Fréttablaðið - 10.03.2010, Side 4
4 10. mars 2010 MIÐVIKUDAGUR
Kvikmyndahús
Sögustaðir
Leikhús, ópera eða söngleikur
Tónleikar
Menningar- eða útihátíð
Listasafn eða myndlistarsýning
Safn af öðrum toga
Íþróttaviðburður
Danssýning
0 10 20 30 40 50 60 70 80 90 100
76%
61%
60%
59%
55%
53%
46%
38%
6%
Aðsókn eftir viðburðum
Eftirsóknarverðast í fjölmiðlum
0 10 20 30 40 50 60 70 80 90 100
Fréttir og veður
Fræðsluefni
Afþreying og skemmtun
Samfélagsmálefni og stjórnmál
Menning og listir
Tónlist
Íþróttir
Barna- og unglingaefni
Trúmál
Annað
93,3%
88,4%
86,6%
63,4%
56,5%
55,2%
45,1%
21,2%
16,3%
3,9%
%
%
Fyrir nemendur á
framhaldsskólaaldri
Síðasta námskeið vetrarins
hefst 15. mars.
Áhersla lögð á þjálfun þríþættra
hæfileika söngleikja-listamanna:
SÖNG * DANS * LEIKLIST
Vorönn lýkur með tónleikum
og sýningu.
SÖNGLEIKJADEILD
- inntökupróf fara fram 11. mars 2010
Snorrabraut 54, 105 Reykjavík
Sími 552 7366, www.songskolinn.is
MENNING Fleiri sækja menningar-
viðburði en íþróttaviðburði og
fleiri sækjast eftir umfjöllun um
menningu og listir en íþróttir í
fjölmiðlum. Þetta er meðal þess
sem kemur fram í nýrri könnun
Félagsvísindastofnunar Háskóla
Íslands á menningarneyslu
Íslendinga. Niðurstöður hennar
voru kynntar í Þjóðminjasafni
Íslands í gær.
Andrea Dofradóttir kynnti
skýrsluna fyrir hönd Félagsvís-
indastofnunar. Könnunin var
framkvæmd haustið 2009. Þátt-
takendur voru spurðir um þátt-
töku í mismundandi tegundum
menningarviðburða síðastliðna
tólf mánuði. Þeir voru einnig
spurðir eftir hverju þeir sæktust
helst í fjölmiðlum.
Eins og sjá má af töflunni til
hliðar fóru flestir svarendur í bíó
en yfir helmingur mætti einnig
á aðra menningarviðburði. Tæp
38 prósent mættu á íþróttavið-
burði, en þeir voru aftur á móti
duglegri að mæta. Hlutfall þeirra
sem sóttu íþróttaviðburð oftar en
þrisvar á árinu var 68 prósent;
aðeins í hópi kvikmyndahúsa-
gesta var hlutfallið hærra.
Fleiri konur en karlar sækja
leikhús, tónleika og listasöfn en í
kvikmyndahúsum, á sögustöðum
og menningarhátíðum er munur-
inn innan skekkjumarka. Hlut-
fallslega fleiri karlar en konur
sækja hins vegar íþróttaviðburði,
48 prósent á móti 29.
Athygli vekur að átján prósent
svarenda höfðu ekki lesið bók sér
til ánægju á árinu. Hæst var hlut-
Fleiri sækja í menn-
ingu en íþróttaleiki
Fleiri sækja listviðburði en íþróttaviðburði, samkvæmt nýrri könnun um menn-
ingarneyslu á Íslandi. Konur eru duglegri en karlar að sækja menningarvið-
burði. Stór hópur les ekki bækur og fimmtungur skrifar blogg og pistla á Netið.
fallið í hópi ungmenna á aldrin-
um 18 til 29 ára, 30,2 prósent, en
í hópi karla sem ekki höfðu lesið
bók var hlutfallið litlu lægra, 27
prósent. Rúm 35 prósent svar-
enda fóru aldrei á bókasafn á
árinu. Rétt rúmur fimmtung-
ur svarenda fékkst hins vegar
við skriftir á Netið, til dæmis á
bloggi eða öðrum heimasíðum.
Úrtak könnunar var 1200
manns á aldrinum 18 til 75 ára.
Alls tóku 695 þátt.
bergsteinn@frettabladid.is
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
12°
2°
6°
3°
5°
6°
3°
3°
20°
9°
16°
14°
26°
2°
8°
14°
2°Á MORGUN
Norðvestan eða vestan
3-8 m/s.
FÖSTUDAGUR
Suðvestan 3-8 m/s.
6
8
5
6
6
6
4
5
5
7
2
6
8
5
6
4
5
6
7
5
10
8
5
6
2 3
1
4
4
4
6
5
ÚRKOMULÍTIÐ
Á MORGUN Það
verður áfram hæg-
ur vindur og milt
á landinu og því
lítið hægt að kvarta
yfi r veðrinu en á
morgun dregur úr
vætunni og léttir
smám saman til
um sunnanvert
landið. Það kólnar
lítillega norðantil á
morgun en á föstu-
dag hlýnar á ný.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
EFNAHAGSMÁL Það þarf að meta
kostnaðinn sem hlýst af töfum á
því að samið sé um Icesave. Hann
getur verið mikill, segir Vilhjálm-
ur Egilsson, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins.
Hvetur hann þá er að málinu
koma til að nálgast verkefnið af
ábyrgð og með alla hagsmuni í
huga.
Vilhjálmur segir að lausn Ice-
save-málsins hafi mikið að segja
um aðgang að fjármagnsmörkuð-
um í útlöndum. Aðgangur ríkis-
sjóðs og einstakra fyrirtækja
að lánsfé sé nauðsynlegur, bæði
vegna atvinnu-
sköpunar en
e k k i s í ð u r
vegna mikill-
ar endurfjár-
mögnunarþarf-
ar ríkisins og
orkufyrirtækj-
anna á næsta og
þarnæsta ári.
„Það verð-
ur að vera búið
að koma þessum málum í lag.
Aðgangur að erlendu lánsfé er
langur ferill og þetta þarf að vera
í lagi þegar við þurfum á pening-
unum að halda. Þetta er ekki eins
og að kveikja og slökkva ljós,“
segir Vilhjálmur.
Gylfi Zoëga, prófessor í hag-
fræði við Háskóla Íslands, sagði
í Fréttablaðinu í síðustu viku að
ef aðgangur ríkisins að erlendum
lánsfjármörkuðum haldist lokað-
ur þurfi að smíða nýja efnahags-
áætlun. Í henni myndi líklega
felast enn frekari lækkun þjóðar-
útgjalda til að afla gjaldeyris. Það
sé unnt að gera með lækkun geng-
is krónunnar, skattahækkunum
eða niðurskurði ríkisútgjalda.
- bþs
Vilhjálmur Egilsson segir mikilvægt að fjármagnsmarkaðir opnist sem fyrst:
Aðgangur að lánsfé hangir á Icesave
VILHJÁLMUR
EGILSSON
LÖGGÆSLA Lögreglumenn fjöl-
menntu að húsakynnum ríkis-
sáttasemjara í gær þegar fund-
ur samninganefndar ríkisins og
Landssambands lögreglumanna
hófst. Fyrir fundinn sagði
Snorri Magnússon, formaður
Landssambands lögreglumanna,
við Fréttablaðið að þolinmæði
þeirra væri þrotin.
„Mér skilst að það sé ekkert
tilboð í gangi,“ sagði Benedikt
Lind rannsóknarlögreglumað-
ur. „Við eigum sannast sagt
fá úrræði önnur en að sýna
óánægju okkar með þessu móti.“
- jss
MÓTMÆLI Benedikt Lund og Þórir Rúnar
Geirsson lögreglumenn sögðu fá úrræði
í stöðunni. FRETTABLADID/PJETUR
Fjölmenn mótmæli í gær:
Lögreglumenn
segjast hunsaðir
EFNAHAGSMÁL Leiðtogar stjórn-
ar og stjórnarandstöðu fóru í
gær yfir stöðu mála á fundi í
Stjórnarráðshúsinu með Lee
Buchheit, formanni samninga-
nefndar í Icesave-málinu.
Stefnt er að því að halda fund-
um við Breta og Hollendinga
áfram en engin dagsetning mun
vera komin á hvenær framhald
gæti orðið á þeim viðræðum.
Fundur með Bucheit:
Fundum verður
haldið áfram
SJÁVARÚTVEGUR Loðnuveiðum
skipa HB Granda á vertíðinni
lauk í gær með samtals um 4.900
tonna afla en þar af fara 3.100
tonn til hrognatöku og vinnslu á
Akranesi og 1.800 tonn fara til
sams konar vinnslu á Vopnafirði.
Að sögn Vilhjálms Vilhjálms-
sonar deildarstjóra var loðnu-
kvótinn 20.500 tonn. Með því að
skipuleggja veiðarnar var hægt
að nýta allan loðnukvóta félags-
ins til hrognatöku og frystingar
á hrognum fyrir markaði í Japan
og Austur-Evrópu. - shá
Loðnuvertíð HB Granda lokið:
Allur aflinn fór
til hrognatöku
KÝPUR, AP Líkið af Tassos Papa-
dopoulos, fyrrverandi forseta
Kýpur, fannst á mánudag í
grunnri gröf í kirkjugarði í
úthverfi höfuðborgarinnar
Nikosíu.
Líkinu var stolið úr öðrum
kirkjugarði þann 11. desember
síðastliðinn, þegar ár var liðið
frá því hann lést úr lungna-
krabbameini.
Rannsóknir á erfðaefni líksins
staðfestu að það er af Papado-
poulos. Ekki er vitað hvers vegna
líkinu var stolið.
Líkið fannst eftir að nafnlaus
ábending hafði borist lögreglu.
- gb
Líkfundur á Kýpur:
Lík fyrrverandi
forseta fundið
FOTINI PAPADOPOULOS Ekkja forsetans
fyrrverandi ræddi við fjölmiðla.
NORDICPHOTOS/AFP
ALÞINGI Frestur til að sækja ráð-
herra til saka vegna vanrækslu
í aðdraganda bankahrunsins
rennur út í lok þessa árs, að mati
Helga Magnúss Gíslasonar, sak-
sóknara efnahagsbrota og for-
manns Ákærendafélags Íslands.
Hafi ráðherra bakað almenn-
ingi tjón með vanrækslu í starfi
skal hann dæmdur til refsingar
samkvæmt lögum um ráðherra-
ábyrgð, en Alþingi þarf að sam-
þykkja ályktun um málshöfðun
gegn einstökum ráðherrum. - þþ
Ákærur á hendur ráðherrum:
Frestur rennur
út í lok ársins
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is
GENGIÐ 09.03.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
229,3005
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
127,82 128,44
191,12 192,04
173,48 174,46
23,310 23,446
21,530 21,656
17,840 17,944
1,4237 1,4321
195,30 196,46
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR