuðn- ingsmenn. - bj Óvíst hvort Gunnar I. Birgisson tekur sæti á lista Sjálfstæðisflokks í Kópavogi: Ármann öruggur í fyrsta sæti ÁRMANN KR. ÓLAFSSON RÖÐ FRAMBJÓÐENDA 1. Ármann Kr. Ólafsson 2. Hildur Dungal 3. Gunnar I. Birgisson 4. Margrét Björnsdóttir 5. Aðalsteinn Jónsson 6. Karen E. Halldórsdóttir 7. Árni Bragason Garðar, er það ekki lengur þitt að dæma? „Nei, nú kem ég mér bara fyrir á spjöldum sögunnar.“ Garðar Örn Hinriksson knattspyrnudóm- ari er hættur dómgæslu eftir 20 ára feril. SÁDÍ-ARABÍA Kvenkyns lögfræð- ingar munu bráðlega geta flutt mál sín fyrir dómi í Sádi-Arabíu í fyrsta sinn. Hingað til hafa konur aðeins getað starfað á bak við tjöldin hjá hinu opinbera. Ný lög um þetta verða kynnt á næstu dögum að sögn dóms- málaráðherrans Mohammed al- Eissa. Hann segir lögin hluta af endurbótaáformum konungsins Abdullah. Konunum verður þó aðeins leyfilegt að flytja fjöl- skyldutengd mál, til dæmis skiln- aðar- og forræðismál. - þeb Réttarbót í Sádi-Arabíu: Konur fái að flytja mál NEPAL, AP Khahendra Thapa Negar, átján ára Nepali, ætlar að ferðast til Ítalíu til að freista þess að komast í Heimsmetabók Guinness sem minnsti maður í heimi. Hann er aðeins 56 senti- metrar á hæð en núverandi met- hafi, Kínverjinn He Pingping, er 73 sentimetrar á hæð. Fjölskylda Negars lagði fyrst inn metumsókn hjá Heimsmeta- bókinni þegar hann var fjórtán ára en henni var synjað þar sem hann var ekki fullvaxinn. Negar varð átján ára í fyrra og ætlar því að reyna að fá metið staðfest. Læknar í Nepal hafa ekki getað útskýrt hvers vegna hann er svona lítill. - þeb Sækist eftir heimsmeti: Er aðeins 56 sentimetra hár Í FANGI PABBA Engin læknisfræðileg skýring er á hæð Khanedra Thapa Negar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Árni leiðir Neslistann Árni Einarsson sigraði í prófkjöri Nes- listans á Seltjarnarnesi fyrir sveitar- stjórnarkosningarnar í vor. Brynjúlfur Halldórsson hlaut kosningu í annað sætið. Þeir eru báðir varabæjarfull- trúar Neslistans í dag. Alls kusu 186 í prófkjörinu. SELTJARNARNES PORTÚGAL „Alls staðar í kring eru skriðuföll, og grjót á flestöllum leiðum,“ segir Guðmundur Berg- steinsson, sem býr á eyjunni Mad- eira í Portúgal. Stormur reið yfir eyjuna á laugardag og olli miklum flóðum og aurskriðum. Að minnsta kosti fjörutíu hafa látið lífið og hundruð eru særðir. Þá er óttast að tala látinna muni hækka þar sem fjölmargra er enn saknað. Guðmundur býr ásamt konu sinni í um tuttugu mínútna akst- ursfjarlægð frá höfuðborginni Funchal, sem varð einna verst úti í hamförunum. „Það eru mjög miklar skemmdir inni í Funchal, og það er rosalegt að sjá þetta. Það er búið að rigna svo til alla daga frá því fyrir jól,“ segir Guðmund- ur. Hann segir að rignt hafi stans- laust í um tvo klukkutíma á laug- ardag og vatnsmagnið hafi verið gríðarlegt. „Árnar taka bara ekki við þessu og það flæddi hér niður allar hlíðar.“ Flóðin hrifu meðal annars með sér gróður og bíla. Þá gaf jarðveg- ur sig undan einhverjum húsum. Hjálparstarfsmenn hafa verið sendir frá meginlandi Portúgal og Spáni til þess að aðstoða við björgunarstörf. Veður hamlaði björgunaraðgerðum á laugardag en aðstæður höfðu skánað mikið í gær. Guðmundur segir eyjuna vera í hálfgerðri biðstöðu. Allir skólar og vinnustaðir séu og verði lokað- ir. „Það hreyfir sig enginn og það veit enginn neitt nema það sem heyrist í fréttum. Leiðin til höf- uðborgarinnar er lokuð, og leiðin út á flugvöll líka. Það veit enginn hvenær allt fer af stað aftur, fólk bara bíður.“ Eyjan Madeira er vinsæll ferða- mannastaður og voru nokkrir ferðamenn á meðal þeirra sem leituðu aðhlynningar á spítölum. Yfirvöld í Portúgal hafa sagt alla ferðamenn óhulta, en þó er óttast um afdrif breskrar konu. thorunn@frettabladid.is Minnst fjörutíu eru látnir á Madeira Flóð og aurskriður hafa orðið að minnsta kosti fjörutíu manns að bana á portú- gölsku eyjunni Madeira. Hundruð eru særð og fjölmargra saknað. „Rosalegt að sjá þetta,“ segir Guðmundur Bergsteinsson sem er búsettur á eyjunni. GUÐMUNDUR BERGSTEINSSON Íbúi á Madeira segir eyjuna alla í biðstöðu vegna hamfaranna. BJARGAÐ ÚR FLÓÐINU Hjálparstarfsmenn aðstoða mann við að komast leiðar sinnar í höfuðborginni Funchal á laugardag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP AKRANES Kærunefnd útboðsmála hefur úrskurðað að Akraneskaup- stað beri að afhenda fyrirtækinu Omnir ehf. gögn varðandi kaup á tölvuþjónustu. Bæjaryfirvöld hafa hundsað ítrekaðar fyrir- spurnir nefndarinnar og ekki rök- stutt hví gögnin voru ekki afhent. Líkt og Fréttablaðið greindi frá framlengdi kaupstaðurinn samn- ing við fyrirtækið SecurStore um kaup á tölvuþjónustu, en hætti við að bjóða þjónustuna út. Fyrir- tækið Omnir kærði þá ákvörðun til kærunefndarinnar, en nefnd- in hafnaði kærunni. Fyrirtækið krafðist aðgangs að öllum gögnum og nú hefur bæjarfélagið verið skikkað til að verða við því. - kóp Akraneskaupstaður: Skikkaður til að afhenda gögn LÖGREGLUMÁL Karlmaður liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítalans eftir eldsvoða í Stykkishólmi í gærmorgun. Lögreglu barst tilkynning um eld í raðhúsi klukkan 10.33 í gærmorgun. Þegar komið var að húsinu var það alelda og fannst maðurinn meðvitundar- laus í svefnherbergi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Snæfellsnesi eru upptök eldsins ókunn. Tæknideild er væntanleg til Stykkishólms í dag. Manninum er nú haldið sofandi á gjörgæsludeildinni í Fossvogi. Hann er þungt haldinn að sögn læknis á deildinni. - þeb Karlmaður á gjörgæslu: Þungt haldinn eftir eldsvoða SAMGÖNGUR Samninganefndir flugvirkja og Ice- landair funduðu stíft í allan gærdag og fram eftir kvöldi til að freista þess að ná samningum áður en til verkfalls kæmi. Samningar höfðu ekki tekist þegar Fréttablaðið fór í prentun í gærkvöldi, en verkfall átti að hefjast á miðnætti. Seint í gærkvöldi stefndi allt í að milliríkjaflug Icelandair myndi stöðvast. Guðjón Arngríms- son, upplýsingafulltrúi Icelandair, sagði í gær að stefnt væri á að funda fram eftir nóttu til að reyna að ná samningum. Kristján Kristinsson, formaður samninganefnd- ar Félags flugvirkja, sagði í gærkvöldi ekkert hægt að upplýsa um gang viðræðna, en viðræður myndu halda áfram fram eftir kvöldi. Heimildir Fréttablaðsins herma að flugvirkjar hafi verið búnir að draga úr kröfum sínum í gær, en upphaflega kröfðust þeir 25 prósenta launa- hækkunar. Atvinnuástand meðal flugvirkja hefur verið gott, störfum hefur fjölgað frá árinu 2008 og næga vinnu að hafa. Sex vélar Icelandair áttu að fljúga frá Keflavík- urflugvelli í morgun, og má búast við því að um það bil 1.000 farþegar eigi bókað far með þeim. Guðjón hvatti þá til að fylgjast með stöðunni og reikna með að áætlanir gangi upp. Verkfall flugvirkja myndi setja ferðaáætlan- ir um 20 þúsund ferðamanna, sem eiga bókaðar ferðir á þeim tíma sem verkfallið á að standa, úr skorðum. - bj Verkfall flugvirkja hjá Icelandair gæti stöðvað ferðir um 20 þúsund farþega í dag: Fundað stíft fram eftir kvöldi FERÐALÖG Verkfall flugvirkja myndi setja ferðaáform fjölda flugfarþega í uppnám. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Reynir að hindra verkfall Þýska flugfélagið Lufthansa reri í gær öllum árum að því að koma í veg fyrir að fjögur þúsund flugmenn fari í fjög- urra daga verkfall í dag. Slíkt myndi hafa í för með sér mikla röskun á innanlands- og millilandaflugi. ÞÝSKALAND Ógnaði með sprautunál Maður á þrítugsaldri framdi vopnað rán í verslun 10/11 í Álfheimum á laugardagsmorgun. Maðurinn, sem var í annarlegu ástandi, ógnaði afgreiðslustúlku í versluninni með blóðugri sprautunál og hafði á brott með sér óverulega peningaupphæð. Lögregla fann manninn skömmu síðar. LÖGREGLUFRÉTTIR AKRANES Bæjarfélagið hefur verið skikkað til að láta af hendi gögn er varða kaup á tölvuþjónustu. SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.